Leita í fréttum mbl.is

Sparnaður hjá ríkisútvarpinu

Mér finnst afar sérstök sparnaðartillaga hins ofurlaunaða útvarpsstjóra um að hætta útsendingum svæðisstöðvanna á landsbyggðinni. Hér fyrir austan standa þessar útsendingar undir sér vegna auglýsingatekna. Þannig að sparnaðurinn er í raun neikvæður  - útgjaldaaukning! Þegar verið er að spara eða skera niður þarf nefnilega að vanda sig...

Sit heima og læri og hlusta á ljúfa jólatónlist - búin að senda frá mér drög að tveimur verkefnum í dag, fæ þau aftur í hausinn en ákveðnum áfanga er samt náð.  Nú er bara eitt verkefni eftir, stórt og mikið en - bara eitt....

Ætla að skella mér í Bodypump 17:10, ef ég næ því - þarf aldrei þessu vant að heimsækja heilsugæslustöðina. Örverpið er með meinsemd í tá - allt orðið rautt, heitt og bólgið - eitthvað þarf að gramsa þarna sýnist mér. Gott að hún er orðin svo stór að það er hallærislegt að skæla Wink.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Nú þarf að fara að vanda sig

Anna Ragna Alexandersdóttir, 2.12.2008 kl. 17:44

2 Smámynd: Guðbjörg Anna

Það væri best ef að hún væri ALVEG hætt að skæla ;) 

Guðbjörg Anna , 3.12.2008 kl. 08:12

3 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Skamm Guðbjörg Anna - litla systir þín var sett á pensilín og á að fara í aðgerð á föstudaginn!

Vildi að ég ætti nokkrar upptökur af þínu gelgjuskeiði til að reka upp í nefið á þér!!!!

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 3.12.2008 kl. 14:04

4 Smámynd: Guðbjörg Anna

hahahaha....

ÉG skla REYNA að skammast mín... ég veit alveg hvenrig ég var á gelgjuskeiðinu.. þess vegna finnst mér gaman að gera grín af henni, af því nú er ég hætt á gelgjunni sjáðu til, og hún tekin við í því að vera 12 að verða 18 ;) ;) 

En mér þætti þó óskaplega gaman af því að sjá þig reka upptökur upp í nefið á mér..... ég er nú ekki með svo ýkja stórt nef gamla mín ;) 

Hún batnar á tánni.. hef enga trú á öðru, allavega áður en hún giftir sig ;) 

Kysstu litlu sytur mína frá mér ;) 

Guðbjörg Anna , 3.12.2008 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband