8.6.2008 | 12:49
Norrænt samstarf
Framundan er spennandi dagar í Finnlandi, við erum að fara þrjár dömur frá Fljótsdalshéraði á vinabæjarmót í Aanakoski. Með okkur í för verða líka tveir fulltrúar frá Norræna félaginu. Ég hef aldrei farið á svona samkomu áður en hlakka mikið til, það norræna samstarf, sem við í Hallormsstaðskóla vorum í, var afar farsælt og ekki síst skemmtilegt. Óneitanlega erum við sérstaklega tengd þessum nágrönnum okkar, saga og menning samtengdar og sameiginlegar.
Við erum svo heppnar að hann Pelli er að fara með okkur, sem annar fulltrúi Norræna félagsins, hann er af finnskum ættum og því heimavanur í Finnlandi. Hann á húsbíl í Finnlandi og er búinn að bjóða okkur með sér akandi fram og til baka frá Helsinki - hann gerir það fyrir okkur að taka tvær mismunandi leiðir svo við sjáum sem mest... Þetta verður til þess að við fáum lengri tíma í Helsinki, en áður var rágert, það er afar spennandi því ég hef aldrei komið þangað áður en heyrt að þar sé margt áhugavert að skoða og upplifa...
En áður en lagt verður í hann til Helsinki ætlum við að funda um reiðvegi í tengslum við aðalskipulagsgerð, í kvöld, og síðan er bæjarráðsfundur hjá mér á morgun, gott að ljúka þeim verkefnum áður en farið er út...
Fór á opnunarhátíð, Á hreindýraslóð á Skjöldólfsstöðum í gærkvöldi, fín hátíð og margt fólk, þetta var hin besta skemmtun, Hákon Aðalsteinsson var veislustjóri og stóð sig frábærlega eins og reyndar allir sem þarna komu fram..., þessi staður er skemmtileg viðbót við ferðaþjónustu á svæðinu og verður gaman að fylgjast með þróun hans. Hreindýrin hafa fram að þessu kannski ekki verið notuð nógu mikið sem fjölbreyttur afþreyingarmöguleiki hér á heimaslóð þeirra, þarna er verið að vinna að þeirri hugmynd.
En nú bíða húsverkin og unglingarnir, lærið bíður í ísskápnum eftir að einhver grillmeistari hendi því á glóðirnar það þarf ekkert að vera á hefðbundnum matmálstíma....
.
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða ferð til Finnlands, kæra vinkona.
Hvað er klukkan í Finnlandi?
Jón Halldór Guðmundsson, 8.6.2008 kl. 15:05
Takk fyrir Jón minn. Klukkan er núna 03:13 í Finnlandi, þremur tímum á undan okkur.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 9.6.2008 kl. 00:14
Góða ferð!
Ég tók í fyrsta sinn á móti norrænum vinabæjargestum í fyrra og þetta var alveg ótrúlega skemmtilegt. Næsta ár verður vinabæjarmótið í Danmörku og ég vona að ég geti farið....
Sigþrúður Harðardóttir, 10.6.2008 kl. 14:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.