Færsluflokkur: Bloggar
20.12.2007 | 21:12
Aldursskeið
Ýmislegt er í gangi á aðventunni í minni litlu fjölskyldu. Við reynum að heimsækja lasinn afa á sjúkrahúsið af og til, afinn á þessum bæ er með heilastarfssemi og húmor í fínu lagi, en var snögglega kippt úr allri líkamlegri virkni fyrir tæpum tveimur árum þegar hann fékk heilablóðfall og síðan krabbamein í lunga með stuttu millibili. Hann er á sjúkrahúsinu hér á Egilsstöðum og það er afar vel um hann hugsað en það hlýtur að vera einkennilegt að vera bundinn við einn sjúkragang eftir áratuga frjálsræði gangandi, ríðandi og akandi, en hann tekur örlögum sínum af miklu æðruleysi.
Í kvöld er gelgjan mín 12 ára svo með partý, 10 krakkar fæddir 1995 eru inni í herbergi að horfa á mynd, borða snakk og drekka gos, verið er að undirbúa pakkaleik og gleðin er við völd - en undirbúningurinn er búinn að vera dramatískur, 12 ára stelpur eru kapítuli út af fyrir sig, dramadrottningar, gelgjur, hormónaboltar - öll þessi hugtök eiga vel við, þegar misskilningur og ofsögð orð valda dramaköstum og geðsveiflum ógurlegum...
Og svo er það dótturdóttirin sem elskar athyglina sem hún fær og hoppar á milli manna til að baða sig í sviðsljósinu sem allra mest og best, eina mínútuna á mamma að gera allt þá næstu amma...
Svona hefur hvert aldursskeið sinn sjarma og sína vankanta..., held samt að tæplega fimmtugar konur séu á góðu aldursskeiði...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.12.2007 | 23:24
Jólastúss
Aðventan er eiginlega eini tími ársins sem ég fæ almennilega húsmóðurtilfinningu. Frystirinn er að fyllast af gerbakstri, ís, hangikjöti, rjúpum, sörum..., ísskápurinn og bakaraofninn glansandi hreinir, börnin mikið heima því mamman á bænum er heima að stússa...
Nú situr hún Berglind Rós, litla barnið mitt, til að mynda við eldhúsborðið og skrifar á jólakort og pakkar inn jólagjöfum.... hún á að vera að reikna en jólastússið er að hennar mati mun meira aðkallandi, hún sendir 40 jólakort innan skólans og þeim á að skila á morgun svo ekki er seinna vænna að ljúka kortaskrifum...
Ég finn ekki alveg taktinn í jólakortaskrifum ennþá, það er best að reyna sherryaðferðina annað kvöld og athuga hvort andinn hrinur ekki yfir mig....
Við Berglind Rós fórum og keyptum okkur blágreni úr Hallormsstaðaskógi í Barra áðan, það er JÓLATRÉÐ segja börnin mín, furan sem ég keypti í fyrra hlaut ekki náð fyir augum þeirra svo nú mun ekki farið í neina tilraunastarfsemi á þessum vettvangi alveg á næstunni. Síðan fórum við öll í Ketilsstaði og bökuðum laufabrauð með ömmunni, það er nú alltaf ákveðin jólastemning við laufabrauðsbaksturinn...
Þessi vika verður svolítið pólitísk, þó jólin séu að koma..., Fjáraflsfundur á morgun, bæjarráð á þriðjudag og ýmis mál þarf að afgreiða fyrir jól svo einhver fundahöld verða áfram.
Það er merkilegt hversu flókið getur verið að taka pólitískar ákvarðanir, það eru margir aðilar sem þurfa að koma að málum, hagsmunaaðilar, embættismenn og pólitíkusar og oft þarf að fara nokkrar umferðir í þessu hringsóli..., stundum velti ég fyrir mér hvort við pólitíkusarnir þurfum að vera ákveðnari í skoðunum okkar og stefnu og reka mál hraðar áfram. Að sjálfsögðu á að bera mál undir þá aðila sem málið varðar en það getur komið fram ákveðinn vandræðagangur í ákvarðanatökunni ef hringsólað er of lengi, mér leiðist þetta hringsól og vil að teknar séu vitrænar ákvarðanir eins snemma og hægt er.
Jæja nú er best að fara að sofa svo ég vakni nú í spinningið í fyrramálið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.12.2007 | 14:34
Feministi eða ekki???
Hef upp á siðkastið velt mikið fyrir mér hvað það sé í raun að vera feministi..., ég hef alltaf talið mig feminista, en sennilega er ég það ekki í raun.
Umræður um titla eins og ráðherra og jólasveina, skemmtilegt að tala um þessa aðila í sömu setningunni..., hafa vakið furðu mína, ég skil alveg með hausnum um hvað málið snýst, en hjartað segir mér að þessi hugtakanotkun sé ekki það sem málið snýst um til að ná fram jafnrétti í raun.
Ég er mjög ánægð með að vera kona, mér finnst það hlutverk skemmtilegt, mér fannst frábært að fæða börn, vera með þau á brjósti, vera hluti af mæðgum og ömmumæðgum, vera vinkona og ástkona, ganga í kjól og rauðum lakkskóm, mála mig, vera á kafi í pólitík, finnast stærðfræði skemmtileg, vilja gjarnan ráða þar sem ég er og svo framvegis... ég vil fá að vera ég og vera ánægð með það...
Það er nefnilega þetta með sjálfstraustið sem er lykilatriði í jafnréttinu, það að trúa því að maður geti breytt heiminum með orðum sínum og gjörðum, algerleg burtséð frá kynferði og öðrum breytilegum stærðum. Gamlar hefðir sem tengjast annarri samfélagsgerð en þeirri sem við eigum að venjast hafa, að mínu mati, ekkert með jafnrétti að gera. Það er allt annað mál hvað við gerum með hugtök sem tengjast samfélagsgerð dagsins í dag, þar er sjálfsagt að hafa stöðugt í huga að nú eru karlar og konur hlið við hlið í öllum störfum og þess á að gæta í hugtakanotkun...., en enn er ég hrædd um að það sé ekki það sem hefur úrslitaáhrif á jafnrétti kynjanna..., ég er aftur á móti sannfærð um að það að ala stelpur upp í þeirri trú að þær geti allt sem þær ætli sér, styrkja þær og sjálfsmynd þeirra stöðugt, það skili sér í jafnréttisbaráttunni.
Ég er greinilega bullandi feministi, bara öðruvísi ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.12.2007 | 01:51
Aðventugleði
Ég var að koma af tónleikum með Frostrósunum þeim Gunnari Guðbjörnssyni, Heiðu, Heru, Regínu Ósk og Margréti Eir - tónleikarnir voru frábærir og hátíðaskapið svífur nú yfir Egilsstöðum sem aldrei fyrr. Áhuginn á tónleikunum var þvílíkur að þau fylltu Egilsstaðakirkju þrisvar í dag..., vonandi er þetta forsmekkur af miklum áhuga á svona skemmtunum - því svona aðsókn gerir það mögulegt að fá hvers kyns listamenn hingað til okkar. Það er frábært að komast á svona tónleika í aðdraganda jólanna því tónlistin skapar sérstakan hugblæ.
Hef annars verið að jólast í dag, keypti aðeins jólagjafir, málaði einn vegg í stofunni, tók vel til í stofunni og sneri öllu við þar - við litla fjölskyldan erum afar ánægð með stofuna eins og hún er núna...., svo er Berglind Rós búin að gera rískökur og baka eggjahvítukökur svo við erum að komast í jólagírinn..., ég vona bara að allir njóti jólagleði, hvort sem þeir eru nú að stússa í tiltekt og bakstri eða ekki.
Á morgun ætla ég að jólast eitthvað áfram í rólegheitum, undirbúa svo próf á mánudagsmorgun og síðan ætla ég að undirbúa bæjarráðsfund sem verður á miðvikudaginn, þar er stórt og spennandi mál á dagskrá sem er bygging grunnskólans á Egilsstöðum...., það er búið að teikna glæsilegan nýjan skóla sem við erum mjög ánægð með - en eitthvað þarf að ræða málin á miðvikudaginn...
En nú hvíslar engillinn á hægri öxlinni - farðu að sofa - og ég ætla að hlýða honum í þetta skipti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.12.2007 | 14:27
Prófatími er annatími...
Nú sit ég yfir í prófi - búin að fara yfir allt sem ég get farið yfir, búin að vafra dálítið um netheima, búin að fara fram og ræða við samstarfsfólk mitt um vinnutíma kennara...., svo nú skrifa ég stutta bloggfærslu...
Menntamálaráðherra er eðlilega ekki yfir sig ánægð með niðurstöður Pisa, okkur fer aftur frekar en hitt þó aldrei hafi meira fjármagni verið varið til menntamála bæði hjá ríki og sveitafélögum..., verðum við ekki aðeins að staldra við og taka kúrsinn...., það sem ég held að þurfi að gerast er að allir sem koma að skólabörnunum okkar taki sama kúrsinn, foreldrar, kennarar, ráðamenn, nemendur..., allir vilja gera sitt besta en við verðum að vinna saman og axla ábyrgðina saman, þannig náum við árangri...
Við erum að fara að vinna að skólastefnu hér í mínu heimasveitafélagi - ég hlakka mikið til - þetta er mikilvægasti og dýrasti málaflokkurinn okkar - við þurfum að ná okkur upp úr gömlum, djúpum hjólförum og fara nýjar slóðir þar sem þess þarf..., ekki síður við foreldrar en skólafólkið, það erum við sem eigum börnin og berum ábyrgðina á þeim...., þó við höfum mikið að gera...
En nú þarf ég að fara að hitta nemendur mína sem eru að fara í próf á morgun, ég býð alltaf upp á stærðfræðispjall daginn fyrir próf, svo nú er það algebran sem ræður ríkjum í mínu lífi næstu 3 tímana eða svo... Næ sem betur fer að fara með Berglindi Rós í jólaföndur kl 18, svo ég axli nú mína ábyrgð sem foreldri...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2007 | 19:09
Höfuðborg og jólahlaðborð
Hótel mamma og stóra systir á sama fundi og ég - ég varð bara aftur eins og lítil stelpa og lét ábyrgðina á akstri og fundartíma yfir á Helgu systir og mamma minnti mig á lyfin mín og sagði okkur að fara varlega í hvert skipti sem við fórum út úr dyrunum - ég verð að viðurkenna að mér fannst þetta notalegt - gott að geta einstöku sinnum slakað á og látið aðra hugsa pínulítið um sig.
En það er líka ótrúlega gott að vera sjálfstæð kona sem lifi lífinu bara á mínum forsendum og barnanna minna þó ég reyni nú að troða ekki öðrum illilega um tær nema þeir séu alvarlega í vegi fyrir mér...
Við systur vorum á skemmtilegu skólaþingi Sambands íslenskra sveitafélaga þar sem ný lagafrumvörp um skólastigin og kennaramenntun voru kynnt - langflest er þar til bóta en auðvitað er alltaf eitthvað sem maður hefur áhyggjur af þegar verið er að breyta kerfi.
Við skoðuðum auðvitað aðeins jólavarninginn í höfuðborginni og ég var dugleg að kaupa jólagjafir - er búin að kaupa langflestar og pakka mörgum inn, ég elska jólagjafir - ekki síður að velja þær og dunda við að pakka þeim inn en að fá þær...
Ég kom heim um sexleytið og dreif mig í sparifötin og niður á Hótel Hérað í jólahlaðborð með samstarfsfólki mínu í Menntaskólanum, maturinn var góður og félagsskapurinn frábær og ég var södd og sæl þegar ég fór að sofa um miðnættið.
Í dag er ég svo búin að jólast svolítið - hengja upp jólagardínurnar, kveikja á aðventukertinu og dagatalakertinu, taka til í einum skáp og dunda mér... það er óneitanlega notalegt að vita að þó næsta vika verði talsvert annasöm eru rólegheit framundan miðað við það sem verið hefur - sennilega næ ég að njóta þess að skrifa vinum og vandamönnum jólakort þetta árið....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.11.2007 | 23:19
Þakkarvert að hafa heilsu
Ég var lasin á sunnudag og mánudag, það er afar sjaldgæft að ég mæti ekki í vinnu vegna veikinda, en ég treysti mér ekki í vinnuna á mánudaginn, iður mín voru í uppreisnarhug og vældu ámátlega án þess að vilja endilega selja upp eða niður.... Mætti í vinnu í gær - en var hálfræfilsleg, dreif mig samt með félögum mínum í bæjarstjórninni í heimsókn til kollega okkar á Djúpavogi, sá ekki eftir því, það er gaman að koma á Djúpavog, þar eru menn bjartsýnir og stórhuga og sveitafélagið er í bullandi uppsveiflu. Gerði mér grein fyrir því að heilsu var náð þegar ilmandi súpa var á borð borin í Hótel Framtíð, ég var svöng og borðaði með bestu lyst. Í dag dreif ég mig svo í ræktina, vinnuna og á bæjarstjórnarfund þar sem fjárhagsáætlun var til fyrstu umræðu og er ég bara nýkomin heim af maraþonfundi. Tveir ásteitingarsteinar urðu tilefni mikillar umræðu - boðað eignarnám á landi til tjaldstæðisnota og Sláturhúsið, menningarhús. Menn skildu þó glaðir og ljóst er að mikil samstaða er um fjárhagsáætlunargerðina í heild sinni og gleður það mig mjög - þetta er jú frumraun mín sem forsvarsmaður í þessari deild.
Karen Rós litla ömmustelpan mín var hjá okkur um helgina, sannkallaður sólargeisli, á yndislegum aldri þar sem málið þroskast dag frá degi, söngtextar eru að lærast og svo fengum við að upplifa það með henni að bleyjan er að hverfa og klósettferðir voru tíðar - allir sem nýttu snyrtinguna þessa helgi voru "dulleg depa".
Mér líður eins og nýhreinsuðum hundi og man sennilega eftir því í nokkra daga að þakka fyrir að vera hraust og hafa fulla starfsorku. Takk, takk, takk....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2007 | 09:50
Haustönn að ljúka
Nú sit ég í viðtalsherbergi Menntaskólans á Egilsstöðum og bíð eftir að umsjónarnemendur mínir mæti í viðtöl. Þessar elskur eru ekki þau minnugustu..., mér sýnist eintak númer þrjú vera að gleyma sér... Ég er umsjónarkennari nemenda á Almennri braut, þar stunda nám krakkar sem hafa lent í einhverjum vandræðum með samræmdu prófin í fyrravor, eða ekki stundað námið sérstaklega vel síðasta vetur. Þau eru öll afar skemmtilegar persónur, afar ólik, gefandi en um leið krefjandi og eiga það sammerkt að það verður að fara að þeim með góðu, skammir duga afar takmarkað, en það að tala við þau af virðingu og vinsemd virkar undantekningarlaust vel, stundum þarf að nota þessar aðferðir oftar en einu sinni til að ná árangri en þær virka...
Þessir krakkar eru margir afar hræddir við próf, því þau hafa slæma reynslu af prófum, svo næstu vikur munu fara í að undirbúa þau í rólegheitum fyrir próftöku svo þau sýni örugglega hvað í þeim býr á lokaprófinu í desember.
En nú er kominn tími til að fara að kenna stærðfræði - megið þið eiga góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.11.2007 | 23:02
Lífið er hverfult
Þegar einstaklingur eins og Sigurður Grétarsson, bæjarfulltrúi og bæjarráðsmaður á Fljótsdalshéraði fellur skyndilega frá í blóma lífsins vakna óneitanlega margar hugsanir. Sigurður og fráfall hans hefur verið mér ofarlega í huga frá því að við fréttum lát hans á mánudaginn - sérstaklega í dag því það var fyrsti bæjarráðsfundurinn án hans í dag. Sigurður var talnaglöggur og góður íslenskumaður sem gat oft yddað yrðinguna í bókunum, það er eftirsjá að Sigurði - ég votta fjölskyldu hans samúð mína, þeirra er missirinn mestur.
Við ótímabært fráfall samferðamanns fer hugurinn á fulla ferð - það er greinilega ekkert gefið í þessu lífi og því afar mikilvægt að nýta tímann og njóta lífsins og lystisemda þess á skynsamlegan hátt. Verðmætamatið fær líka endurskoðun - fólk verður meira virði en áður og því mikilvægt að verja tímanum í samskipti við þá sem manni þykir vænt um frekar en að hlaupa á eftir hlutum sem eru lítils virði þegar upp er staðið.
Lífið er of stutt til að vera með eitthvert kjaftæði, njótum og berjumst fyrir því sem við trúum á. Þakklátur samborgari sem maður víkur góðu að er meira virði en flest annað. Samverustundir með börnunum skila sér margfalt, umönun aldraðra vina sömuleiðis - fólkið í kringum okkur er öflugasta auðlindin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.11.2007 | 08:48
Réttur sérhvers barns
Tek ofan fyrir Dögg Pálsdóttur. Þegar foreldrar barns treysta sér ekki lengur til að búa saman og ákveða að skilja ætlar örugglega hvorugt þeirra að skilja við barnið sitt en það verður samt raunin alltof oft. Þyrfti "kerfið" ekki að tryggja örugga umgengni barns við foreldra? Tryggingin þarf að vera svo örugg að brot leiði til viðurlaga.
Ég beið alltaf eftir barnakaflanum þegar ég skildi. Presturinn minntist ekkert á börnin og sýslufulltrúinn ekki heldur - en það var svolítið talað um peninga..., kannski endurspeglun á samfélaginu Íslandi???
![]() |
Sameiginleg forsjá kostur fyrir dómi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.8.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar