Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Sumarvinna fyrir skólafólk

Ég verð að viðurkenna að ég er mjög hugsi yfir líklegu atvinnuleysi ungs fólks í sumar.  Íslenskir unglingar hafa vanist því að vinna meiri hluta sumarsins, sumir fyrst og fremst til að ná sér í vasapening, aðrir til að fjármagna skólagöngu sína næsta vetur. Það eru ekki síst krakkar utan af landi sem eru mjög háðir sumartekjunum sínum til að geta stundað nám á vetrum, þessir krakkar munu berjast fyrir því að fá vinnu og mörg munu ná því markmiði sínu en einhver ekki og það mun gera þeim afar erfitt fyrir með áframhaldandi nám. 

Í raun og veru væri allt í lagi að 16 - 20 ára gamlir námsmenn tækju sér bara frí í 4 - 6 vikur, en þeir eru óvanir þeirri tilhögun og því ákveðin hætta á að neikvæð áhrif atvinnuleysis slægu þá illa.  Vonandi skella þessir krakkar sér í sumarskóla og flýta fyrir sér í náminu þannig og eru í uppbyggilegu ferli með sjálf sig um leið.

Stúdentar á námslánum sem ekki fá vinnu eru þannig settir að þeir eru háðir fjárhagsaðstoð sveitafélaga til að geta lifað af, ef þeir kúrsar sem boðið er uppá í sumar henta ekki þeirra námsferli.  Vonandi verða mörg sveitafélög með átaksverkefni svo bjóða megi þessum krökkum vinnu frekar en einhliða styrkgreiðslu fyrir ekkert...

Unglingar sem hafa ekkert að gera annað en að mæla göturnar, horfa á allar Friendssyrpurnar eða hanga á facebook daginn langan eru í ákveðnum áhættuhópi varðandi alls kyns félagsleg vandamál því upp úr leiðindum getur manni dottið ýmislegt misviturlegt í hug til að "drepa" tímann með.

Sveitafélög eru á fullu að skoða þessi mál, skólarnir og fleiri - meðvitundin um verkefnið heldur okkur vonandi á tánum...


Nýr starfsvettvangur

Ég hef ekki verið í því á hverju ári að skipta um starf - hef verið ánægð með þá vinnustaði sem ég hef valið mér og ekki séð ástæðu til þess að vera að skipta ótt og títt.

En nú er ég búin að ganga í gegnum afar sérstakt atvinnuumsóknarferli sem krafðist ýmislegs en gaf meira, það voru margir umsagnaraðilar og margir fengu að greiða atkvæði. Ég fékk starfið til ákveðins tíma og ljóst er að ef ég vil halda því þarf ég að vinna vel og vanda mig.  Þessu gerði ég mér grein fyrir í gær þegar ég byrjaði í nýja starfinu - það var einstök tilfinning að ganga inn í Alþingishúsið, heilsa upp á tilvonandi samstarfsfólk og skoða aðstæður - ég var hrærð og auðmjúk og þakklát því fólki sem gaf mér umboð til starfsins.

Ég mun ekki tjá mig um stjórnarmyndunarviðræður, það gerir forystufólkið okkar þegar það er tímabært - ég vona bara að við náum samstarfsgrundvelli við núverandi samstarfsaðila með góðri og gildri aðferðafræði þar sem báðir aðilar fá að halda virðingu sinni.

Það eru að verða talsverðar breytingar á lífi litlu fjölskyldunnar í Kelduskógum, með Kelduskógana sem okkar aðalheimili en starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu, við munum þó verða eins mikið og nokkur kostur er hér fyrir austan í vor og sumar svo örverpið geti a.m.k. lokið skólaárinu og ég treyst böndin við kjósendur enn frekar.

Ég hlakka til breytinganna og nýja starfsins, það er engin lognmolla framundan sem betur fer því hún er hundleiðinleg og lítið krefjandi - það er nausynlegt að kljást við eitthvað spennandi til að halda heilabúinu við...

Megið þið eiga góða vordaga, kæru lesendur og takk fyrir allar góðu kveðjurnar.


Sérstök nótt

Hef aldrei lifað svona nótt, er ekkert óvön að vinna og sviptast svolítið - en þetta var öðruvísi sviptivindur en ég hef áður lent í - en allt er gott sem endar vel...

Nýtt krefjandi starf bíður mín - ég hlakka til að takast á við það af auðmýkt og vinnusemi, með það í huga að ég á að hlusta og horfa og vinna í samræmi við það sem ég sé og heyri - en af ákveðni og einurð.

Ég er óendanlega þakklát því fólki sem hefur lagt nótt við dag til að vinna jafnaðarstefnunni brautargengi hér í kjördæminu, hér hefur verið unnin frábær teymisvinna frambjóðenda, kjördæmisráðs, kosningastjórnar, almennra flokksmanna og kjósenda - þið eruð frábær - takk fyrir mig.

Fjölskylda og vinir eru líka búin að styðja við mig eins og klettar - takk elskurnar

En nú ætla ég að njóta dagsins með börnunum mínum og öðrum sem vilja njóta hans með mér...

 


Kosningadagurinn runnin upp

Ég á spennandi dag framundan á hinu víðfeðma Austurlandi - eftir að hafa kosið legg ég í hann.  Neskaupsstaður og Vopnafjörður teljast afgreiddir staðir í bili - var í Neskaupsstað í gærkvöldi og á Vopnafirði í fyrradag. En ég byrja að borða súpu á Eskifirði kl. 11 og fikra mig svo suður eftir allt til Djúpavogs og enda á Egilsstöðum og kíki á Seyðisfjörð í kvöld. Hlakka til að hitta kjósendur á öllum þessum stöðum.

Við ætlum svo að skoða tölurnar á kosningaskrifstofunni á Hótel Héraði í kvöld - Seyðfirðingar og fleiri verða líka saman í kvöld að fylgjast með niðurstöðum.

Þessi kosningabarátta er búin að vera stutt og snörp en umfram allt lærdómsrík - ég er ánægð með að við Samfylkingarfólk höfum ekki dottið í þann fúla pytt að úthúða öðrum og eigna okkur annarra verk - það er léleg pólitík sem ber vott um örvæntingu og hroka. Virðing fyrir fólki skilar manni, til lengdar, lengst.

En nú er mér ekki til setunnar boðið - treysti ykkur ágætu lesendur til að fara á kjörstað og nýta atkvæðisréttinn - megið þið eiga góðan dag. Smile


Margir óákveðnir

Er búin að vera á ferðinni í dag á Fljótsdalshéraði og í Fjarðabyggð - fékk að afhenda fólki rósir - sem er alveg frábært.  Mér finnst margir tala um að þeir séu óákveðnari núna en áður í hvað skuli kjósa - trúverðugleiki stjórnmálanna og stjórnmálamannanna er takmarkaður núna - nema menn treysta Jóhönnu Sigurðardóttur og hennar fólki - þess vegna er Samfylkingin ákjósanlegur valkostur fyrir þá sem eru óákveðnir og óánægðir.

Kjósum heiðarleika og  hugrekki - kjósum Samfylkinguna.

 


Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar kæru vinir og takk fyrir veturinn.  Ég var að koma úr góðri ferð á Vopnafjörð - þar hitti ég gamla nemendur, samstarfsfólk úr pólitíkinni, vopnfirska jafnaðarmenn og kannski einhverja sem ekki voru þeim megin í pólitíkinni...

Ég var mjög hrifin af því að koma á kaffisölu Slysavarnarfélagsins í Miklagarði og sjá hversu vel var mætt og hversu mikil samstaða virðist með fólkinu á staðnum.  Við grilluðum pylsur fyrir utan kosningaskrifstofuna og 100 pylsur hurfu eins og dögg fyrir sólu.  Vopnfirðingar eru duglegir og vinnusamir og berja ekki lóminn en ýmislegt brennur á þeim svo sem kostnaður við að eiga börn í framhaldsskóla, samgöngur og Evrópusambandið. 

Það þarf að stórefla sjóðinn sem greiðir jöfnunarframlag vegna náms - það er engan veginn ásættanlegt að foreldrar þurfi að greiða milljónir fyrir það að börn þeirra geti sótt nám í framhaldsskóla.  Misréttið er hróplegt eftir búsetu - það er himin og haf á milli þess að þurfa að senda barn sitt að heiman 16 ára á heimavist með tilheyrandi aðskilnaði og kostnaði eða að barn geti gengið í skólann og búið heima.

Vegurinn um Vopnafjarðarheiði er ekki í nokkrum takti við nútímann - eins gott að framkvæmdir við nýjan veg eru að hefjast - það er bara neyðarsímasamband mestan hluta leiðarinnar, auðvitað betra en ekkert en þó takmarkað.

Það er greinilegt að hræðsluáróður gagnvart stefnu Samfylkingarinnar í Evrópumálum eru áberandi - mér finnst við stöðugt vera að minna á að við ætlum bara að sækja um aðild og bera samninginn undir þjóðina - ekki að þrýsta okkur inn hvað sem tautar og raular - upplýst umræða og kynning á meðan viðræður standa yfir og eftir að samningsdrög liggja fyrir eru nauðsynlegar til að þjóðin geti tekið afstöðu.

Mér líður vel í þessari kosningabaráttu - þess fullviss að málstaðurinn er frábær og lífsnauðsynlegur, tveir dagar eftir og þeir verða nýttir vel.

 


Samstarf þjóðanna

Samstarf við aðrar þjóðir er okkur eðlilegt – samvinna með þjóðunum sem næst okkur standa hluti af daglegri rútínu og því eðlilegt þegar stöðugleikann, sem við þurfum svo sárlega á að halda, er að finna í formlegu samstarfi við Evrópuþjóðir að leita þangað.  Við eigum að setjast niður með fólkinu á Íslandi og finna hvaða markmiðum við viljum ná í samstarfinu við Evrópuríki, fara með þau markmið til Evrópu, spyrja spurninga og gera á grundvelli þeirrar vinnu drög að samningi og leggja þau samningsdrög  síðan fyrir þjóðina og spyrja hana hvernig henni lítist á og þjóðin tekur ákvörðun.  Um leið og þetta ferli fer í gang segja fagmenn okkur að við höfum lýst yfir ákveðinni stefnu í peningamálum og þar með aukist trúverðugleiki okkar í samfélagi þjóðanna og slíkt geti hjálpað okkar laskaða gjaldmiðli til að ná einhverjum stöðugleika á meðan við erum í því ferli að fá að taka upp nýjan gjaldmiðil. 

Við þurfum á unga fólkinu okkar að halda, fólkinu sem ætlar að búa á þessu landi og byggja það upp – það ástand sem hér ríkir nú kallar ekki beinlínis þýðum rómi á ungu kynslóðina að vera hér, stofna heimili hér og starfa hér – unga fólkið okkar á heimtingu á því að við gerum alvöru tilraun til að skapa hér stöðugleika og aðstæður svo það geti vaxið hér og dafnað í eðlilegu samneyti og viðskiptum við aðrar þjóðir.  Förum því og tölum við Evrópusambandið í fullri alvöru og sjáum hvað það býður okkur.

Hræðsluáróður um afsal sjálfstæðis og auðlinda er ekki nútímalegur né trúverðugur - það er heimóttarlegt að þora ekki að banka á dyr og spyrja hvort viðkomandi sé til viðtals.

Framundan er skemmtilegur síðasti vetrardagur með vinnustaðaheimsóknum og hátíðum á Egilsstöðum og Eskifirði.


Góðir dagar

Það er stórskemmtilegt að vera í kosningabaráttu vegna þess að maður hittir svo mikið af alls konar fólki sem á sín brennandi baráttumál, persónuleg, atvinnuleg og byggðaleg og fólkið vill gjarnan fá að koma þessum málum sínum á framfæri, ræða þau og meta. Við erum búin að vera á Djúpavogi, Breiðdalsvík, Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Neskaupsstað og Eskifirði í dag og í gær - þar brenna sjávarútvegsmálin á mönnum.  Sumir eru afar ánægðir með strandveiðarnar og fyrningaleiðina meðan aðrir mega á hvoruga leiðina heyra minnst.  Eðlilegt þegar aðstæður byggðalaganna eru eins mismunandi og raun ber vitni...

Nú ætla ég að sofa svolítið, vakna svo snemma og undirbúa daginn - sofið vel kæru vinir


Veljum íslenskt - á sama verði um allt land

Fór í heimsókn í Miðás á Egilsstöðum í morgun, fyrirtækið framleiðir Brúnásinnréttingar og hefur gert það um árabil.  Nýr sýningarsalur var tekinn í notkun fyrir rúmu ári og þar eru stórglæsilegar eldhús- og baðinnréttingar til sýnis svo og fataskápar, auk þess býður fyrirtækið upp á ókeypis teikniþjónustu og - rúsínan í pylsuendann er, sama verð um allt land - það er greinilegt að fyritæki á landbyggðinni hafa meiri skilning á því hvað flutningskostnaður er íþyngjandi en fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.  Ég er stórhrifin og hreykin af þessu flotta fyrirtæki sem er ekki með neinn barlóm - en aðlagar sig breyttum aðstæðum og horfir til framtíðar.

Svo leit ég við á sjúkrahúsinu og heilsaði upp á heldri borgara þessa samfélags - fékk hlý handtök, falleg bros og hlýjar kveðjur frá því fólki sem vann hörðum höndum að því að byggja upp Ísland, en hefur nú sest í helgan stein og er afar þakklátt fyrir jafn sjálfsagðan hlut og að eftir þeim sé munað.

Síðdegis ætla ég svo að hitta umhverfisráðherra með þróunarstjóranum mínum, renna svo í Skriðuklaustur og vera viðstödd þegar fyrsta skóflustunga verður tekin að gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs við Skriðuklaustur, eftir það verður stefnan tekin norður í land, með framboðsfundinn á fullu í útvarpinu.  Verð að viðurkenna að ég er orðin svolítið spennt að heyra niðurstöður skoðankönnunarinnar hér í kjördæminu, tölur verða birtar síðdegis, vonandi erum við komin upp fyrir 25% fylgi hér Smile.

 


Laun og skattar

Staðan í þessu landi er þannig að launum er afar misskipt - meginþorri launþega er með ósköp eðlileg laun - nokkrir eru með ofurlaun og aðrir með smánarlaun.

Það hefur verið tilhneiging að seilast í vasa þessara með eðlilegu launin þegar vandi steðjar að, ofurlaunafólkið virðist ósnertanlegt og sem betur fer er þegjandi samkomulag að ráðast ekki á smánarlaunin.

Verðum við ekki að brjóta glerhjúpinn í kringum ofurlaunakappana og fara með eðlilegum hætti í þeirra vasa frekar en í þessa venjulegu vasa sem virðast svo handhægir? Hækkun fjármagnstekjuskatts gæti virkað vel til að ná því.

Mér finnst hugmyndin um bæði skattahækkanir og launalækkanir fráhrindandi. Mér finnst allt annað að tala um frestun launahækkana með samningum, niðurskurð á yfirvinnu og aukagreiðslum, flestir skilja þær aðgerðir þó fólk berjist auðvitað á móti og verji kjör sín - enda þurfa flestir á hverri sinni krónu að halda til að standa skil á skuldbindingum sínum.

Í niðurskurðinum hjá okkar bæjarfélagi var farið margar umferðir og alltaf fannst eitthvað sem mátti skera aðeins í án þess að skerða grunnþjónustu og segja upp fólki - ég vil að það sé byrjað að fara nokkrar svona umferðir í ríkisbákninu áður en farið er í beinar launalækkanir hjá ríkisstarfsmönnum með meðallaun sem flestir eru að vinna með fólk og eru sjálfsagt að meirihluta konur. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband