18.6.2009 | 20:57
Eðlilegt samhengi
Mér finnst merkilegt að fylgjast með því hversu auðveldlega margir þingmenn stjórnarandstöðunnar taka hluta máls úr samhengi og nýta þennan hluta til að finna höggstað á málstað stjórnarinnar sem er þó fyrst og fremst í því að finna lausn á vanda sem var skapaður í stjórnartíð stjórnarandstöðuflokkanna í góðærinu. Það að ala á ótta um að við séum að fórna fiskimiðum og orkuauðlindum með samningum um Icesave er beinlínis ljótt og ekki til þess fallið að telja kjark í þjóðina - því ekkert slíkt er inni í myndinni, túlkunin er afbökun af verstu gerð...
Nú sit ég og hlusta á málflutning stjórnarandstöðunnar um frumvarp um kjararáð, innihald þess er það að engin laun hjá ríkinu verði hærri en laun forsætisráðherra. Stjórnarandstaðan setur sig upp á móti þessu - talar um lýðskrum og hættu á landflótta - landflóttinn kann að vera hætta - en íslenska ríkið hefur bara ekki efni á því að greiða hærri laun núna og getur ekki verið þekkt fyrir það um leið og það vinnur að samningi um takmarkaðar launahækkanir á almennum vinnumarkaði og skerðir jafnvel kjör lífeyrisþega og öryrkja.
Eitt frammíkallið sem ég greindi áðan þegar fjármálaráðherra var að kalla eftir samstöðu um ábyrga afstöðu í ríkisfjármálum - en við erum nú í stjórnarandstöðu - segir mikla sögu - stjórnarandstaðan telur elilegt aðhald sitt við stjórnarliðana felast í því að vera nær sífellt fúll á móti...
En allt er þetta hið ágætasta fólk sem í raun er á þingi til að vinna þjóðinni sem mest gagn - hin sterka hefð fyrir því að stjórn og stjórnarandstaða séu nánast andstæðir pólar virðist bara vera afar föst í sessi - en ég vildi að við gætum oftar tekið höndum saman á þessum erfiðu tímum...
En núna ætla ég að gista á Hótel Mömmu í nótt og vera til í slaginn aftur í fyrramálið
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl.
Mér finnst stjórnarandstaðan standa sig alveg hræðilega illa. Að upplifa þessa nýflokka jafn óábyrga og þeir hafa komið fram er ótrúlegt.
Þeir ráðast á skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og ef við tökum hátekjuskattinn, sem þeir eru auðvitað á móti. Hvar hefðu þeir borið niður í sínum aðgerðum? Nú er það svo að við þurfum ekki að spyrja Framsókn og Sjálfstæðisflokk. Þeir sýndu okkur hvar þeirra hjarta sló meðan þeir störfuðu saman. Það hjarta sló fyrir hina tekjuhærri og betur settu í þessu samfélagi.
Nú duga engin leikrit. Nú þarf að taka til.
Gangi þér og ykkur vel.
Jón Halldór Guðmundsson, 20.6.2009 kl. 11:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.