Færsluflokkur: Bloggar
9.10.2008 | 21:18
Unglingaforeldrar
Var að koma af fundi með foreldrum í bekk örverpisins míns, fínn fundur með opinni og fínni umræðu. Við ákváðum að hittast fljótlega aftur til að styðja vel við starfið í bekknum og bera saman bækur okkar. Bekkurinn er líflegur og kjaftaglaður, en duglegur og skemmtilegur. Þau þurfa aðhald en um leið viðurkenningu, vandrataður þessi meðalvegur alltaf.
Englabossinn vinnur eins og vitleysingur 12 - 16 tíma á dag, sé hann rétt í mýflugumynd kvölds og morgna.
Frumburðurinn er að fara í aðgerð á morgun þar sem taka á gallblöðruna með hinum landsfræga gallsteini í... hringsóli læknaupplýsinga um landið er lokið í bili og læknarnir á Höfn, Egilsstöðum og í Reykjavík komið sér saman um að þetta sé lausnin.
Ég styð varaformanninn minn í hugmyndum hans um að eðlilegt sé að seðlabankastjórarnir segi af sér. Mér finnst að pólitískir hagmunir verði nú að víkja fyrir fagmennsku og þekkingu í þessari mikilvægu stofnun. Vandinn er ekkert hérumbil - hann er alvöru og á honum þarf að taka af fullum þunga, faglega, fumlaust og hlutlægt - án nokkurra hagsmunatengsla.
Ég er ánægð með viskiptaráðherrann okkar, mér finnst hann vita hvað hann er að segja, vera fumlaus, greina alvöru málsins og koma henni á framfæri en um leið líta björtum augum til framtíðar.
En nú er best að lesa grein um hvernig skóli án aðgreiningar getur unnið gegn félagslegri mismunun með öðru og reka á eftir gelgjunni elskulegri í náminu með hinni...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008 | 21:04
Ríkisvæðing
Ég verð að viðurkenna að ég átti ekki von á því að aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálunum yrði eins afgerandi og raunin varð. Nánast er hægt að tala um ríkisvæðingu bankakerfisins. Meira að segja kommúnistinn sem í mér blundar varð hissa. En ekki er hægt að segja annað en að nú gengu allir takt - pólitíkusar allra flokka, aðilar vinnumarkaðarins og fagmenn. Er nokkuð hægt að gera annað en treysta þessu fólki (það fór nú lítið fyrir konum í þessari umræðu!) og halda ró sinni án þess að stinga hausnum í sandinn.
Í skólanum í dag talaði Kristján Kristjánsson heimspekingur um það að Íslendingar segðu gjarnan "þetta reddast" á meðan Kínverjar segu "við verðum að halda andlitinu" - mér finnst fínt að blanda þessu saman - trúa því að þetta reddist allt með andlitið í réttum skorðum. Þannig held ég allavega að við verðum að kynna stöðuna fyrir börnunum okkar til að hindra óþarfa kvíðahnúta og óróleika. Börn eiga ekki að vera með peningaáhyggjur - það er allt í lagi að setja börn inn í aðstæður lífsins en ekki að leggja þeim óþarfa byrðar á herðar.
En við Guðbjörg Anna sitjum og drekkum gott kaffi og beilís með klaka, hlæjum svolítið og kryfjum lífsgátuna - gaman að eiga svona fullorðna dóttur sem hægt er að spjalla við um allt milli himins og jarðar og það sakar nú ekki að hún er hvorki illa gefin né leiðinleg...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.10.2008 | 11:39
Oft hefur samstarf verið nauðsynlegt en aldrei sem nú...
Gott að vita til þess að aðilar sem koma að efnahagslífinu séu að tala saman. Ákvarðanir örfárra í reykmettuðum bakherbergjum eiga ekki við núna...
Vona að aðilar komist að niðurstöðu sem þeir eru sáttir við og þar finnst mér stjórnarandstöðuflokkarinir eiga að vera með í ráðum svo allir vinni og gangi í takt.
Samvinna og samræður eru að mínu mati bestu aðferðirnar til að leysa vandamál þannig að lausn sé raunhæf og nothæf.
![]() |
Mætt snemma til funda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2008 | 09:52
Haust í gær og vetur í dag
Trúði vart eigin svefndrukknum augum klukkan sex í morgun - alhvít jörð á Héraði. Fallegt en vart tímabært, haustið má gjarnan vara lengur mín vegna. Það var því lúsast í ræktina með hugann fullan af því hvort tímabært væri að skipta yfir á naglana, held ég þrjóskist um á sumartúttunum eitthvað áfram...
Meðan ég puðaði á brettinu hlustaði ég á fréttir og vangaveltur um ástandið í efnahagsmálunum og þar með þjóðmálunum almennt - hugmynd Davíðs um þjóðstjórn er kannski ekki vitlaus - en eru afskipti hans af málum ekki að verða ágæt... eru ekki fleiri bankastjórar í Seðlabankanum sem örugglega hafa fullt eins mikið vit á málum og eru kannski hlutlausari og þar með faglegri í umfjöllun og verkum??? Davíð getur svo bara rætt pólitík við sitt fólk í Valhöll, hann er ekki lengur forstætisráðherra...
Skilaði stóru verkefni í gær - ætla því bara að dunda mér í dag við að lesa um hvernig menn hafa útfært hugmyndir um skóla án aðgreiningar út um heim svo ég geti verið þokkalega viskuleg í líflegum umræðum á netinu.
Þar eru allir sammála um það að skóli án aðgreiningar eða skóli fjölbreytileikans sé það sem eigi að vera en það er samt ekki veruleikinn. Breytingar í skólastarfi virðast gerast afar hægt - a.m.k. ef þær eru róttækar. Af hverju eru kennarar svona hræddir við að sleppa svolítið takinu og breyta til, leggja áherslu á að breyta skipulaginu svo meiri áhersla verði á nám en kennslu og að gleði og ánægja fái að ríkja í skólastofunum. Auðvitað verðum við að stjórna og hafa ákveðna þræði í hendi en við verðum líka að treysta því að krakkarnir læri án þess að við séum á herðunum á þeim stöðugt...
Sólin skín inn um gluggana hér í Vísindagörðunum á Egilsstöðum - snjórinn er á undanhaldi - bjartur dagur framundan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2008 | 08:18
Haust
Nú er haustlegt á Héraði, rafmagnslaust í nótt og vaðandi vatnsveður - í gær gránaði aðeins. Egilsstaðabændur eru að losa mykjukjallara sína, sá gjörningur breytir ilmflórunni á Egilsstöðum um stund.
Það er haustlegt í efnahagslífinu líka - þetta Glitinismál hefur örugglega fleiri en eina hlið og það að Davíð situr frammí með Geir afturí fær mann til að láta sér detta í hug að Davíð finnist að minnsta kosti ekki leiðinlegt að ná sér niður á "vini" sínum Jóni Ásgeiri. Er Davíð ekki að spila of stórt hlutverk í þessu máli? Hef lítið vit á málinu en hef einhverja tilfinningu fyrir því að það sé að koma fram að það er ekki gæfulegt þegar menn ælta að græða of mikið á of stuttum tíma.... eða eignast of mikið á of stuttum tíma...
Spinningtíminn í morgun var alvöru - Dandý ætlar greinilega að koma okkur í kjólinn fyrir jólin.
Í dag þarf ég að vinna markvisst að því að ljúka verkefni sem ég þarf að skila í kvöld. Búin að skrifa um menningarsálfræði og einstaklingsvæðingu - í dag eru það hugmyndir Bernstein um táknkerfi skólans og hversu misvel það hentar hinum mismunandi þjóðfélagshópum.
Síðdegis er svo bæjarstjórnarfundur þar sem hin ýmsu mál eru til umræðu - þið getið fylgst með honum í beinni kl. 17, aðgangur í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins.
Megið þið eiga góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.9.2008 | 10:34
SSA - þing á Djúpavogi
Var ásamt 11 öðrum fulltrúum Fljótsdalshéraðs á þingi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. föstudag og laugardag. Baldur Pálsson sá um að aka okkur á áfangastað - við fórum auðvitað Öxi en nutum útsýnisins lítið því veðrið var kolvitlaust.
Föstudagurinn var átakalítill. Kristján Möller, ráðherra sveitarstjórnar- og samgöngumála var með skýrt og fínt erindi um stöðuna í samgöngumálum í fjórðungnum og vangaveltur um stærð sveitarfélaga. Grétar Eysteinsson prófessor við HA var með vangaveltur um hvort Austurland ætti að verða eitt sveitarfélag - mér fannst hugleiðingar hans yfirborðskenndar og lítið greinandi og var því mjög ánægð með að samþykkt var á þinginu tillaga um að vera með málþing um sameiningarmál fyrir næsta aðalfund. Þingskjölum var vísað til nefnda og önnur mál afgreidd áður en skemmtidagskráin tók við.
Óvissuferðin varð heldur styttri en fyrirhugað var því veðrið var ekki upp á það besta - en Djúpavogsbúar búa frábærlega með sína Löngubúð, sem hýsir þennan fína móttökusal ásamt stofum þeirra Eysteins Jónssonar ráðherra og Ríkharðs Jónssonar myndhöggvara sem báðir eru ættaðir úr sveitarfélaginu. Boðið var upp á þjóðlegar veitingar hrátt hangikjöt, hákarl og harðfisk - frábært fæði með skemmtilegu spjalli við sveitarstjórnarmenn.
Maturinn í Hótel Framtíð var ekki af verri endanum - loðnan reykta frá Vopnafirði gómsæt og kannski það eftirminnilegasta á þessu frábæra veisluborði. Andlegt fóður var borið fram með því efnislega - viðurkenningar veittar, Hornfirðingar kvaddir og auðvitað skrafað við sessunauta. Upp úr miðnættinu hófst eitt fjörugasta ball sem ég hef verið á lengi og eftir þriggja tíma stanslaust úthald á dansgólfinu var skriðið í rúmið og sofið í fjóra tíma...
Laugardagurinn hófst með nefndarstörfum, ég valdi mér að vera í samgöngunefndinni enda starfandi í þeirri nefnd SSA á milli aðalfunda. Að mestu leyti var full eining í nefndinni um hin ýmsu hagsmunamál fjórðungsins á sviði samgangna og fjarskipta.
Jarðgangnamál var eina ágreiningsefnið. Ný áhersla Seyðfirðinga á jarðgöng til Héraðs sem annan áfanga í Miðausturgöngunum olli aðeins skjálfta hjá Vopnfirðingum og Fjarðabyggðamönnum.
Vopnfirðingar eru eðlilega orðnir þreyttir á því að áratuga baráttu þeirra, dyggilega studd af SSA, fyrir göngum undir Hellisheiði hefur engu skilað - þeir eru að vísu að fá miklar samgöngubætur í endurbótum á annarri vegtenginu núna - en það breytir ekki þörfinni fyrir göng til Héraðs. Þeir eru hræddir um að þessi nýja áhersla Seyðfirðinga á einföld göng til Héraðs skjóti þeirra göngum enn á frest.
Fjarðabyggðamenn eru aftur á móti ekki lengur hræddir um Norðfjarðargöngin svo þeir þora að lýsa yfir fullum stuðningi við Miðausturlandsgöngin sem tengja þeirra byggðir mjög vel saman svo og Seyðisfjörð. Það eru reyndar tvær hugmyndir uppi um Miðausturlandsgöngin og önnur þeirra gerir göng milli Seyðisfjarðar og Héraðs áfanga þessara metnaðarfullu hugmyndar um tengingu alls Miðausturlands með göngum. Hin gerir aftur á móti ráð fyrir því að Seyðisfjörður tengist Norðfirði í gegnum Mjóafjörð.
Ég get ekki annað en stutt Seyðfirðinga í baráttu þeirra fyrir göngum sem þeir hafa nú sammælst um að berjast fyrir til Héraðs. Seyðfirðingar hafa enga aðra leið að heiman landleiðina en Fjarðarheiði sem er hæsti fjallvegur á Íslandi og oft afar erfiður yfirferðar - þeir hafa beðið þolinmóðir en unnið heimavinnuna sína og meðal annars dregið vagninn í baráttunni fyrir Miðausturlandsgöngunum sem virðast bara alls ekki eiga upp á pallborðið hjá stjórnvöldum og þeir hafa því ákveðið að skipta um gír til að vinna þessu stóra hagsmunamáli sínu brautargengi. Barátta þeirra snýst um líf og dauða byggðalagsins þeirra.
Ég lærði mikið á þessu þingi - ég hlustaði talsvert og ræddi við fólk ,reyndi að skilja hin ýmsu sjónarmið og setja mig inn í þau, þó maður eigi sannfæringar og sterkar skoðanir er nauðsynlegt að skilja sannfæringar annarra og virða þær.
Ég virði t.d. skoðanir Fjarðabyggðamanna sem telja að Seyðfirðingar eigi meiri samleið með þeim atvinnulega séð vegna sjávarútvegsins og álversins og eigi því að leggja áherslu á samgöngubætur í þá átt - en ég tel að Seyðfirðingar sjálfir hljóti að vita best hverjir þeirra hagsmunir eru atvinnulega séð og ákvörðun um tengileið sé því þeirra og tek því afstöðu með þeim.
Við kvöddum Djúpavog síðdegis í glampandi sólskini - ætli nokkur bær á Íslandi sé byggður á fegurri stað?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.9.2008 | 09:45
Morgunganga í skóginum
Veðrið hér á Héraðinu er of gott til að hefja daginn á líkamsrækt, inni - ég dreif mig í skóginn og gekk einn stóran hring - notaði sviðið í útileikhúsinu til að teygja mig og strekkja...
Útivist og hreyfing er frábært start á deginum - hugsunin kemst á flug og dagsskipanin liggur fyrir.
Höfuðið er yfirfullt af spennandi námsefni sem ég er að lesa og út frá því finn ég að réttlætiskenndin svellur í brjóstinu...
Félagslegur mismunur og félagsleg mismunun er eitt af því sem ég var að lesa um í gær og er að reyna að setja þessi hugtök í samhengi við skóla án aðgreiningar og auðvitað eigin veruleika...
Auðvitað er félagslegur mismunur veruleiki og ekki gildishlaðinn - við erum sprottin upp úr mismunandi aðstæðum og erum alls ekki eins og kærum okkur ekki um það - en mismunun í krafti valds, peninga, kyns, kynþáttar, heilsu eða annars er allt annar handleggur - þar liggja "minnihlutahópar" afar vel við höggi og þar er það sem réttlætiskenndin fer að svella.
Erum við konur "minnihlutahópur"??? Ekki samkvæmt opinberum skilgreiningum - en launamunur kynjanna fer samt enn vaxandi....
Eiga ekki allir nemendur að fá að stunda nám við sitt hæfi?? Jú auðvitað er hið opinbera svar - en hver er veruleikinn??? Agavandamál eru að sliga kennara landsins því nemendur eru með verkefni sem þeir ráða ekki við og þeim leiðist svo að þeir verða að finna sér það til dundurs að hegða sér illa...
Skólinn er að nota orðræðu og viðmót sem hentar ekki ákveðnum hópi nemenda og notar þar með vald sitt til að mismuna nemendum...
Svona væri hægt að halda áfram lengi dags - en verkefnin bíða... megið þið eiga góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.9.2008 | 08:49
Fallegur haustdagur á Héraði
Dróst fram úr rúminu 5:40 og rétt náði hjóli til að geta spinningpúlað með stelpunum hjá Dandý. Dandý er greinilega að herða á okkur - ástandið á dömunum sem "skriðu" út út íþróttahúsinu upp úr 7 var skrautlegt...
Átti fína helgi í Reykjavík - í faðmi Samfylkingarfólks og fjölskyldunnar - Karen Rós verður 3ja ára á morgun svo haldið var upp á afmælið um helgina til að amma hin pólitíska gæti nýtt ferðina...
Veðrið í Reykjavík minnti mig á unglingsárin - þar sem haglél, rigning og sólargeislar ýmist börðu eða kysstu rúðurnar í Flensborg á laugardaginn - mundi ég eftir hugmyndinni um loðfóðraða regnkápu, með lausum loðfeldi og viðsnúanleg svo alltaf væri hægt að halda "lookinu" en farast samt ekki úr kulda og vosbúð...
Gæti skrifað langt mál um efnahagsmálin eftir skemmtilega og uppbyggilega umræðu um þann málaflokk á flokkstjórnarfundinum en læt nægja að vera sammála varaformanninum sem talaði um það í fréttum í gærkvöldi að við þurfum að fara að stíga skref - til að fá að vita hvort hægt sé að breyta um gjaldmiðil - og það er ekki eftir neinu að bíða...´
Maður finnur á börnunum sínum og barnabörnunum hvað tíminn líður hratt - að það skuli vera þrjú ár síðan ég var með krökkunum mínum úr ME í lífsleikniferð á Akureyri og fylgdist með fæðingu dótturdótturinnar úr fjarlægð og hentist síðan beint úr rútunni niður á Neskaupstað til að dást að kraftaverkinu sem minnti ótrúlega á annað kraftaverk tæpu 21 ári fyrr...
Ömmuhlutverkið er skemmtilega öðruvísi en mömmuhlutverkið - ábyrgðarmikið en samt getur maður leyft sér að vera svolítið kærulaus með....
En nú er alvaran að taka við í náminu - verkefni í báðum kúrsum í þessari viku...
Í dag er svo fundur í starfshópi um uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar og í kvöld ætla ég svo að vera fermingarstelpumamma, það er fundur um forvarnarmál í Fellabæ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.9.2008 | 08:25
Neytendamál
Var á skemmtilegum fundi með viðskiptaráðherra ágætum og fleira góðu fólki í gærkvöldi...
Fundurinn snerist um neytendamál sem ráðherra hefur ásamt sínu fólki gert að áherslumáli í sínu ráðuneyti og er það vel...
Rætt var um að efla þyrfti neytendavitund og þor fólks til að berjast fyrir rétti sínum bæði einstaklingslega og ekki síður að sýna samstöðu og berjast þannig gegn óeðlilegum verðhækkunum, gjöldum og fleiru.
Rut Magnúsdóttir var með stórskemmtilegt erindi um sína sýn á neytendamálin - hún talaði sem stórneytandi með stóra fjölskyldu og setti hlutina í skemmtilegt samhengi. Húsnæðislánin, olíuverðið og markaðssetning gagnvart börnum voru hennar áhersluatriði...
Þessi húsnæðislánamarkaður er ótrúlegur og óskiljanlegur - af hverju þarf núverandi verðbólga að hafa áhrif á lánahöfuðstól fólks eftir 40 ár????
Af hverju er það ekki verðbólga þess tíma sem þá ræður höfuðsstólnum???
Mér finnst sjálfsagt að við borgum leigu fyrir peningana sem við fáum lánaða og að verðbætur séu viðhafðar en mér finnst skrýtið að neytandinn þurfa að taka á sig alla ábyrgðina á verðbólgunni - væri ekki eðlilegt að þar tæki bankinn einhverja ábyrgð líka???
Við ræddum líka um að foreldrar og skólinn þyrftu að taka höndum saman um að gera krakkana okkar meðvitaðri sem neytendur og meðvitaðri um peningamál almennt...
Gott framtak hjá Björgvin að koma til fólksins í landinu með nýjar og ferskar hugmyndir sínar - hann er búinn að standa sig frábærlega og er með skýra stefnu sem hann vinnur ótrauður að. Hjá hans ráðuneyti er stefnumótun í fullum gangi - það mættu margir ráðherrar taka hann sér til fyrirmyndar, við nefnum engin nöfn en það byrjar á......
Nú ætla ég að koma örverpinu á fætur og gerast svo skólastelpa - það er gaman að vera úti á Þekkingarsetri að læra - margir sitja og læra eða eru að hlusta á fyrirlestra í fjarfundabúnaði - þannig að þó maður sé einn í bekk eru fínir möguleikar á spjalli í frímínútunum...
Njótum dagsins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.9.2008 | 11:27
Hvassviðri
Það er leiðindahvassviðri hérna - ekki ólíklegt að einhver myndarleg tré hafi lagst á hliðina hérna á Héraðinu líka.
Í gærmorgun þegar ég skaust yfir Fagradalinn með englabossann stóð LOGN á skilti Vegagerðarinnar - held að ég hafi aldrei séð þessa áletrun þarna áður - lognið á undan storminum greinilega...
Nágrannar mínir voru í því í morgun að hirða upp þvottinn okkar...
Ég varð að láta undan í þrjóskukeppninni við englabossann. Handboltabúningarnir sem ég notaði til að kenna honum á þvottavélina með, erum búnir að hanga til þerris í einhverjar vikur á svölunum - ég hef eitthvað tuðað og nöldrað en staðföst ekki tekið þá inn - en Kári stormur eyðilagði allt fyrir mér - búningarnir liggja nú í rúmi englabossans....
![]() |
Nokkur óveðursútköll í morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar