Leita í fréttum mbl.is

Það er eðlilegt fyrir ungt fólk að vera í skóla

Það er skelfilegt að heyra um fjölskyldur sem ekki hafa efni á að kaupa námsgögn handa börnum sínum. 

En ég trúi ekki öðru en að slíkt megi leysa því það er nú þannig að á okkar tímum er eðlilegt fyrir ungmenni að vera í skóla a.m.k. til 18 ára aldurs.

Mér finnst mjög líklegt að krakkar, skólar, útgáfufyrirtæki, verslanir og almenningur væru til í að leggja þessu þarfa máli lið - það er bara spurning um hver væri til í að halda utan um aðgerðina.

Ég veit t.d. um nokkrar kennslubækur sem dagað hafa uppi heima hjá mér sem enn eru notaðar í skólum sem við værum svo til í að leggja af mörkum.

Ég sæi líka fyrir mér að börn og unglingar tækju að sér vin sem þau hjálpuðu með ritföng.  Það eru margar leiðir til þó þær ráðist auðvitað ekki að rót vandans.  En á erfiðum tímum er samstaðan góð og margir eru til í að leggja hönd á plóg.

En auðvitað skiptir öllu máli að hjálpa öllum til sjálfshjálpar svo plástursaðgerðir sem þessar þurfi ekki að vera á dagskrá. 

Við verðum að gæta þess að búa ekki til kynslóð, sem hefur alla burði til þess að bjarga sér þó aðstæður hamli því um hríð, sem sest bara niður ráðalaus og bíður eftir því að björgin berist. 

Höldum fast í sjálfsbjargarviðleitni og dugnað um leið og við viðurkennum að aðstæður geta svo sannarlega verið þannig fyrir suma og tímabundið að sjálfsagt er að leita sér aðstoðar og veita aðstoð. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband