16.12.2007 | 23:24
Jólastúss
Aðventan er eiginlega eini tími ársins sem ég fæ almennilega húsmóðurtilfinningu. Frystirinn er að fyllast af gerbakstri, ís, hangikjöti, rjúpum, sörum..., ísskápurinn og bakaraofninn glansandi hreinir, börnin mikið heima því mamman á bænum er heima að stússa...
Nú situr hún Berglind Rós, litla barnið mitt, til að mynda við eldhúsborðið og skrifar á jólakort og pakkar inn jólagjöfum.... hún á að vera að reikna en jólastússið er að hennar mati mun meira aðkallandi, hún sendir 40 jólakort innan skólans og þeim á að skila á morgun svo ekki er seinna vænna að ljúka kortaskrifum...
Ég finn ekki alveg taktinn í jólakortaskrifum ennþá, það er best að reyna sherryaðferðina annað kvöld og athuga hvort andinn hrinur ekki yfir mig....
Við Berglind Rós fórum og keyptum okkur blágreni úr Hallormsstaðaskógi í Barra áðan, það er JÓLATRÉÐ segja börnin mín, furan sem ég keypti í fyrra hlaut ekki náð fyir augum þeirra svo nú mun ekki farið í neina tilraunastarfsemi á þessum vettvangi alveg á næstunni. Síðan fórum við öll í Ketilsstaði og bökuðum laufabrauð með ömmunni, það er nú alltaf ákveðin jólastemning við laufabrauðsbaksturinn...
Þessi vika verður svolítið pólitísk, þó jólin séu að koma..., Fjáraflsfundur á morgun, bæjarráð á þriðjudag og ýmis mál þarf að afgreiða fyrir jól svo einhver fundahöld verða áfram.
Það er merkilegt hversu flókið getur verið að taka pólitískar ákvarðanir, það eru margir aðilar sem þurfa að koma að málum, hagsmunaaðilar, embættismenn og pólitíkusar og oft þarf að fara nokkrar umferðir í þessu hringsóli..., stundum velti ég fyrir mér hvort við pólitíkusarnir þurfum að vera ákveðnari í skoðunum okkar og stefnu og reka mál hraðar áfram. Að sjálfsögðu á að bera mál undir þá aðila sem málið varðar en það getur komið fram ákveðinn vandræðagangur í ákvarðanatökunni ef hringsólað er of lengi, mér leiðist þetta hringsól og vil að teknar séu vitrænar ákvarðanir eins snemma og hægt er.
Jæja nú er best að fara að sofa svo ég vakni nú í spinningið í fyrramálið
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þurfa ekki svona orkuboltar eins þú fleiri tíma í sólarhringinn?
En í alvöru. Ég hef upplifað það hvað krakkarnir elska þetta bökunarstúss og þetta allt. Það er ómissandi hluti af jólastemmingunni að hjálpa mömmunni að baka.
Jón Halldór Guðmundsson, 18.12.2007 kl. 23:20
Já það er svo sannarlega hluti af jólastússi að baka o.þ.h. Ég er óvenju sein þetta árið ekki byrjuð að baka neitt nema laufabrauðið var bakað á þriðjudaginn heima hjá mér ásamt stórfjölsk. ( systrum, systarbörnum og mömmu). Ég er loksins búin með diplómuverkefnið mitt en það tók sko sinn toll af lífsorkunni. Við erum bara ruglaðar þessar konur sem stöndum í því að vera í pólitík, hugsa um heimili, 100% vinnu, skóla auk annarra félagsstarfa. Ef ég held áfram í námi þá hef ég heitið sjálfri mér því að það verður ekki gert með 100%. Það er gaman að standa í pólitík þegar maður hefur tíma fyrir hana eins og allt annað. Já ég er sammála þér sundum finnst manni að verið sé að teygja lopann þegar verið er að taka ýmsar ákvarðanir. Stundum getur svo sem berið gott að bíða með að taka ákvarðannir og skoða hlutini, en aðrar ákvarðanir þarf ekki að velta sér svona mikið upp úr eins og oft er gert.
Guðrún Katrín (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 10:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.