8.6.2009 | 18:58
Neikvæð umræða
Mér finnst vont þegar umræða á erfiðum tímum í lífi íslensku þjóðarinnar er notuð til að gera svartnættið enn svartara en það er og er notuð til að slökkva þá vonarneista sem lifa í þjóðinni um að við munum komast út úr erfiðleikatímabilinu sem við erum í.
Nokkrir stjórnarandstöðuþingmenn duttu í þann forarpoll í umræðunni í þinginu í dag - málefnanleg umræða um innihald samnings, vaxtaprósentu og fleira er eðlileg og í henni felst hið eðlilega aðhald sem stjórnarandstaða á að veita stjórnvöldum. En fullyrðingar um að heilbrigðisþjónusta og tryggingakerfi væru að komast á það stig að líf almennings sem veiktist væri í stórhættu stæðum við við skuldbindingar okkar til handa breskum og hollenskum innlánseigendum icesavereikninga. Hvað ætli þetta sama fólk myndi segja ef Íslendingar hefðu átt slíkar innistæður í erlendum bönkum við svipaðar aðstæður???
Enginn vill í raun greiða þessa rúma 600 milljarða - en - sem þjóð sem vill láta taka mark á sér á alþjóðavettvangi verður að vera trúverðug - það að standa við skuldbindingar er hluti af því.
Ég get því ekki séð annan möguleika en að borga - en vil um leið að allt sem mögulegt er verði gert til að hámarka eignir á móti, bæði bankans og eigenda hans og alls mögulegs réttlætis verði gætt.
Mér finnst að við sem sitjum á þingi og annars staðar við stjórnvöl eigum að gefa raunsanna mynd af ástandinu um leið og vinnum af því hörðum höndum að finna leiðir til að lágmarka skaðann og mér finnst hlutverk okkar líka vera að tala kjark í þjóðina okkar - óuppbyggilegt svartsýnisraus á ekki heima í okkar munnum.
Var að kaupa mér bókina Hrunið eftir Guðna Th Jóhannesson - kaflaheitin eru ekki mjög upplífgandi: óveðursský, brotsjór, rekald, skipbrot, tundurskeyti, neyðarkall, svikalogn, uppreisn og nýju landi náð? Síðasta kaflaheitið gefur þó ákveðna vonarglætu. Hlakka til að glugga í hana - held að hún sé á mannamáli.
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já ...ætla líka að lesa "Hrunið"!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 8.6.2009 kl. 21:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.