Færsluflokkur: Bloggar
7.11.2008 | 08:26
Enn einni vikunni að ljúka
Tíminn líður hratt, mér finnst vikurnar þjóta hjá, hraðar og hraðar eftir því sem aldurinn færist yfir - hef heyrt að eitthvað hægi á aftur, síðar...
Vann þann sigur þessa vikuna að fara og hreyfa mig alla morgna, notaði tæknina - taktu bara einn dag í einu og hún virkaði greinilega... Það gefur mér orku og kraft í dagana að hreyfa mig og mér finnst ég þurfa sérstaklega mikla orku núna.
Október og nóvember eru annasamir mánuðir í sveitastjórnarmálum, verið er að ganga frá áætlunum fyrir næsta ár og yfirleitt er það verk sem krefst yfirlegu og vinnu, verkefni sem tekur tíma en langt frá því að vera óyfirstíganlegt... Árið 2008 er öðruvísi - óvissan er lýjandi og orkufrek - verkefnið sem áður krafðist bara vinnu - er eiginlega óvinnandi... en við reynum eftir bestu getu.
Bæjarráðið er þessa dagana að heimsækja stofnanir sveitarfélagsins, við heimsóttum stórar og smáar stofnanir í gær og ég sá enn einu sinni að það er gott starf unnið alls staðar - og starfsfólkið okkar á hrós skilið fyrir að gera það besta úr aðstöðunni sem það hefur til umráða, starfið er ekki háð byggingunni sem það fer fram í - en sumsstaðar er aðstaðan þannig að það verður að bæta í - því gerði ég mér enn betur grein fyrir í gær. Það verður unnið mjög markvisst að því að stöðva ekki þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru - ef nokkur kostur er að afla lánsfjár, verður krepputal ekki látið stöðva okkur í áframhaldandi uppbyggingu blómlegs samfélags á Fljótsdalshéraði.
Í dag höldum við áfram í stofnanaheimsóknum - byrjað verður á Hallormsstað, í mínum gamla skóla, hlakka til að heimsækja skóginn í fallega haustveðrinu sem er hér í dag....
Þegar ég kem heim síðdegis verð ég að fara að hugsa um lýðræðislega skóla og hvernig þeir vinna að því að taka við hinni margbreytilegu nemendaflóru, það eru verkefnaskil um þetta efni á sunnudaginn í öðrum kúrsinum mínum. Í hinum höldum við áfram að spá í hegðunarfrávik út frá sjónarhóli nemandans. Spennandi og nátengt...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 13:39
Nýir straumar í Bandaríkjunum - hvenær berast þeir hingað?
Nýr forseti í Bandaríkjunum virðist hafa alla burði til að vera maður fólksins og fulltrúi minnihlutahópa. Hann virðist hlýr og mannlegur, skynsamur og skiljanlegur, vonandi reynist hann þannig í raun...
Ástandið í þjóðfélaginu er þannig að traust og trúnaður er ekki það sem manni dettur fyrst í hug - nýjustu fréttir um uppgjöf skulda vegna hlutabréfakaupa rúðu yfirmenn bankanna endanlega öllu trausti í mínum huga. Hversu lengi ætlar þessi vitleysa að halda áfram?
Þegar skapstilltasta fólk er farið að úttala sig um þörf sína fyrir að kasta tómötum og fúleggjum er langt gengið, en ég skil þá þörf ágætlega, spillingin virðist vera útbreiddari en nokkurn óraði fyrir.
Bogi Nilsson var maður að meiru að segja sig frá vekefni sem krafðist hlutleysis þegar fjölskyldutengsl gátu gefið tilefni til tortryggni... sennilega er best að fá útlenda aðila til að greina stöðu og orsakir ástandsins. Á litla Íslandi eru tengsl allsstaðar...
En nú sem aldrei fyrr - ræktum okkur og fólkið í kringum okkur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.11.2008 | 11:19
Hvað er best?
Á hverjum degi stendur maður frammi fyrir því að velja - oftast er valið ekki erfitt enda um smáatriði að ræða eins og hverju skuli klæðast, hvað borðað o.s.frv....
Nú finnst mér að erfið ákvörðun hljóti að bíða stjórnvalda þessa lands. Á að slíta stjórnarsamstarfi eða reyna að halda áfram að vinna saman? Ljóst er að stór ágreiningsefni eru að valda ríkisstjórninni vandræðum svo að við venjulegar aðstæður væri eðlilegt að hvetja til slita - en er hægt að bjóða þjóðinni upp á þann glundroða sem manni finnst felast í því að fara í kosningabaráttu þar sem fagurgalinn tekur völdin og allir lofa upp í ermina á sér, í ástandi þar sem erfitt er að sjá næsta dag fyrir...
En það er algerlega óþolandi að ekki sé skipt um húsbændur í Seðlabankanum - manni finnst það svo augljóst og óumdeilanlegt að þar eiga að taka við stjórninni hæfustu fagmenn á sviði fjármála og hagstjórnar sem við eigum, til að vinna faglega, hlutlægt og hratt að því að ávinna Íslandi traust og trúverðugleika aftur - afdankaðir pólitíkusar með bundið fyrir bæði augu eiga bara að vera heima hjá sér núna....
Og svo verður að fara að upplýsa okkur betur um næstu skref, hvað felst í samningnum við IMF?? Hvar stendur fjárlagagerðin? Hvar verður skorið niður? Allar stofnanir og öll sveitarfélög eru í áætlanagerð einmitt núna - hvernig á slíkt að fara fram þegar ríkið þegir þunnu hljóði???
Mér finnst erfiðast af öllu í þessu ástandi dagsins að horfa upp á fólk missa vinnuna, það að hafa atvinnu er stór hluti af sjálfsmynd manns fyrir utan það að sjá fjölskyldunni fyrir lífsviðurværi, maður hlýtur því að missa fótanna við að missa vinnuna....
En í öllum þessum glundroða er mikilvægt að halda fast í góðu gildin - að hlúa vel að sjálfum sér svo maður sé fær um að hlúa að öðrum, andleg og líkamleg næring og þjálfun þurfa að vera í hámarki og gæðin í efstu mörkum...
Í dag ætla ég út að ganga, vera við opnun á nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu eldri borgara við Miðvang, læra svolítið og gera svo tilraun til að elda gæsasúpu í kvöld.
Gelgjan mín fór með pabba sínum á rjúpnaveiðar í gær og kom þreytt en alsæl heim eftir svolitlar svaðilfarir í austfirska fjalllendinu, það er körfuboltaæfing hjá henni í hádeginu en svo ætla ég að reyna að ná henni með mér á opnunina og svo kúrum við saman og lærum seinni partinn og ef ég þekki hana rétt þarf hún nú aðeins að skipta sér af eldamennskunni.
Englabossinn er svo með pabbanum á rjúpnaveiðum í dag - ég þarf sennilega ekkert að kvíða því að ég fái ekki í jólamatinn...
Megið þið eiga góðan sunnudag með þeim sem ykkur þykir vænt um...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.10.2008 | 21:52
Útsvarið
Rosalega er ég stolt af liði okkar Héraðsmanna í Útsvarinu - þau stóðu sig frábærlega í alla staði. Diskótaktar Stefáns Boga gleymast ekki alveg strax...
Ótrúlega notaleg fjölskylduskemmtun svona á föstudagskvöldi þessi spurningakeppni. Það er gott að hringa sig í sófanum eftir vinnuvikuna og athuga aðeins hvort maður getur svarað einhverju. Erfiðir tímar gleymast um sinn og áhyggjur eru lokaðar úti.
Enn og aftur til hamingju Steini, Urður og Stefán Bogi - þið voruð frábær og sveitarfélaginu ykkar til mikils sóma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2008 | 20:57
Reykjavík er nú ágæt
Kom heim úr höfuðborginni í gær. Brá mér í allra kvikinda líki þessa daga eins og konur gera gjarnan. Á fimmtudag og föstudag var ég í skólanum frá morgni til kvölds, á laugardaginn var ég dóttir og síðan mamma og amma á laugardagskvöldið og á sunnudaginn. Brá mér líka í vinkonu- og skólasysturhlutverkið á laugardagskvöldið, þegar ég fékk gamla vinkonu og skólasystur í heimsókn til dótturinnar sem brá sér út á lífið og amman passaði. Mér leið eins og unglingi sem fékk vinkonu með sér að passa og það var alveg jafn gaman og á unglingsárunum að hringa sig í sófanum og skrafa af hjartans list. Þessi ágæta vinkona er í svipaðri stöðu og ég, fyrrverandi grunnskólakennari og núverandi framhaldsskólakennari, þriggja barna móðir sem býr ein með krökkunum sínum svo við höfðum um margt að spjalla og eins og svo oft þegar konur sitja og spjalla var ég ríkari þegar spjallinu lauk en áður en það hófst. Á sama hátt fór ég með góða orkuskammta af fundi dótturdóttur minnar sem skemmtir mér alltaf konunglega, oft finnst mér ég vera í einhverri endursýningu svo áþekk er sú stutta móður sinni bæði til orðs og æðis en - það er svo skemmtilega öðruvísi að vera amma en mamma að engin hætta er á neinum ruglingi þar...
Í undirmeðvitundinni á bak við allt þetta er svo hugsunin um ástandið í þjóðfélaginu, það gladdi mig mikið að heyra það að félagsmálaráðherrann okkar er búin að búa til sérfræðingahóp til að skoða hvernig lágmarka megi skaða íbúðalánagreiðenda í óðaverðbólgunni sem virðist ekki vera á neinu undanhaldi. Vonandi komast þeir að árangursríkri niðurstöðu sem allra fyrst. Annað innra gleðióp slapp út þegar niðurstöður skoðanakönnunar um fylgi stjórnmálaflokkanna voru birtar á dögunum, jafnaðarstefnan og afstaðan í ESB málunum, sem Samfylkingin stendur fyrir, eiga greinilega upp á pallborðið hjá almenningi núna.
En núna ætla ég að kveikja á kertum og taka svolítið til hjá mér, sýnist vera að bresta á skemmtilegur gestagangur hér næstu daga. Látið ykkur líða vel .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 07:39
Daglegt líf
Lífið gengur sinn vanagang þó ástandið í efnahagsmálunum sé eins og það er. Gelgjan mín er til dæmis að fara á sitt fyrsta Fjarðaball um helgina, Fjarðaballið er ball ársins hjá grunnskólanemum á Austurlandi. Ég er að upplifa það í þriðja sinn á ellefu árum að vera Fjarðaballsmamma með tilheyrandi heilabrotum um hvaða dress sé nú við hæfi og hvernig heildarmyndin með hári og förðun verði. (Englabossinn minn sleppti reyndar förðuninni alveg!) Sat og mat dress og fylgihluti í tvo tíma í gærkvöldi, nú hanga tvo á herðatrjám með fylgihlutum, hef á tilfinningunni að englabossinn hafi gert út um málið þegar hann loks fékkst til að tjá sig um málið. Gelgjan mín metur álit tvítugs bróður að öllum líkindum meira en fimmtugrar móður sinnar - en við Guðmundur erum sammála svo þetta er allt í góðu..
Þessi skemmtilega samverustund okkar mæðgna fékk mig samt enn einu sinni til að ergja mig yfir klikkaðri útlitsdýrkun sem ríkir í kringum okkur. Það er erfitt fyrir þá unglinga sem falla utan staðalímyndarinnar að ganga um full sjálföryggis þó þau viti að þau séu flott, klár og skemmtileg, sentimetrar og kílógrömm skipta meira máli í sjálfsímyndinni en húmor og vitsmunir. Mér finnst alveg sjálfsagt að allir leggi ákveðna rækt við líkama sinn og útlit, en það má ekki verða eina svið persónunnar sem ræktað er, en það er svolítið erfitt að afla því sjónarmiði fylgis meðal unglinga.
En þau þroskast....
Örstutt um efnahagsástandið - mér finnst óvissan erfiðust - hvers vegna tekur þetta samningaferli við IMF svona langan tíma??? Það virðist ekki vera hægt að gera þjóðhagsspá...
Sveitafélögin í landinu eru að reyna að setja saman fjárhagsáætlanir þessa dagana í algerri óvissu um tekjur næstu ára: hver verður íbúaþróunin?, hvernig verður atvinnuástandið?, hver verður staða jöfnunarsjóðs?, hvernig þróast fasteignaverð og þar með fasteignamat og fasteignagjöld? Óneitanlega afar ótraustur grunnur til að byggja áætlanir á - við á Fljótsdalshéraði höfum alltaf verið með þeim fyrstu til að skila inn fjárhagsáætlun - en nú er stór spurning hvort ekki verður að staðnæmast aðeins og sjá hvort línur skýrist eitthvað á næstu vikum.
En æðruleysi og gleði yfir því sem maður á og ekkert fær grandað hjálpar manni í gegnum óvissuna - og svo er nauðsynlegt að hlæja og fíflast mikið, það kostar ekkert en gefur mikið .
Megið þið eiga góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.10.2008 | 09:56
Fín Akureyrarhelgi
Það var frábært að slaka á með vinkonunum um helgina - heiti potturinn var þjóðnýttur í þágu slökunar og stelpusnakks. Drykkirnir á pottbarminum spönnuðu allt sviðið frá blávatni til óblandaðs viskýs í takt við umræðurnar sem teygðu sig frá mataruppskriftum um skólaskipulag og karlamál til efnahagsmálanna og lausnar á þeim.
Við skoðuðum aðeins hvað verslanir á Akureyri hafa upp á að bjóða - við Þórveig vorum í leiðbeiningarhlutverkinu - en Eydís og Edda mátuðu, tóku sýningarstúlkutilþrif og keyptu auðvitað svolítið. Greifinn var heimsóttur , salötin og pastaréttirnir prófaðir og lítillega dreypt á hvítvíni með. Punkturinn yfir i-ið var svo dansleikur með Geirmundi á Vélsmiðjunni - við dönsuðum mikið og skemmtum okkur konunglega en vorum líka skynsamar og drifum okkur heim á skikkanlegum tíma. Mikið sem var gott að eiga eina svona slökunarhelgi í amstri daganna.
Planið var að dagurinn í dag ætti að vera fundardagur með þingmönnum kjördæmisins - en það er svo mikið um að vera í þinginu og hjá ríkisstjórninni að þeim fundum verður frestað eitthvað. Fundaði í morgun með forseta bæjarstjórnar, fjármálastjóra og þróunarstjóra um skipulag næstu vikna. Þar bera auðvitað hæst fjárhagsáætlanagerð - sem reyndar er ágætlega á veg komin hjá okkur - en það eru margir óvissuþættir í slíkri áætlanagerð í dag - svo við gefum okkur jafnvel lengri tíma í hana en við erum vön - í þeirri von að einhverjir óvissuþættir skýrist á næstu vikum.
Fljótsdalshérað stendur vel - við sjáum fram á að þurfa ekki að fara í mikinn niðurskurð á fyrirhuguðum framkvæmdum sem er afar gott því fyrirtæki teysta á að fá verkefni hjá okkur - það lítur út fyrir að atvinnulífið hér á Héraðinu sé í nokkuð góðum málum.
Pollýönnuleikurinn verður því leikinn sem aldrei fyrr - bjartsýni og jákvæðni lengi lifi....
En nú verð ég að bregða mér mjög ákveðið í hlutverk skólastúlkunnar - verkefnin bíða í talsverðum stöflum á því sviði. Í dag ætla ég að lesa um hugmyndir Bordieu um mennnigararfinn og hlutverk skólans í að viðhalda honum eða hreyfa við honum, mjög spennandi hugmyndafræði og hápólitísk sem gerir hana enn meira spennandi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.10.2008 | 09:30
Nýr dagur
Mikið er talað er um aukningu verðmætasköpunar í þjóðfélaginu og mest er talað um byggingu nýrra álvera og stækkun annarra. Umhverfismat er talið þvælast fyrir og því eigi helst að sleppa. Ég er afar hugsi yfir þessum áherslum. Ég styð Þingeyinga reyndar í baráttu þeirra fyrir álveri við Bakka - tel að það sé afmarkað byggðaverkefni og komið svo langt að það eigi að verða að veruleika - en eftir vandað umhverfismat sem flýta má eins og hægt er. Þar með tel ég nóg komið af álverum á Íslandi og að við eigum að snúa okkur að fjölbreyttari verkefnum til atvinnuuppbyggingar.
Mér finnst umræðan um það hvernig Finnar tóku á sínum efnahagsvanda fyrir tveimur áratugum mjög spennandi. Þeir lögðu höfuðáherslu á aukið menntunarstig þjóðarinnar með fjölbreytilegu námsframboði. Auðvitað tekur það tíma að byggja upp menntakerfið en þar sem við höfum fínan grunn til að byggja á er um að gera að byrja strax að hyggja að leiðum til að bæta menntunarstigið og auka fjölbreytnina í námsframboðinu svo allir finni eitthvað við sitt hæfi og eftir nokkur ár eigum við enn fleiri vel menntaða einstaklinga sem eru skapandi í hugsun og taka virkan þátt í því að byggja hér áfram upp þróað, tæknivætt velferðarsamfélag.
Mér finnst það veruleg forréttindi að fá að vera í námi á launum og finn hversu endurnýjandi það er. Ég held að það myndi efla skólakerfið okkar verulega ef kennarar og stjórnendur fengju af og til tækifæri til að taka sér nokkurra mánaða leyfi til að rannsaka tiltekna þætti, lesa kenningar annara um þá þætti og vinna síðan að því að koma umbótum fram í skólunum.
Er annars kát og hress eftir verulega hressilegan spinningtíma hjá Þórveigu í morgun, það er gott að byrja daginn á hlátrasköllum með góðri hreyfingu.
Eftir að Glitnisskvísurnar eru búnar að gera upp bankadaginn ætlum við Eydís, Edda og Þórveig svo að bruna norður til Akureyrar og vera þar um helgina. Þar verður hristur saman góður kokteill af slökun, hreyfingu og skemmtun.
Megið þið eiga góðan dag og góða helgi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2008 | 23:03
Hljómfögur danskan
Mikið er gaman að hlusta á dönsku í sjónvarpinu af og til - hin engilsaxnesku yfirráð eru svo yfirgnæfandi í töluðu máli sjónvarpsstöðvanna að það fer sérstakur vellíðunarstraumur um mínar kvartdönsku hljóðhimnur við að heyra sérhljóð í endum orða gleypt og kokað svolítið á errunum.
Er dæmigerð kona í kvöld - vinn verkefni - hlusta á sjónvarpið með einu og einu augnatilliti á skjáinn þegar mér heyrist eitthvað spennandi að gerast. Fór aðeins fram úr sjálfri mér í þessum margbrotna veruleika og týndi skjali sem ég var að fara að senda - fylltist engri panik því ég hélt að ég kynni algerlega að enduheimta slíkt tjón. En viti menn þrátt fyrir leiðsögn og allar tiltækar leiðir sem ég þekki finnst skjalið ekki. Örvæntingin var alveg að ná tökum á mér þegar ég fylltist forlagatrú og ákvað að sennilega væri verkefnið bara ekki nógu gott hjá mér - ég þyrfti að skoða það aðeins betur í fyrramálið áður en ég sendi það - og við það róaðist ég og fór aftur að njóta hinnar hljómþýðu dönsku um leið og ég las um lýðræðislegt skólastarf.
Kíki svo af og til á moggavefinn til að fylgjast með því helsta sem er að gerast í efnahagslífinu. Nú situr Árni Matt með alþjóðagjaldeyrissjóðnum og þreifar á samningsstöðu okkar. Ég er ekki yfir mig hrifin af því að við leitum aðstoðar þangað - er skíthrædd um velferðarkerfið okkar, menntakerfið og auðlindirnar. En það er auðvitað ekki margt til ráða - staðan er ekki björt eins og er... vont þegar maður er alveg búin að missa traustið á þessum körlum sem ýmist tala af sér - eða tala ekkert en fljóta sofandi að feigðarósi....
Gæti skrifað langt mál um ábryrgð ríkisins á peningaleik jakkafatastrákanna sem léku frítt spil í skjóli þess að íslenska ríkið skrifaði upp á svo þeir gætu komist enn lengra í leiknum. En það er að koma nótt og ekki rétt að ræna sig friðsælum nætursvefni, ég ætla að reyna að vakna um miðja nótt til að spinna með Dandy og hinum skvísunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.10.2008 | 14:42
Konur í tiltekt...
Ætli það sé tilviljun að þeir tveir bankastjórar sem ráðnir hafa verið síðustu daga eru konur?
Mér finnst það ekki skipta máli af hvoru kyninu góður starfsmaður er en ég verð að viðurkenna að mér finnst það góð tilfinning að vita af vel menntuðum og örugglega mjög hæfum konum við stjórnvölinn við þessar aðstæður.
Nú þarf yfirsýn og hugarró, skipulag og hlý orð með fagmennskunni og dugnaðinum. Ég treysti konum afar vel til slíkra starfshátta.
Heima hjá mér er allavega oft leitað til mömmu þegar mikið liggur við ...
Gallsteinakonan er á heimleið - finnur mest til í öxlinni!!! Hún var víst fyllt af lofti og verkir í öxl algengur eftirkvilli eftir slíka loftfylli...
Og nú er ég búin að gera uppkastið að verkefninu sem ég á að skila á sunnudag - ætla heim að taka til áður en næsta atlaga verður gerð að verkinu.
![]() |
Birna verður væntanlega bankastjóri Glitnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar