Færsluflokkur: Bloggar
27.2.2008 | 08:36
Morgunstund....
Ég misstu nánast andann þegar ég kom út úr Íþróttamiðstöðinni áðan, það er frábærlega fallegt á Egilsstöðum. Það er vetur - það er orðið bjart og það er engin venjuleg birta...
Kannski var ég líka ánægð með mig að hafa drifið mig í spinning í morgun, Dandý var æðisleg að vanda og allar morgundrottningarnar sem ég svitna með á morgnana voru hressar og skemmtilegar eins og venjulega....
En ég á ennþá eftir að fara yfir 50 próf.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.2.2008 | 22:01
Jákvæðni
Ég held að mér finnist jákvæðni skemmtilegasta persónuleikaeinkennið, skemmtilegasta nálgunin á málum, skemmtilegasta lífsviðhorfið...., jákvæðni er dyggð...
Það þýðir ekki að gagnrýni sé af hinu illa - hún er nauðsynleg til að breyta hlutum til betri vegar og ef hún er uppbyggileg er hún jákvæð og tryggir jákvæða þróun...
Upp á síðkastið hefur verið í gangi neikvæð umræða um ýmislegt tengt Fljótsdalshéraði: neikvæð umræða um heilsársveg yfir Öxi sem er mikið hagsmunamál fyrir Héraðið, neikvæð umræða um Sláturhúsið sem m.a. hýsir ungmennahúsið okkar sem af sérfræðingum er talið með þeim alflottustu á landinu, neikvæð umræða um aðstöðu til samkomuhalds í þéttbýlinu á Egilsstöðum, leidd af þeim aðilum sem seldu samkomuhúsið okkar á sínum tíma....
Það þarf að laga útlitið á Sláturhúsinu, það þarf að vinna að því að auka framboð á afþreyingu fyrir ungt fólk, í samvinnu allra aðila, en það þarf að meta það sem vel hefur verið gert, byggja á því og halda svo áfram í markvissum skrefum að því marki sem verður sett....og vegurinn um Öxi eyðileggur ekkert fyrir Fjarðarbyggð...
Ég er ótrúlega leið á þessari neikvæðu umræðu - hún gerir ekkert gagn....
Ég vil allavega frekar verja mínum tíma með jákvæðu fólki í uppbyggilegum samskiptum...
Jæja - en að hinu daglega lífi... krökkunum mínum gekk alveg ágætlega á Ístöltinu á laugardaginn, komust bæði í úrslit þrátt fyrir stutta þjálfun...., mótið var fínt, en dálítið kuldalegt þegar líða fór á daginn... hátíðin um kvöldið var fín, frábær matur hjá henni Gróu súperkokki og ballið var fínt...
Um næstu helgi er það svo þorrablót í Kverkfjöllum, kappinn hann Maggi og kempan hún Rannveig buðu mér með sér..., hlakka mikið til, skilst að þorrablót í Kverkfjöllum sé afar spennandi skemmtun, svo hef ég aldrei komið í Kverkfjöll...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.2.2008 | 10:48
Opnir dagar, aðalskipulag, Djúpivogur og Ístölt 2008
Í yfirskriftinni koma fram helstu viðfangsefni vikunnar. Það er nóg að gera, mér leiðist ekki þessa vikuna frekar en aðrar.
Í Menntaskólanum eru opnir dagar, þá er skólastarf brotið upp og önnur viðfangsefni tekin fyrir, ísdorg, vetrarakstur, ræðukeppni kennara og nemenda og margt margt fleira.
Ræðukeppnin var í gærkvöldi, ég var í keppninsliði kennara ásamt Þorbirni, Þórhildi Þöll og Bryndísi Ford. Umræðuefnið var: Eru austfirsk ungmenni á réttri leið? - kennararnir voru meðmælendur en lið nemenda andmælendur. Það kom mér skemmtilega á óvart hversu skemmtilegt þetta var, við sigruðum naumlega en ræðumaður kvöldsins var hún Linda Jónsdóttir, nemandi...., keppnisskapið naut sín og allt var látið vaða á báða bóga...., held að hér eftir verði þetta fast atriði á opnum dögum...
Á morgun ætlum við að halda áfram að vinna í nýju aðalskipulagi, sem er afar spennandi verkefni en margar stórar ákvarðanir þarf að taka - á að lengja flugbrautina, á að skipuleggja byggðina meira til suðurs og norðurs eða eigum við að reyna að þjappa henni saman, Melshornsleið - inni eða úti... og svo mætti lengi telja, svo fundum við úti á Eiðum um kvöldið, hlustum á erindi um umhverfismál og hlustum svo á íbúa....
Á föstudaginn koma svo Djúpavogsmenn í heimsókn til okkar - til að skoða stofnanir okkar og stjórnsýslu og til að undirbúa hugsanlegar sameiningarviðræður, við borðum svo saman um kvöldið og Birni Hafþóri hefur verið lofað keti....
Á laugardaginn er það svo Ístöltið - þær Myrkva og Berglind Rós virðast ná saman í samstilltan dúett svo þær stefna ákveðið að keppni í unglingaflokki...., ég hlakka til að verja degi í náttúrufegurðinni við Eiðavatn og horfa á góða hesta þeysast um ísilagt vatnið - það er ævintýraleg blanda... Um kvöldið verður svo hátíð, það hefur aldrei verið leiðinlegt að skemmta sér með hestamönnum svo það verður örugglega punkturinn yfir i - ið á góðum degi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.2.2008 | 19:11
Hrossastúss
Berglind Rós mín brosir allan hringinn í dag - hún fór á fyrsta reiðtúr ársins í dag. Elskan hann Halli í Lönguhlíð járnaði Myrkvu og skutlaði henni í Fossgerði í gærkvöldi. Við fórum síðan þangað í morgun til að kíkja á hana og síðan í Ketilsstaði til að ná í reiðtygi - þaðan var brunað í Fossgerði til að prófa reiðskjótann. Það er meiningin að keppa á Ístölti 2008 um næstu helgi ef þær stöllur ná saman og Myrkva hefur ekki gleymt gömlum töktum..., ég er alsæl sem hestasveinn, nýt jarðsambandsins sem næst í nánum tengslum við skít og hrossamóðu..., en þegar sól fer að hækka meira á lofti gæti nú verið gaman að fara á bak...
Við Rannveig kíktum svo í bæinn á Egilsstöðum og eins og sést á "lötugrétu" í dag er hún afar ánægð með okkar verslanir og ég deili þeirri ánægju með henni....
Í kvöld verður svo sófakvöld - langþráð eftir sérstaklega annasama 10 daga....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2008 | 20:10
Menntun er það sem lífið snýst um....
Í dag var verið að vinna að menntastefnu Fljótsdalshéraðs, ég var bara með í tvo tíma því samviskan var að naga mig - ekki er hægt að svíkja lærdómsþyrsta stærðfræðinema dag eftir dag ekki einu sinni í þágu menntastefnu..... Þessi vinna er afar spennandi en krefjandi, að þurfa að rökstyðja hvert orð sem maður segir, hafandi afar gaman af því að segja mörg orð, reynir á.....
Svo fór ég á kynningu á sameiginlegri framtíðarsýn Sambands sveitarfélaga, Skólastjórafélagsins og Kennarasambandsins um grunnskólann. Frábær vinna og fín kynning - vonandi verður þessi fína framtíðarsýn að veruleika, þá eru íslenskir grunnskólar, nemendur og kennarar í góðum málum.
Í allri þessari menntaumræðu erum við mikið að tala um samstarf heimila og skóla, mér finnst aðeins gæta vonleysis í þeirri umræðu, kennarar svolítið búnir að gefa önnum kafna foreldra upp á bátinn og foreldrar ekki alltaf nógu hressir með skólann...., ég held að þarna gæti ákveðins misskilnings. Það vilja allir foreldrar að börnin þeirra hegði sér vel og læri mikið í skólanum en vilja jafnframt að skólarnir sinni englabossunum þeirra vel, auðveldi þeim námið og leiðbeini þeim með samskipti. Vantar ekki fyrst og fremst skýra verka- og ábyrgðaskiptingu. Foreldrar bera ábyrgð á uppeldi en skólinn á skipulagningu náms??? Allavega megum við ekki gefast upp - þetta samstarf á jafnréttisgrundvelli getur skipt sköpum fyrir farsæla skólagöngu barns....
En núna ætla ég að fara að hitta gefandi konur og spjalla við þær í svona klukkutíma, vonandi get ég verið svolítið gefandi líka...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.2.2008 | 18:56
Stórhátíðisdagur
6. febrúar er mikill hátíðisdagur á mínum bæ..., ég á tvö börn fædd þennan dag. Dagurinn í dag er sérstaklega hátíðlegur því hann Guðmundur Þorsteinn er tvítugur í dag og Berglind Rós varð táningur. Ég verð að fara að horfast í augu við aldur minn, tvö börn á þrítugsaldri og litla barnið orðið táningur...
Ég man aldrei áður eftir því að þessi hátíðisdagur hafi rekist á hátíðisdag allra landsmanna, öskudaginn...., að mörgu leyti afar skemmtilegur dagur, syngjandi börn í litskrúðugum búningum svífandi um allan bæ í léttri sykurvímu... Mér finnst þessi dagur samt hafa ákveðnar skuggahliðar. Það eru alltaf einhver sorgbitin börn sem upplifa einsemd þennan dag því þau hafa ekki félaga til að fara með í bæinn...., ég hef ekki lausn á málinu en held að foreldrar og skólayfirvöld þurfi að vera meðvitaðri um málið og grípa inn í, svo gleði megi ríkja í öllum hjörtum.
Við ætlum að gera okkur glaðan dag á eftir og fá okkur að borða á Nielsen..., síðan verður margra vikna gleðskapur, fyrir stelpur, fyrir stráka, fyrir unga, fyrir aldna.... og einhverjar blöndur verða líka...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.2.2008 | 21:37
Klár í Útsvarinu
Okkar fólk stóð sig frábærlega í Útsvarinu í kvöld - sigraði stórt og Fljótsdalshérað komið í 8 liða úrslit í þessum skemmtilega þætti. Mótherjarnir úr Skagafirði voru stórskemmtileg, greinilegt að allir skemmtu sér vel í þessum þætti...
Hlátrasköll mín þegar Þorbjörn lék gufubaðið ullu uppþoti á heimilinu...., mér fannst hann frábær...Takk fyrir að sigra aftur fyrir okkur krakkar, það er gott fyrir ímyndina.... Auðvitað ekki verra að þeir Þorsteinn og Þorbjörn gegna báðir trúnaðarstörfum fyrir Fljótsdalshérað fyrir sama framboð og ég starfa fyrir.....
Til hamingju krakkar og takk fyrir að vera okkar fulltrúar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.2.2008 | 09:18
Útilokar ein samgöngubót aðra?
Það er vont þegar fólk er svo sjálflægt að það getur ekki unnt öðrum úrbóta. Mótmæli gegn Öxi eru því miður staðarpólitík, þar sem þeir sem vilja að leiðin með ströndinni á Miðausturlandi verði meginleið um Austurland, unna ekki öðrum íbúum Austurlands styttingar leiða og vegabóta.
Mér finnst að allar vegabætur á Austurlandi séu fagnaðarefni og því samgleðst ég Fjarðarbyggðarbúum mjög með Norðfjarðargöng og nýjan veg um Hólmaháls.
Vegabætur á Austurlandi eru fagnaðarefni allra Austfirðinga - gætum þess að setja engar þeirra í uppnám með sundrungu og öfund....
![]() |
Öxin klýfur Austfirðinga í herðar niður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.1.2008 | 18:00
Amma "Lína langsokkur"
Í gær fékk ég þetta yndislega viðurnefni. Karen Rós dótturdóttir mín hefur fram að þessu aðskilið mig frá öðrum ömmum sínum með því að segja "amma mín". En mamma hennar var að kenna henni að hún ætti fleiri ömmur, ég væri "amma Nína" - það fannst minni dömu nú alltof hversdagslegt svo hún hló ógurlega og ákvað að hér eftir yrði ég "amma Lína langsokkur".
Ég er afar hreykin því hún vill stöðugt horfa á Línu svo ég dreg þá ályktun að henni finnist "amma Nína" ekki mjög leiðinleg..., alltaf er maður nú til í að hreykja sér svolítið.
En svo fór ég að hugsa áfram - Lína er auðvitað stórmerkilega sögupersóna og ekki slæmt að líkjast henni. Hún nennir ekki að verða fullorðin, hún lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna, hún er jákvæð og ekki að velta sér upp úr smáatriðum, heimilishaldið ekki alveg eftir bókum húsmæðraskólanna - þetta með heimilishaldið á ég allavega sammerkt með henni.... o.s.frv - hún er tímalaus persóna sem skemmti minni kynslóð, kynslóð barnanna minna og barnabarnanna.... Astrid Lindgren var auðvitað frábær....
Amma "Lína langsokkur" er enn í vinnunni, að semja próf og stússa ýmislegt - aldrei þessu vant er enginn fundur í dag. Guðmundur englabossi ætlar að hafa kjöt og karrý í kvöldmatinn, hann var með hreindýrahakk í smjördeigi í gærkvöldi, hann er örugglega alveg búin að gefast upp á "mömmu fundarhesti" í eldamennskunni - en hún er ágæt í að ganga frá sú gamla. Í kvöld munum við Berglind Rós svo læra fyrir náttúrufræðipróf, verst að hún nær ekki sambandi við þessa skemmtilegu grein...., reyni að sá góðum fræjum í kvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.1.2008 | 09:47
Þorrablót
Það er ótrúlegt að svona kerling eins og ég, alin upp á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu við dæmigert kaupstaðafæði, elska þorrablót.
Þegar ég futti austur í september 1982 var það fyrsta sem Einar Georg, sem þá var skólastjóri á Hallormsstað kynnti fyrir okkur á leiðinni af flugvellinum, félagsheimilið Iðavellir - "og þar höldum við þorrablótin". Við bæjardrósirnar litum hvor á aðra og fitjuðum upp á trýnið... en síðan var farið að undirbúa blótið - við auðvitað settar í nefnd - og þvílík skemmtun, hláturtaugarnar vrou kitlaðar linnulaust með hvers kyns spaugi og saklausu glensi um sveitungana. Svo kom röðin að matnum sem mér leist nú ekkert á til að byrja með, alls óvön súrmat og hákarl - en sem betur fer fékk einhver góður sveitungi minn mig til að prófa hákarl og brennivín í góðum kokteil og þvílík nautn - síðan hef ég elskað hákarl og súrmat, enda ef maður ætlar að vera sveitamaður hér fyrir austan nánast ekki annað í boði...
Og nú er þorrablót í kvöld og bærinn á Egilsstöðum iðar af tilhlökkun - hvert verður þema skemmtiatriðanna, hver verður helst tekinn fyrir.... og hvernig verður hákarlinn????
Efast ekki um að blótið í kvöld verður það besta..., þannig er það, maður er alltaf á besta blótinu, svo er blót á Iðavöllum 8. febrúar - þá verður það besta blótið...
Megum við öll eiga góðan þorrra - og karlar til hamingju með daginn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar