4.2.2009 | 08:21
Og enn er frost á Austur - Fróni...
Hudruð milljóna evra tap eins fyrirtækis á Íslandi - glymur í útvarpinu - , hvernig er þetta hægt í okkar litla þjóðfélagi??? Það er auðvitað ekki hægt - loftbóluhagfræðin leit bara svo vel út - þangað til hún sprakk.... , verð að viðurkenna að ég skil tæplega svona háar tölur - þó ég hafi valið mér það að ævistarfi að reyna að leiða ungmenni í allan sannleikann um töfra talnakerfisins...
Er búin að fara í spinning í morgun - mikið púl - en innspýting á orku í daginn. Mættar voru 15 konur á ýmsum aldri sem eru orðnar vanar að erfiða og svitna saman - góður félagsskapur, þessar dömur .
Nú verð ég að fara að horfast í augu við að fermingarundirbúningur þarf að fara að hefjast - tveir mánuðir til stefnu og fermingarstúlkan tilvonandi er alveg að fara á límingunum yfir kæruleysi móðurinnar. Matseðillinn var ræddur í gær - daman er með svo ákveðnar skoðanir og þokkalega skynsamlegar að hún fær bara að ráða þessu - enda talar hún um að hún geti nú alveg eldað sjálf!!! Og það er sennilega alveg rétt hjá henni, hún hefur fengið hin frábæru matreiðslugen föðurfjölskyldu sinnar og eldar frábæran mat - en hana skortir aðeins snyrtimennsku ömmu sinnar í eldhúsinu - en ég er fín í að ganga frá svo verkaskiptingin er ágæt hjá okkur mæðgum. En sé fyrir mér að matur, föt, hárgreiðsla og skreytingar verða helsta umræðuefni við eldhúsborðið til 9. apríl, svona í bland við pólitíkina...
Get einbeitt mér að náminu mínu fram að hádegi - þá taka ýmis undirbúningsverkefni fyrir bæjarstjórnarfundinn við - en hann er kl. 17 - hann virðist þokkalega einfaldur svo ég geri ráð fyrir að vera komin heim á góðum tíma. Gott að geta aðeins slakað á áður en skriðið er í bólið. Við Edda erum búnar að lofa hvor annarri að mæta í ræktina í fyrramálið kl. 6:30 - eins gott að standa sig
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 1888
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já þú varst svaðaleg í spinning í morgun. Ég var orðin hrædd um´að fá þig inn í hliðina á mér þegar tíminn var rétt rúmlega hálfnaður.
ferming.. oh ég man þegar ég fermdist.. var ekki glöð... mér fannst þetta mjög mjög erfiður dagur.. þar til ég stakk af úr veislunni - pabba til mikillar gleði. :) sem betur fer eru ekki öll börn eins.
Dandý (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 19:08
Já, þetta eru skrítnir tímar sem upplifum þessa dagana... alveg hreint með ólíkindum... umfram allt skynsamlegt og ofar öllum skilningi hins venjulega Jóns út í bæ og líka séra Jóns trúi ég... :) en við mætum gallvaskar í fyrramálið, stefnan tekin snemma á ból í kvöld svo að ferskleikinn verði svona "nokkuð" góður í fyrramálið.
Þú heppin að hafa ákveðna dömu sem fermingarbarn... bara betra og skemmtilegra....
Edda (IP-tala skráð) 4.2.2009 kl. 21:11
Iss,- þú þarft nú ekki að stressa þig yfir fermingarveislunni. Fólki tekst ágætlega að koma á koppinn erfidrykkjum með vikufyrirvara,- er þetta nokkuð öðruvísi?
En hefur þú þá nokkurn tíma í framboðið góða???
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 4.2.2009 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.