Færsluflokkur: Bloggar
23.9.2009 | 11:58
Stóra kjördæmið mitt
Núna um hádegisbil munum við mæðgur setjast upp í okkar gamla góða avensis og aka heim til okkar í Egilsstaði - við reiknum okkur í það 7 tíma ef Öxi er ekki komin í vetrarbúning annars þurfum við víst 8.
Það er stórmerkilegt að upplifa það árið 2009 að hringvegurinn, þjóðvegur 1 er enn ekki fullkláraður - enn eru malarkaflar og einbreiðar brýr veruleiki á aðalþjóðvegi Íslands - mér finnst þarna eitthvað hafa brugðist í forgangsröðun - það getur ekki verið eðlilegt að fáfarnar stofnbrautir eru fulluppbyggðar á allan hátt meðan þetta er veruleikinn á hringveginum. Austurland hefur greinilega orðið útundan í vegaframkvæmdum - sennilega vegna fjarlægðarinnar frá Reykjavík - mér finnst enginn geta útskýrt það fyrir mér hvers vegna staðan er þessi - en kjördæmahagsmunir koma sterkt upp í hugann þó enginn vilji viðurkenna slíkt.
Mér finnst við, ríkisvaldið, þurfa almennt að fara að forgangsraða - setja okkur framtíðarsýn og hvika síðan ekki frá henni þótt stundarhagsmunir geti ruglað menn í ríminu. Framtíðarsýn í samgöngumálum er til og er allra góðra gjalda verð - en það vantar kannski einhverjar blaðsíður í hana.
En nú er ég að fara í eina af mínu mörgum vettvangskönnunum um þjóðveg eitt og er ekki til setunnar boðið þó mig langi til að skrifa um hjúkrunarheimili líka eftir fund um þau mál í morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.9.2009 | 11:51
Námslánin
Ákvörðun menntamálaráðherra og félagsmálaráðherra þess efnis að hækka framfærslugrunn lánanna um 20 % er til mikilla bóta fyrir námsmenn og fjölskyldur þeirra.
Ég spurði menntamálaráðherra um þetta mál þann 15. júní og er ánægð með að hafa spurt með góðum árangri um mikilvægan þátt velferðar og menntunar.
http://www.althingi.is/dba-bin/bferil.pl?ltg=137&mnr=206
Þetta er áfangasigur - en við þurfum að halda áfram að vinna í þessum málaflokki þannig að við endum á eðlilegum mánaðargreiðslum til námsmanna og spörum þannig mikilvægar fjárhæðir til í greiðslu dýrra yfirdráttavaxta sem nýtast þá námsmönnum til aukinna lífsgæða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.9.2009 | 20:17
Heimilisöryggi
Margir tjá sig núna um skuldir heimilanna, eðlilega, því ljóst er að þær eru að sliga margar fjölskyldur og ógna heimilisöryggi barna og ungmenna.
Við þessum vanda er engin töfralausn til - en það er afar mikilvægt að við stjórnmálamenn hlustum vel og tölum við fólk á jafnréttisgrunni - tölum kjark í fólk og sýnum síðan fram á að eitthvað er að gerast.
Það er beinlínis ljótt að gefa fólki falskar vonir um flatan niðurskurð skulda á þessarri stundu, en það er sjálfsagt að tala um niðurfellingu skulda hjá þeim sem illa standa. Afföll lánasafna á að nota til heilla fyrir íslensk heimili - miklu fremur en til að bjarga skúrkum.
Mér finnst að það þurfi að búa til alveg nýtt húsnæðislánakerfi um leið og sú leið að leigja sér öruggt húsnæði er kynnt vel og henni unnið fylgi. Þannig ættu allir sem standast eðlilegt greiðslumat að geta einu sinni fengið lán til að búa sér og sínum öruggt heimili, án verðtryggingar og með algerum lágmarksvöxtum. Þetta kerfi ætti að vera opið þeim sem þegar hafa tekið lán til að fá ákveðna leiðréttingu, einu sinni. Mér finnst að við ættum að horfa þannig til framtíðar og láta skoða svona kerfi fremur en að lappa upp á handónýtt kerfi sem við höfum sætt okkur við allt of lengi.
Ég held að þau úrræði sem eru til staðar - greiðsluaðlögun, frysting og lenging séu í raun mjög góð - en þau eru alltof flókin og krefjast of mikils af kvíðnum skuldurum.
Mér sýnist lánadrottnarnir líka vera að vakna og sjá að ekki er óeðlilegt að þeir taki á sig hluta af þeim byrðum sem hrunið batt einhliða á skuldara við hrunið - það er þeirra hagur að þeir sem skulda geti borgað áfram fremur en að vanskil og yfirtaka eigna verði veruleikinn.
Tölum kjark í hvert annað um leið og við veitum stjórnvöldum og lánastofnunum gott aðhald.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.8.2009 | 20:38
Hvítþvegnir frjálshyggjumenn
Ég verð að viðurkenna að mér leið svolítið eins og í skriftartíma í þingsal í dag. Veitt hafði verið forskrift sem allir sjálfstæðismenn fylgdu vandlega: "Samningurinn er alfarið á ábyrgð núverandi stjórnvalda og sjálfstæðismenn hafa bjargað því sem bjargað varð með fyrirvörum við hann."
Ætli þetta annars um margt ágæta fólk trúi því í alvöru að það beri enga ábyrgð á því að við þurfum að semja um Icesave, eftir forskrift sem Geir Haarde gaf í desember og ætli þau læri aldrei að meta aðra vinnu en sína eigin.
Hvernig ætli staðan væri ef þeir væru enn við stjórnvölinn???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.8.2009 | 09:24
Það er eðlilegt fyrir ungt fólk að vera í skóla
Það er skelfilegt að heyra um fjölskyldur sem ekki hafa efni á að kaupa námsgögn handa börnum sínum.
En ég trúi ekki öðru en að slíkt megi leysa því það er nú þannig að á okkar tímum er eðlilegt fyrir ungmenni að vera í skóla a.m.k. til 18 ára aldurs.
Mér finnst mjög líklegt að krakkar, skólar, útgáfufyrirtæki, verslanir og almenningur væru til í að leggja þessu þarfa máli lið - það er bara spurning um hver væri til í að halda utan um aðgerðina.
Ég veit t.d. um nokkrar kennslubækur sem dagað hafa uppi heima hjá mér sem enn eru notaðar í skólum sem við værum svo til í að leggja af mörkum.
Ég sæi líka fyrir mér að börn og unglingar tækju að sér vin sem þau hjálpuðu með ritföng. Það eru margar leiðir til þó þær ráðist auðvitað ekki að rót vandans. En á erfiðum tímum er samstaðan góð og margir eru til í að leggja hönd á plóg.
En auðvitað skiptir öllu máli að hjálpa öllum til sjálfshjálpar svo plástursaðgerðir sem þessar þurfi ekki að vera á dagskrá.
Við verðum að gæta þess að búa ekki til kynslóð, sem hefur alla burði til þess að bjarga sér þó aðstæður hamli því um hríð, sem sest bara niður ráðalaus og bíður eftir því að björgin berist.
Höldum fast í sjálfsbjargarviðleitni og dugnað um leið og við viðurkennum að aðstæður geta svo sannarlega verið þannig fyrir suma og tímabundið að sjálfsagt er að leita sér aðstoðar og veita aðstoð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2009 | 17:37
Viljum við fá 2007 aftur?
Mér er létt að Icesavemálið illræmda er komið í jákvæðan farveg og vona svo sannarlega að við sjáum nú fyrir endann á umræðunni um það mál. Mér finnst að með því og endurreisn bankanna séum við komin með grunn til að byggja endurreisn heimila og fyrirtækja á.
Lánsfé ætti nú að liggja fyrir til góðra verkefna þó ég voni að ekki verði lánað eins taumlaust og endalaust og gert var á árunum 2005 - 2008 - þar eins og víða annars staðar er meðalhófið best.
Það er ljóst að mörg heimili eru í miklum vanda og eiga erfitt með að standa við skuldbindingar sínar - nú þegar hefur verið brugðist við að einhverju leyti en líklegt er að grípa þurfi til fleiri ráða til að tryggja íslenskum fjölskyldum heimilisöryggi og eðlilega velferð.
Mér er það mikið hjartans mál að íbúðalánakerfi landsins verði endurskoðað frá grunni svo það sé ekki óeðlilega erfitt fyrir fjölskyldur að tryggja sér heimilisöryggi, því miður er ekki tímabært að fara í þá vinnu af fullu kappi ennþá en sjálfsagt að byrja strax að leita leiða.
En staðan nú er þannig að fjöldi manns var búið að þenja greiðslubyrði sína út á ystu nöf fyrir hrun og lenti því í miklum vanda þegar verðbólgan fór upp úr öllu valdi og krónan okkar varð harla lítils virði. En eins og ég hef sagt hér áður vissum við auðvitað af því að slíkt gat gerst og tókum því áhættu - það veit ég best sjálf því ég tók 100% íbúðalán 2005.
Auðvitað væri ósköp gott að fá afskrifað hluta af þessum lánum - en ég er algerlega andsnúin því að það sama verði látið yfir alla ganga og töfralausnum beitt. Aðstoðum þá sem þurfa á því að halda og vinnum að því að grundvöllur fyrir verulegum vaxtalækkunum og minnkandi verðbólgu verði til og verði stöðugur svo við getum farið að tala um afnám verðbóta og nýtt íbúðalánakerfi án verðtryggingar.
Árferði eins og var 2007 er ekki að koma á næstunni - en við getum komist vel af með þann frábæra mannauð sem til eu í þessu landi og þær auðlindir sem þjóðin á.
Við þurfum að endurskoða neyslumynstur okkar og viðmið á ýmsum sviðum - það er erfitt og óréttlátt - en því geta fylgt góð gildi og nýjar heilbrigðar venjur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2009 | 11:28
Með framrétta hönd...
Formaður fjárlaganefndar hefur rétt fram sáttahönd og framlengt hana margoft til að freista þess að ná samstöðu í Icesave málinu illræmda - stjórnarliðar og stjórnarandstaða hafa gætt þess að slá ekki á höndina - beðið um nýjar framlengingar í ákvarðanafælni sinni og hræðslu við að horfast í augu við þá óþægilegu en óumflýjanlegu staðreynd að við verðum að standa við þessar skuldbindingar til að vera ekki ómerkingar í samstarfi þjóða með tilheyrandi afleiðingum sem eru ekki til þess fallnar að bjarga atvinnulífi okkar og efnahagslífi.
Ég er orðin leið á þessu drætti og útúrsnúningum og vill fara að fara í það af fullri einurð að vinna málið á Alþingi - ég er hreykin af því að flokkurinn minn sýnir ábyrga afstöðu til þessa skelfilega máls og kvikar hvergi frá því að taka erfiða ákvörðun - og um leið finn ég til með samstarfsflokki okkar sem á erfitt með að finna jafnvægið.
Gömlu íhaldsflokkarnir leika sér eins og ábyrgðarlausir smástrákar á stutbuxum og því ekkert mark á þeim takandi - hver hefur heyrt þá tala í lausnum í þessu máli??? Ekki hún ég....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2009 | 10:03
Sérstök verslunarmannahelgi
Verslunarmannahelgarinnar 2009 mun verða minnst hjá mörgum sem helgarinnar sem Eva Joly skrifaði það sem margir hafa hugsað. Meðferð stórþjóða á smáþjóð í hafinu í norðri og stórgallað götótt, regluverk Evrópusambandsins, þegar kemur að atburðum í efnahagslífi eins og urðu á Íslandi í fyrrahaust, eru hennar yrkisefni þessa helgina.
Mér fannst frábært að lesa þessa grein og finna að við eigum okkur málsvara sem talar tæpitungulaust. Baráttuandinn í brjóstinu lifnaði við - ekki þannig að hann fari að öskra - borgum ekki, borgum ekki - heldur frekar þannig að hann fyllist stolti og segir: við stöndum við okkar, en gerum allt sem hægt þegar við höfum náð fótfestu og byggt stoðirnar undir endurreisnina til að sýna að við erum trúverðug og baráttuglöð og látum ekki núa okkur því endalaust um nasir að við höfum farið illa að ráði okkar - útrásarvíkingarnir verða bara að taka það á sig.
Við hin íslenska þjóð ætlum að standa stolt í báða fætur eftir að hafa sýnt að við hlaupumst ekki undan merkjum - þannig að stórþjóðirnar sjái að ekki þarf að tugta okkur til eins og óþekka krakka, þannig eigum við möguleika á að fá endurskoðunarákvæðið virkjað okkur í hag.
Kaupþingsmálið var svo til að kóróna tímana sem við upplifum - og þá sérstaklega að þar á bæ skyldu menn láta sér detta til hugar að fara fram á lögbann á fréttaflutning Rúv - ef eitthvað gat virkað sem olía á eld var það slík beiðni. Upplýsingarnar sem fram komu voru nóg þó ekki væri reynt að draga þær til baka líka. Siðferði í íslensku efnahagslífi hefur greinilega ekki verið til frá 2002 og fram á þennan dag - nú þarf að vinna að því hratt og örugglega að búa það til með tilheyrandi óleku regluverki.
Ættar- og vinatengsl virðast allsstaðar vefjast inn í íslenskan veruleika með tilheyrandi neikvæðum áhrifum og tortryggni - nú þarf að fara að hafa skráningu og umsóknir eins og í hrossaræktinni þar sem ekki þykir gott nema minnst þrír ættliðir forfeðra séu skráðir þar sem geta á málsmetandi hrossa. Til er frábær vefur þar sem leita má upplýsinga um ættir hrossa - Worldfengur. Ætli verði ekki að búa til Icevef - þar sem hægt er að leita að tengslum áður en skipað er í stjórnir og störf til að tryggja að siðferði verði smám saman til í íslensku efnahagslífi á ný?
En svona prívat átti ég skemmtilega verslunarmannahelgi með minni litlu stórfjölskyldu, mömmu minnar megin - en hún var nánast öll samankomin á Héraði þessa helgi, frábært að sjá fjölskylduna stækka með mökum og nýrri kynslóð.
Bloggar | Breytt 4.8.2009 kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.7.2009 | 10:01
Góð staða við erfiðar aðstæður
Ég verð að viðurkenna að þetta er betri staða en ég hafði gert ráð fyrir - ríkisstjórn sem hefur staðið í stórhreingerningum svo vikum skiptir með tilheyrandi sársaukafullum niðurskurði og skattahækkunum - er fátt að gera til að afla sér vinsælda.
En þjóðin er raunsæ og veit að verið er að vinna nauðsynleg verk miðað við aðstæður.
Það væri óneitanlega fróðlegt að sjá frestarana miklu stjórna landinu núna, með neikvæðar raddir framsóknar og borgara í bakraddakór - með frestunum á erfiðum ákvörðunum yrðum við örugglega vel sett - eða hvað????
![]() |
Ríkisstjórnin með 43% stuðning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.7.2009 | 22:26
Vikan framundan
Nú er fundahlé á þinginu til að skoða megi Icesave enn betur áður en málið verður afgreitt. Vonandi tekst að afgreiða það fyrir miðjan ágúst - ég held að þingið þurfi að fá sumarleyfi í nokkrar vikur, þar hefur verið mikið álag síðan í vor og því nauðsynlegt fyrir þingmenn og starfsmenn þingsins að hvíla líkama og starf fyrir næstu törn.
Icesavemálið er, eins og ég hef sagt hér áður, hið versta mál - samningurinn sem liggur fyrir er í raun nauðarsamningur - sem enginn vill í raun greiða - enda málið hið versta og óréttlátasta - en ég sé ekki aðra leið en að gangast við þessum samningi með ákveðnum fyrirvörum um gjaldþol okkar og eðlilegar samskiptareglur þjóða á meðal. Við verðum að fara að ljúka þessu máli til að trúverðugleiki okkar verði marktækur meðal þjóða og hægt sé að fara að tryggja fjármagn erlendis frá svo eðlileg atvinnuuppbygging geti farið af stað af fullum krafti - þannig sköpum við verðmæti til að viðhalda uppbyggingunni, greiða lán og viðhalda velferðarkerfinu.
Mörg önnur mál eru í gangi í þinginu - eitt þeirra er frumvarp til laga um Bankasýslu ríkisins sem er enn eitt málið sem er ekki óskabarn - en í ljósi ástandsins þar sem stór hluti fjármálafyrirtækja landsins verða í eigu ríkisins er nauðsynlegt að vista þessa eignahluta og sýsla með þá á ákveðnum stað með ábyrgum hætti. Frjálshyggjuöflin á Alþingi eru afar erfið í þessu máli eins og fleirum - tafir, frestun, þóf og seinkun einkennir um margt málflutning Íhaldsins sem notar fagmennsku sem yfirskin yfir ákvarðanafælnina og frestunaráráttuna. Aftur og aftur leikur stjórnarandstaðan þann leik að þykjast vilja vera með í málum ef þessar upplýsinigar koma fram og ef málið verður skoðað betur - en þegar komið hefur verið til móts við óskir þeirra, springa þeir á limminu og vilja ekki vera með - í besta falli segjast þeir ekki þvælast fyrir... og svo kenna þeir stjórnarliðum um að ekki séu notuð gegnsæ og trúverðug vinnubrögð... mér leiðist þessi málflutningur skelfilega - við megum ekki vera að því að bíða og sjá til - við þurfum að ljúka grunnvinnunni til að geta farið að byggja upp...
Mér til skemmtunar fór ég á Bræðsluna á laugardaginn og skemmti mér konunglega - Borgarfjörður skartaði sínu fegursta - bæði náttúra og mannlíf - einstakt og eftirminnilegt
Ég hlakka til að heimsækja Dalvík vikuna eftir verslunarmannahelgi - þar á að vígja menningarhús 4. ágúst og svo er ég ákveðin í að prófa fiskidaginn mikla í ár, skilst ég geti náð handverkssýningu á Hrafnagili í sama slagnum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar