Leita í fréttum mbl.is

Kosningadagurinn runnin upp

Ég á spennandi dag framundan á hinu víðfeðma Austurlandi - eftir að hafa kosið legg ég í hann.  Neskaupsstaður og Vopnafjörður teljast afgreiddir staðir í bili - var í Neskaupsstað í gærkvöldi og á Vopnafirði í fyrradag. En ég byrja að borða súpu á Eskifirði kl. 11 og fikra mig svo suður eftir allt til Djúpavogs og enda á Egilsstöðum og kíki á Seyðisfjörð í kvöld. Hlakka til að hitta kjósendur á öllum þessum stöðum.

Við ætlum svo að skoða tölurnar á kosningaskrifstofunni á Hótel Héraði í kvöld - Seyðfirðingar og fleiri verða líka saman í kvöld að fylgjast með niðurstöðum.

Þessi kosningabarátta er búin að vera stutt og snörp en umfram allt lærdómsrík - ég er ánægð með að við Samfylkingarfólk höfum ekki dottið í þann fúla pytt að úthúða öðrum og eigna okkur annarra verk - það er léleg pólitík sem ber vott um örvæntingu og hroka. Virðing fyrir fólki skilar manni, til lengdar, lengst.

En nú er mér ekki til setunnar boðið - treysti ykkur ágætu lesendur til að fara á kjörstað og nýta atkvæðisréttinn - megið þið eiga góðan dag. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með árangurinn.

Þóra Björk

Þóra Björk Jónsdóttir (IP-tala skráð) 26.4.2009 kl. 09:17

2 Smámynd: Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

Til hamingju, þingkona góð.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, 26.4.2009 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband