28.6.2009 | 22:06
Ferðast innanlands
Það virðist strax vera að koma í ljós að landinn hefur ákveðið að ferðast um eigið land þetta sumarið - það er frábært til þess að hugsa að ferðaþjónustan vítt og breitt um landið mun vaxa og dafna við þá ákvörðun.
Ég var uppi á Hallormsstað í gærkvöldi og þar var tjald við hjólhýsi í Atlavík og upplifunin var svipuð og þegar ég fór í Evrópuferð með vinum mínum sumrin 1980 og 1981 - þar sem gist var á hinum ýmsu tjaldstæðum í mörgum löndum - stuttbuxur og stuttermabolir um sjöleytið minntu óneitanlega á útlönd.
Ég var á ferð með norrænum vinum sem voru hér á vinabæjamóti og það var gaman að vera með þeim í að upplifa Ísland, náttúru, sérstöðu og íslenskt lambakjöt hjá Þráni á Hótel Hallormsstað. Þessir norrænu vinir yfirgáfu síðan Fljótsdalshérað í dag og ætluðu aðeins að skoða höfuðborgina áður en þeir héldu heim á leið - maður finnur óneitanlega fyrir því hversu tengdur maður er hinum norrænu þjóðum - við eigum svo margt sameiginlegt og hugsum á margan hátt líkt - þessi tengsl má ekki vanrækja.
Ég er búin að sitja í kvöld og undirbúa mig fyrir þingið í næstu viku - það er margt að setja sig inní og lesa - auðvitað misspennandi en allt áhugavert og mikilvægt.
En til að ná mér niður ætla ég að lesa annað en frumvörp og nefndarálit - er að byrja að lesa Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur og líst bara mjög vel á.
Veðrið í dag er búið að vera himneskt - hlýindi í allan dag - aðeins skýjafar og logn framan af degi - eins og það gerist best - enda hefur freknum fjölgað og aðeins hiti í húð.
Hlakka til að takast á við vinnuvikuna - en finnst aðeins vont að geta ekki tekið hið vinnandi örverpi með mér suður á mánudagsmorgnum - en hún tekur vinnuna sína í Hestaleigunni á Hallormsstað afar hátíðlega svo við björgum málum með stóra bróðir við stýrið og annað gott fólk til aðstoðar - það verður óneitanlega gott að komast í frí einhverntíma í júlí.
![]() |
Enn mikil umferð til borgarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.