Færsluflokkur: Bloggar
22.1.2009 | 11:10
Nóg komið
En jafn sannfærð hef ég verið um að ekki megi leppa frjálshyggjuhugsun samstarfsflokksins og sú sannfæring færist í aukanna. Nú er svo komið að þolinmæðin er nánast þrotin, ekkert bendir til þess að samstarfsflokkurinn sé tilbúinn til að ráðast á vandann af fullri einurð, taka á ónýtum eftirlitsstofnunum, vinna gegn spillingu og taka hagsmuni þjóðarinnar fram yfir hagsmuni örfárra auðmanna.
Auðvitað á Samfylkingin sinn þátt í ósköpunum, við erum í ríkisstjórn. Við brugðumst í eftirlitshlutverkinu, ekki spurning, en við eigum ekki rótgróna hlutdeild í málinu eins og samstarfsflokkur okkar.
Samfylkingin hafa sýnt þolinmæði, barist áfram og reynt að beita áhrifum sínum án teljandi árangurs og því ekki annað í boði en að leita annarra leiða til að framfylgja stefnu jafnaðarmanna um óspillt, réttlátt samfélag.
Hættum samstarfinu áður en meiri skaði verður, vinnum þá breytingu á réttan hátt, gefum henni ákveðinn tíma - en samt ekki of langan og stefnum að kosningum sem allra fyrst.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.1.2009 | 22:45
Vinnubrögð fjölmiðla
Verð að viðurkenna að ég ergi mig stundum yfir vinnubrögðum fjölmiðlafólks. Mér finnst að fjölmiðlamenn eigi að vera gagnrýnir og hinum ýmsu hópum samfélagsins til aðhalds. Mér leiðist bara svo hroðalega þegar orð eru tekin úr einu samhengi og sett í annað eins og gerðist með orð mín í viðtali við fréttamann svæðisútvarpsins í dag. Ég nefndi skuldastöðu sveitarfélagsins 2008 og 2009 en notuð er skuldastaðan 2007 og 2008 og hvergi minnst á óhóflegan fjármagnskostnað í árferði ársins 2008, ef ég hefði verið spurð um þessi tvö ár hefði ég geta skýrt það.
Ég er sannfærð um að það er rétt ákvörðun hjá bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs að leita að hagstæðu lánsfjármagni til að halda framkvæmdum hér áfram a.m.k. að ljúka byggingu Egilsstaðaskóla og vonandi getum við farið í viðbyggingu Hádegishöfða líka svo og einhverjar gatnaframkvæmdir.
Í samfélagi okkar er verktaka - og byggingaiðnaður stór þáttur og þessir aðilar treysta á verkefni frá opinvberum aðilum núna á samdráttartímum - við getum ekki bara sest niður og beðið eftir að kreppan líði hjá með því atvinnuleysi sem því myndi fylgja.
Hæfileg bjartsýni verður að vera með skynseminni við völd á svona tímum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.1.2009 | 21:34
Mótmæli
Það er afar eðlilegt að mótmæla því sem manni finnst óréttlátt og heimskulegt, mér finnst eðlilegt að reitt og kvíðið fólk mótmæli ástandinu í þjóðfélaginu, á sama hátt og mér finnst skrílslæti og eyðileggingastarfsemi skemma fyrir góðum málstað. Vel ígrunduð mótmæli þar sem vitað er hverju er mótmælt og bent er á lausnir er uppbygglileg og til þess líkleg að skila bættu ástandi. Mér hefur aðeins fundist vanta að bent sé á lausnir sem ganga upp í mótmælum síðustu vikna. Mér finnst ég upplifa verulega múgsefjun þar sem kallað er á eittvað nýtt án hugsunar um hvað það þýðir og kostar.
Sterkt ákall á inngöngu í Evrópusambandið eins og það sé það sem bjargar okkur út úr ástandinu er að mínu mati stundum notað til að leiða athyglina frá hinu eiginlega vandamáli sem er rýning á kerfinu sem brast og eftirlitsskyldu ríkisins í því sambandi. Auðvitað eigum við að skoða umsókn í Evrópusambandið - en hvar eru samningsviðmiðin okkar - hverju ætlum við að ná fram í þessum viðræðum - það er ekki nóg að tala bara um sjávarútveginn og landbúnaðinn og að þar ætlum við hvergi að hvika í verndun okkar auðlinda, við þurfum að hugsa um hvað við fáum og hvað við látum af hendi á fordómalausan og faglegan hátt. Núna er þjóðin í heild sinni á valdi sterkra tilfinninga, reiði og dómharka svífa yfir íslenskri lögsögu eins og hún leggur sig - og við lítum kannski á ESB sem töfralausn á ýmsum vanda en óvin okkar númer eitt um leið. Förum að móta okkur skynsamlega stefnu, rólega og yfirvegað en þó ákveðið.
Er búin að liggja í flensu síðan á miðvikudagskvöldið - en er öll að koma til - og kann að meta það. Það er þakkarvert að eiga orku í verkefni daganna. Megið þið eiga góða helgi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.1.2009 | 08:48
Lífsmark á nýju ári
Gleðilegt ár kæru vinir - ætla bara að gefa frá mér örlítið lífsmark í dag. Er búin að eiga góða daga það sem af er þessu ári - mjög upptekin af náminu mínu og þá sérstaklega undirbúningi fyrir meistaraverkfnið mitt. Þar ætla ég að spjalla við krakka um stærðfærðinámið þeirra og skoða hvaða áhrif það hefur á sjálfsmynd þeirra og hvort það hefur öðruvísi áhrif en nám í öðrum greinum - mjög spennandi, það er búið að skrifa eitthvað um þetta mál sem ég get svo skoðað hvort mínar niðurstöður passa við.
En í dag er það svo pólitíkin að nýju á fullu gasi - bæjarráðsfundur í dag þar sem seinni umræða um fjárhagsáætlun fer fram og hún vonandi afgreidd til bæjarstjórnar til afgreiðslu þar næsta miðvikudag.
En nú kalla verkefni dagsins - megið þið eiga góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2008 | 10:50
Lærdómsríkt ár
Sit ein við eldhúsborðið - fólkið mitt sefur enn sætt og rótt. Er búin að snyrta hreindýrahrygginn sem við ætlum að borða í kvöld og ætla svo að pensla hann með dýrindis kryddblöndu af og til í dag.
Á þessum degi lítur maður gjarnan til baka yfir árið, þetta ár hefur á margan hátt verið mér og mínum gott. Miðhluti þess var þó talsvert mótaður af veikindum og síðan dauða Jóns Bergssonar, afans á þessum bæ, en góðar minningar og það að hafa haft tækifæri til að létta honum stundirnar undanfarin ár yljar öllum.
Hér voru teknar ákvarðanir sem þurfti að hætta við vegna breyttra aðstæðna - það átti að halda upp á hálfrar aldar afmæli mömmunnar á bænum - en þá var Jón mjög veikur svo hætt var við það - síðan ætluðum við að halda jól og áramót á Tenerife, vorum búin að panta ferð - en þá hrundi efnahagskerfið og óviturlegt að halda mikið af landi brott. Það er erfitt að hætta við svona hluti og manni finnst það hálfgert veikleikamerki - en í raun getur legið styrkur í því að halda ekki of fast í ákvarðanir heldur taka tillit og sýna sveigjanleika. Kannski verður þessu bara slegið saman, við gott tækifæri.
Ég er búin að læra mikið á þessu ári sem pólitíkus - ég er búin að þurfa að endurskoða ýmis mál aftir og aftur - ég er búin að þurfa að horfa gagnrýnum augum á flokkinn minn og forystu hans og ég er búin að sjá að það þarf stáltaugar og járnbrynju til að taka ekki nærri sér alla þá gagnrýni sem sárreitt og örvæntingarfullt fólk lætur vaða yfir þá sem standa við stjórnvölinn. Þegar ég var á haus í barnaverdarmálum hérna í den var mér sagt að maður ætti að fá sér kaffibolla áður en maður færi að tjá sig mikið um mál - ég held að þetta eigi líka við í pólitíkinni...
Ég held að flest okkar sem blöndum okkur í pólítík gerum það af því að við viljum hafa áhrif - við viljum ekki bara sitja og gagnrýna við eldhúsborðið heldur stíga fram og leggja okkar af mörkum til framgangs góðra mála. Til þess að slíkt verði þarf vald - og vald er vandmeðfarið - maður má aldrei missa sjónar af því af hverju maður er þarna og í umboði hvers - og það er nauðsynlegt að vera í góðu sambandi við umbjóðendur sína - upplýsa og hlusta - en á endanum er það valdhafinn sem þarf að taka ákvörðun og standa og falla með henni. Og síðan er hið opinbera umhverfi með öllum sínum stjórnsýslulegu krókum og kimum hræðilega seinvirkt svo almenningi finnst ekkert vera að gerast þó stöðugt sé verið að ýta á eftir og kippa í spotta, óþolandi kerfi - en verndar líka hagsmuni okkar allra.
En auðvitað hugsar maður stundum hvort það sé þess virði að verja öllum sínum tíma í pólitískt stúss þegar umræðan úti í samfélaginu rífur niður og gerir lítið úr því sem verið er að gera - væri ekki bara betra að fara að prjóna og sauma???
Í höfði mínu sem inniheldur hugsanir pólitíkuss, námsmanns, mömmu, ömmu, húsmóður, konu, dóttur, systur, vinkonu ... er hálfgert hvirfilbylsástand á þessum gamlársdegi - en ég veit af gamalli reynslu að þar lægir, húsmóður-, móður- og ömmustússið sem bíður mín í dag mun hjálpa til við það. - En svo er því nú þannig farið að algert logn í kolli leiðir ekki af sér margar hugmyndir svo það er um að gera að láta bara blása svolítið.
Kæru vinir, megi nýja árið færa ykkur gæfu og gleði, hamingju og hlátrasköll, hlakka til frekari samskipta á árinu 2009.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.12.2008 | 18:49
Á milli hátíða...
Það er ósköp notalegt að vera svona á milli hátíða - íbúðin skreytt og fín en samt ákveðinn hversdagleiki brostinn á...
Við erum búin að hafa það fínt um jólin, rjúpurnar brögðuðust frábærlega með sínu hefðbundna rauðrófusalati og öðru meðlæti. Jólahangikjötið var á sínum stað á jóladag og tertuboð í Gilsárteigi á annan í jólum brást ekki frekar en fyrri daginn.
Við Karen Rós erum búnar að viðra okkur svolítið bæði í gær og í dag og maður finnur að það gerir öllum kynslóðum sérstaklega gott að anda að sér fersku lofti þegar ofátið ræður ríkjum á flestum heimilum.
Þegar áramót nálgast fer maður ósjálfrátt að huga að því hvert skuli stefna á nýju ári svona í ljósi þess hvernig árið sem er að líða hefur verið. Maður veltir fyrir sér hvort maður vilji breyta einhverju, setja nýjar áherslur á einhverjum sviðum eða jafnvel kollvarpa einhverju. Ég held að það sé hollt að setjast niður við tímamót eins og áramót eru og fara aðeins yfir sviðið, persónulega, atvinnulega, pólitískt og víðar. Meira um þetta síðar.
Rósabúntið mitt er að búa til pizzu og svo verður slakað á við sjónvarpið í kvöld.
Megið þið eiga góða jólarest kæru lesendur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2008 | 23:32
Skata og samskipti
Verð að viðurkenna að mér finnst hin skemmtlega hefð að borða skötu á Þorláksmessu alveg frábær. Var svo heppin að okkur var boðið til Rannveigar vinkonu minnar í skötu ásamt fleiru góðu fólki - það er svo miklu skemmtilegra að vera í svolitlum hópi við skötuátið, en ein lítil fjölskylda úti í horni.... það þarf að ræða um skötuna, hvort hún sé nógu kæst og mann svíði ekki örugglega alveg niður í r......
Mamma kom austur um hádegisbilið í dag og hún og Helga systir og tvær dætur hennar gáfu sér góðan tíma til að fá sér að borða og spjalla, það var frábært. Systurdætur mínar eru báðar komnar í háskólanám, önnur í hótelstjórnun í Sviss og hin í félagsráðgjöf í Reykjavík og ég hitti þær ekki mjög oft, svo ég var mjög ánægð að fá svolítinn tíma með þeim í dag.
Eitthvað var svo þrifið og stússað í dag líka og ekki bíða nein stór verkefni morgundagsins svo það verður bara sofið út og verið í rólegheitunum á morgun. Þarf aðeins að fara í heimsóknir og bera út jólakort og svo bara að fara aðeins yfir og fínpússa.
Megi jólahátíðin verða ykkur gleðileg og þið umvafin þeim sem ykkur þykir vænst um.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.12.2008 | 08:01
Kort og pakkar
Það skemmtilegasta við jólin er að skrifa á jólakort og pakka inn jólagjöfum. Verð að viðurkenna að mér finnst líka gaman að opna jólapakka og lesa jólakort sem ég fæ send. Er að verða búin með þennan skemmtilegasta þátt desemberlífsins...
Þessi sérstaki tími þar sem maður hugsar til baka til vina og ættingja og sendir þeim jólakveðju gerir manni gott, það fer ákveðin upprifjun á lífi manns fram og maður man betur en ella að það er mikið af yndislegu fólki þarna úti sem manni þykir vænt um og þykir vænt um mann. Góð tilfinning - hin eiginlega jólatilfinning.
Ég er seinni en oft áður í jólaundirbúningnum - er samt ákveðin í að gera ýmislegt - ekki í stressi yfir því að ég verði að gera hitt og þetta. Ég ætla bara að gera það sem mig langar til að gera. Mig langar til að baka svoliítið meira og mig langar til að hafa fínt hjá mér. Það er allt annað að vinna verk með því hugarfari að þau séu fyrir mann sjálfan, ekki unnin af leiðinda skyldurækni. Í dag á að halda áfram að taka til og vonandi baka svolítið líka. Annars er stóra stelpan mín að koma og litla jólaprinsessan hún Karen Rós kemur auðvitað með mömmu sinni, það verður yndislegt að fá þær. Guðbjörg Anna er alger jarðýta þegar hún tekur sig til og sú litla er bara frábær....
Jæja nú ætla ég að ráðast á staflana sem ég flutti til í gær, megið þið eiga skemmtilegan jólaundirbúningsdag...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.12.2008 | 08:28
Jólin nálgast eins og óð fluga
Nú er bara vika til jóla - Egilsstaðir eru að verða verulega jólalegur bær, jólaljósin og snjófölin gefa sérstaklega notalegan og hátíðlegan blæ.
Á þessu heimili eru efnisleg aðalatriði jólanna tryggð - myndarlegt blágrenitré úr Hallormsstaðaskógi stendur á svölunum og rjúpurnar eru í frystinum. Hin huglægu aðalatriði sköpum við sjálf með viðhorfi okkar og væntumþykju. Þegar ég hljóp á brettinu áðan var ég einmitt að spá í hvað ég hlakkaði til að ræða tilefni jólanna við Karen Rós. Við spjölluðum lengi saman í síma í gærkvöldi og það er svo yndislegt hvað lífið er einfalt hjá svona þriggja ára krílum. Hún sagði mér að hún væri búin að fá pakka svo ég þyrfti ekkert að kaupa pakka handa henni!!! Það sama sagði hún þegar ég sagði henni að ég væri búin að kaupa handa henni jólakjól: "en amma ég á fínan kjól". Þetta viðhorf þarf að varðveita!
Ég sat og skrifaði á jólakort í gærkvöldi - er svo gamaldags að ég handskrifa inn í kortin og handskrifa utan á umslögin, og nýt þess að hugsa til vina og ættingja um leið og ég skrifa, börnin mín benda mér reglulega á að ég gæti sparað mikinn tíma á að prenta límmiða á umslögin og líma textann inn í kortin - en ég held að ég hætti bara að skrifa jólakort ef ég hef ekki tíma til að skrifa þau sjálf.
Var að hlusta á morgunútvarpið - þar talaði viskulegur maður - misstu af nafninu - en eftir hans pistil er ég afar hugsi. Af hverju er ekki hægt að fastsetja viðmið á verðbótum/verðtryggingu í ákveðnu prósentustigi næsta árið, til að auðvelda einstklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum að standa í skilum? Það er hægt að fastsetja gengið - Seðlabankinn ákveður hvert vaxtastigið á að vera - festum verðbæturnar í t.d. 6 % - þá vita allir að hverju þeir ganga - áætlanagerð er auðveldari og við missum ekki algerlega stjórn á fjármagnskostnaði.
Í dag er síðasti bæjarstjórnarfundur ársins, aðalatriði þess fundar er fyrri umræða um fjárhagsáætlun. Tillaga okkar hljóðar upp á afreiðslu hennar með rekstrarhalla - en veltufé frá rekstri er jákvætt. Hugsa að mörg sveitarfélög sem eitthvað hafa verið að framkvæma síðastliðin ár séu í þessari stöðu. Hunderfitt en við erum búin að vanda okkur og ég er sátt við áætlunina þó útkoman sé neikvæð.
En fram að fundinum ætla ég að halda áfram að skrifa jólakortin upp á minn gamaldags máta og fara og kaupa nokkrar jólagjafir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.12.2008 | 10:35
Hallormsstaðadagur
Í dag ætlar litla fjölskyldan í Kelduskógunum að fara inn í Hallormsstað og ná sér í blágrenijólatré og kíkja svo á sýninguna á Húsó svona í leiðinni. Sonur minn tilkynnti mér það um daginn að við gætum alveg eins skreytt kústskaft eins og að vera með furu aftur - okkar jólatré væri sko blágreni. Og þar sem einmitt er boðið upp á að höggva blágreni í skóginum okkar í dag þá gerum við það auðvitað. Við tökum ömmu á Ketilsstöðum með, hún þarf að kíkja á sýninguna, gamli vefnaðarkennarinn.
Í gær skruppum við á jólamarkaðinn í Barra og fengum okkur rússneska súpu, hangikjötssmakk og kakó og versluðum svolítið - þarna var annar hver Héraðsmaður og einhverjir Fjarðarmenn líka - skemmtilegt innskot í jólaundirbúninginn þessi Barramarkaður.
Ég lauk við annað en frágang og yfirlestur á verkefninu mínu í gær svo nú get ég farið að snúa mér að öðrum verkefnum sem fyrst og fremst snúast um að gera heimilið jólalegt, baka svolítið, skrifa á jólakort og ljúka við að kaupa jólagjafir. Einhver pólitísk verkefni bíða líka.
Ég var ánægð með Ingibjörgu Sólrúnu í gær - mér fannst hún tala við þjóðina, og ég er farin að líta á það sem eitt það mikilvægasta sem þarf að gera núna, fyrir utan markvissar og fumlausar rannsóknar - og björgunaraðgerðir þar sem leitað er að öllum kurlum, því sjálfsagt vantar talsvert á að þau séu öll komin til grafar í hamförunum miklu.
En núna ætla ég að leita að heimili mínu undir öllum stöflunum og hrúgunum
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar