Leita í fréttum mbl.is

Klár í Útsvarinu

Okkar fólk stóð sig frábærlega í Útsvarinu í kvöld - sigraði stórt og Fljótsdalshérað komið í 8 liða úrslit í þessum skemmtilega þætti.  Mótherjarnir úr Skagafirði voru stórskemmtileg, greinilegt að allir skemmtu sér vel í þessum þætti...

Hlátrasköll mín þegar Þorbjörn lék gufubaðið ullu uppþoti á heimilinu...., mér fannst hann frábær...Takk fyrir að sigra aftur fyrir okkur krakkar, það er gott fyrir ímyndina.... Auðvitað ekki verra að þeir Þorsteinn og Þorbjörn gegna báðir trúnaðarstörfum fyrir Fljótsdalshérað fyrir sama framboð og ég starfa fyrir.....

Til hamingju krakkar og takk fyrir að vera okkar fulltrúar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þau stóðu sig rosalega vel. En mér fannst stelpan ekki síður standa sig vel, hún vissi allt um Da Vinci.

Er hún kannski ekki í réttum flokki

Rannveig Árna (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 23:13

2 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Veit ekkert um pólitískar skoðanir Margrétar Urðar, finnst samt líklegt að svona klár stelpa halli sér meira til vinstri en hægri.... Vil bara benda á að ég var ekki að gera lítið úr hennar visku, var bara að monta mig af félögum mínum úr pólitíkinni, geri ekki upp á milli framlags þremenninganna til sigursins, þau voru öll frábær...

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 2.2.2008 kl. 02:07

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Þátturinn í gær var alveg frábær og skemmtilegheitin og kímnin láku af öllum keppendum. Ekki voru vinir mínir úr Skagafirðinum síðri að því leyti. Afar skemmtileg öll sömul.

En frammistaða Héraðsbúa var til fyrirmyndar.

Í trúnaði sagt; Þið eruð að fara að vinna þetta!

Jón Halldór Guðmundsson, 2.2.2008 kl. 11:00

4 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Hann Steini veit nú bókstaflega allt,- en ekki Turner þó,- ég var nú gapandi yfir þvi´!!!

En flott voru þau....

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 2.2.2008 kl. 18:51

5 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

Já þetta var skemmtilegt og mitt fólk (úr Skagafirðinum) var flott!

Guðrún Helgadóttir, 2.2.2008 kl. 20:00

6 identicon

Já það er leiðinlegt að Skagfirðingar eru dottnir út því þeir eiga langskemmtilegasta liðið. Þetta eru óborganlegir húmoristar.

Rannveig Árna (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 10:26

7 identicon

Takk f. að slá Skagfirðinga út. Leikurinn æsist.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband