Leita í fréttum mbl.is

Gyðja í skóginum

Nú er hátíð á Héraði, hátíðin okkar kallast Ormsteiti. Það er ein af þessum frábæru konum sem skipuleggur og stjórnar hátíðinni, konan heitir Lára Vilbergsdóttir og á skilið að fá orðu fyrir verk sitt...

Í dag var Hallormsstaðadagur, ég fór á hluta skógardagskrárinnar, tónleika með Eyvöru, þeir voru magnaðir, Eyvör er mögnuð, eiginlega einstaklega mögnuð, skógurinn er magnaður svo úr varð blanda sem snerti mann djúpt. Ég heyri enn trumbusláttinn...

Á morgun er fyrsti kennarafundurinn í ME á þessu skólaári, skólinn hefst svo á miðvikudaginn, skólinn er að hefjast, spennandi en samt dálítið skrýtið að sumarið sé búið.  Kom það einhvern tíma??? En nú eru suðvestanáttir í kortunum svo haustið virðist ætla að verða okkur ljúft.

Ég kveikti á kertum í kvöld, það sýnir líka að haustið er að koma, dulúð haustsins er spennandi, hvað ætli þetta haust beri í skauti sínu???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég vona að við fáum "indiansummer" á Héraði, það eru engin haust fegurri. Það er líklega það sama og sumarauki s.k.v. gamalli merkingu þess orðs.

Eivör er tónlistarmaður á heimsmælikvarða og það að láta hana reka á fjörur okkar er eitt af því sem æðri máttarvöld hafa gert til að dekra við Íslendinga.

Rannveig (IP-tala skráð) 20.8.2007 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband