14.2.2008 | 20:10
Menntun er það sem lífið snýst um....
Í dag var verið að vinna að menntastefnu Fljótsdalshéraðs, ég var bara með í tvo tíma því samviskan var að naga mig - ekki er hægt að svíkja lærdómsþyrsta stærðfræðinema dag eftir dag ekki einu sinni í þágu menntastefnu..... Þessi vinna er afar spennandi en krefjandi, að þurfa að rökstyðja hvert orð sem maður segir, hafandi afar gaman af því að segja mörg orð, reynir á.....
Svo fór ég á kynningu á sameiginlegri framtíðarsýn Sambands sveitarfélaga, Skólastjórafélagsins og Kennarasambandsins um grunnskólann. Frábær vinna og fín kynning - vonandi verður þessi fína framtíðarsýn að veruleika, þá eru íslenskir grunnskólar, nemendur og kennarar í góðum málum.
Í allri þessari menntaumræðu erum við mikið að tala um samstarf heimila og skóla, mér finnst aðeins gæta vonleysis í þeirri umræðu, kennarar svolítið búnir að gefa önnum kafna foreldra upp á bátinn og foreldrar ekki alltaf nógu hressir með skólann...., ég held að þarna gæti ákveðins misskilnings. Það vilja allir foreldrar að börnin þeirra hegði sér vel og læri mikið í skólanum en vilja jafnframt að skólarnir sinni englabossunum þeirra vel, auðveldi þeim námið og leiðbeini þeim með samskipti. Vantar ekki fyrst og fremst skýra verka- og ábyrgðaskiptingu. Foreldrar bera ábyrgð á uppeldi en skólinn á skipulagningu náms??? Allavega megum við ekki gefast upp - þetta samstarf á jafnréttisgrundvelli getur skipt sköpum fyrir farsæla skólagöngu barns....
En núna ætla ég að fara að hitta gefandi konur og spjalla við þær í svona klukkutíma, vonandi get ég verið svolítið gefandi líka...
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Foreldrastarfið er svo mikilvægt og það er nauðsynlegt að tengsl foreldra og skóla séu jákvæð og góð. Mér fannst svo gott sem fyrrum framkvæmdstjóri Heimilis og skóla sagði "Þú ert kannski ekki alltaf ánægð með skólann en í návist barna þinna skaltu tala um hann eins og tengdamömmu þína. Þú ert kannski ekki alltaf sammála tengdamömmu en mundu að hún er amma barnanna þinn."
Mér fannst alveg nauðsynlegt að taka þátt í foreldrastarfinu þegar dætur mínar voru á Hallormsstað og það er líka svo góður vettvangur til að kynnast foreldrum annara barna og efla þannig gott net í kringum börnin. Veitir nú ekki af því á þessum síðustu og verstu.
Minni þig á skemmtilegrakvennahádegisverðinn á Nielsen sjáumst.
Er svo ekki stelpukvöld hjá þér á morgun? Mæti með popp og kók
Rannveig Árna (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.