Leita í fréttum mbl.is

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar kæru vinir og takk fyrir veturinn.  Ég var að koma úr góðri ferð á Vopnafjörð - þar hitti ég gamla nemendur, samstarfsfólk úr pólitíkinni, vopnfirska jafnaðarmenn og kannski einhverja sem ekki voru þeim megin í pólitíkinni...

Ég var mjög hrifin af því að koma á kaffisölu Slysavarnarfélagsins í Miklagarði og sjá hversu vel var mætt og hversu mikil samstaða virðist með fólkinu á staðnum.  Við grilluðum pylsur fyrir utan kosningaskrifstofuna og 100 pylsur hurfu eins og dögg fyrir sólu.  Vopnfirðingar eru duglegir og vinnusamir og berja ekki lóminn en ýmislegt brennur á þeim svo sem kostnaður við að eiga börn í framhaldsskóla, samgöngur og Evrópusambandið. 

Það þarf að stórefla sjóðinn sem greiðir jöfnunarframlag vegna náms - það er engan veginn ásættanlegt að foreldrar þurfi að greiða milljónir fyrir það að börn þeirra geti sótt nám í framhaldsskóla.  Misréttið er hróplegt eftir búsetu - það er himin og haf á milli þess að þurfa að senda barn sitt að heiman 16 ára á heimavist með tilheyrandi aðskilnaði og kostnaði eða að barn geti gengið í skólann og búið heima.

Vegurinn um Vopnafjarðarheiði er ekki í nokkrum takti við nútímann - eins gott að framkvæmdir við nýjan veg eru að hefjast - það er bara neyðarsímasamband mestan hluta leiðarinnar, auðvitað betra en ekkert en þó takmarkað.

Það er greinilegt að hræðsluáróður gagnvart stefnu Samfylkingarinnar í Evrópumálum eru áberandi - mér finnst við stöðugt vera að minna á að við ætlum bara að sækja um aðild og bera samninginn undir þjóðina - ekki að þrýsta okkur inn hvað sem tautar og raular - upplýst umræða og kynning á meðan viðræður standa yfir og eftir að samningsdrög liggja fyrir eru nauðsynlegar til að þjóðin geti tekið afstöðu.

Mér líður vel í þessari kosningabaráttu - þess fullviss að málstaðurinn er frábær og lífsnauðsynlegur, tveir dagar eftir og þeir verða nýttir vel.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Gleðilegt sumar.

Jón Halldór Guðmundsson, 23.4.2009 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband