Leita í fréttum mbl.is

Aukin misskipting

Vorskýrsla hagdeildar ASÍ var kynnt í gær. Þar kemur í ljós að ríkisvaldið er alls ekki að standa sig í því að nýta þær leiðir sem það hefur með skattkerfinu til að jafna kjör fólks. Skattbyrðin er mest hjá þeim sem hafa lágar og meðal tekjur því enn er það skattaprósentan sem er lækkuð en skattleysismörk ekki hækkuð.  10% fjármagnstekjuskattur gagnast ekki vel þeim sem ekkert fjármagn eiga...., og svo mætti lengi telja.... Jöfnuður er það sem íslensk alþýða þarf á að halda...

Við Einar heimsóttum nokkra vinnustaði á Egilsstöðum í gær og brunuðum svo á Borgarfjörð til að hitta Borgfirðinga og ræða við þá um pólitík.  Sáum mjaldinn í Njarðvík því miður ekki. Á Borgarfirði ræddum við mest samgöngu - og atvinnumál, Borgfirðingar eru bjartsýnir að eðlisfari en langeygir eftir samgöngubótum.

Fundurinn var haldinn í fallegu húsi, Vinamynni, sem hýsir félagsaðstaðu eldri borgara, húsið er gjöf frá Borgfirðingi sem arfleiddi félag eldri borgara á staðnum að eigum sínum.  Veitingarnar voru frábærar framreiddar af henni Kristínu í Framnesi.  Mér leið vel á leiðinni heim, rík að skemmtilegum samskiptum við gott og duglegt fólk.

Í dag ætlum við að heimsækja sjúkrahúsið á Egilsstöðum og gefa Reyðfirðingum kakó og kleinur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hilda Jana Gísladóttir

Þið standið ykkur vel Jónína örugglega mikið fjör hjá ykkur fyrir austan....

Hilda Jana Gísladóttir, 4.5.2007 kl. 11:41

2 identicon

Ég er búin að suða um það í mörg ár að eina vitið sé að hækka skattleysismörkin.

Þegar ég bjó á Borgarfirði var ég heimagangur í Vinaminni hjá Stínu og Fúsa en það eru mest hvunndagshetjur sem ég hef kynnst. Þeirra Vinaminni stóð niður við Svínalæk og brann 1988.

Rannveig (IP-tala skráð) 4.5.2007 kl. 11:44

3 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Rannveig mín - þá ertu búin að finna flokk til að kjósa með sem þú átt samleið með....

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 6.5.2007 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband