Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju með daginn

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki oft farið í kröfugöngu þennan dag, enda fátt um slíkar göngur hérna heima hjá mér.  Þegar ég var yngri og bjó í bænum var þessi dagur helgaður henni ömmu minni sem fædd var þennan dag og hélt alltaf upp á daginn með kaffi og tertum, það var flaggað fyrir ömmu um allan bæ - enda var hún ein af þessum hversdagshetjum sem kunni að velta krónunum og fara vel með þær.

Það er eðlilegt að það sé þungt í launþegasamtökum í dag - græðgi og misnotkun fárra hefur valdið miklum erfiðleikum margra - ekki síst þeirra sem minnst hafa handa á milli.  Það er eðlileg krafa að launþegar vilji fylgjast með hvernig rannsókn á hruninu gengur og hver eiginleg staða okkar er.  Með því að sýna fólki þá virðingu að halda því upplýstu er líklegra að semja megi um hófsamar launahækkanir á þessum flóknu tímum sem við lifum, að okkur flestum forspurðum.

Það er hálfgert gráviðri hér á Héraðinu í dag - en við mæðgur ætlum að kíkja á firmakeppni Freyfaxa, daman telur hryssu sína ekki í formi til að keppa svo hún ætlar bara að horfa á í fyrsta sinn. Ég ætla að kíkja á opnun sýningar um húsið á Skriðuklaustri þar uppfrá - og síðan þurfum við mæðgur að undirbúa suðurferð sem áætluð er í kvöld.  Hún ætlar að keppa á hesti á Selfossi en ég ætla að skoða betur nýja vinnustaðinn og málin sem þar bíða.

Megið þið eiga góðan 1. maí og góða langa helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í dag þakkar maður fyrir að njóta þeirra forréttinda að hafa atvinnu - þannig er nú málum háttað á Íslandi 1. maí 2009.

Rannveig Árna (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 14:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband