17.10.2008 | 09:30
Nýr dagur
Mikið er talað er um aukningu verðmætasköpunar í þjóðfélaginu og mest er talað um byggingu nýrra álvera og stækkun annarra. Umhverfismat er talið þvælast fyrir og því eigi helst að sleppa. Ég er afar hugsi yfir þessum áherslum. Ég styð Þingeyinga reyndar í baráttu þeirra fyrir álveri við Bakka - tel að það sé afmarkað byggðaverkefni og komið svo langt að það eigi að verða að veruleika - en eftir vandað umhverfismat sem flýta má eins og hægt er. Þar með tel ég nóg komið af álverum á Íslandi og að við eigum að snúa okkur að fjölbreyttari verkefnum til atvinnuuppbyggingar.
Mér finnst umræðan um það hvernig Finnar tóku á sínum efnahagsvanda fyrir tveimur áratugum mjög spennandi. Þeir lögðu höfuðáherslu á aukið menntunarstig þjóðarinnar með fjölbreytilegu námsframboði. Auðvitað tekur það tíma að byggja upp menntakerfið en þar sem við höfum fínan grunn til að byggja á er um að gera að byrja strax að hyggja að leiðum til að bæta menntunarstigið og auka fjölbreytnina í námsframboðinu svo allir finni eitthvað við sitt hæfi og eftir nokkur ár eigum við enn fleiri vel menntaða einstaklinga sem eru skapandi í hugsun og taka virkan þátt í því að byggja hér áfram upp þróað, tæknivætt velferðarsamfélag.
Mér finnst það veruleg forréttindi að fá að vera í námi á launum og finn hversu endurnýjandi það er. Ég held að það myndi efla skólakerfið okkar verulega ef kennarar og stjórnendur fengju af og til tækifæri til að taka sér nokkurra mánaða leyfi til að rannsaka tiltekna þætti, lesa kenningar annara um þá þætti og vinna síðan að því að koma umbótum fram í skólunum.
Er annars kát og hress eftir verulega hressilegan spinningtíma hjá Þórveigu í morgun, það er gott að byrja daginn á hlátrasköllum með góðri hreyfingu.
Eftir að Glitnisskvísurnar eru búnar að gera upp bankadaginn ætlum við Eydís, Edda og Þórveig svo að bruna norður til Akureyrar og vera þar um helgina. Þar verður hristur saman góður kokteill af slökun, hreyfingu og skemmtun.
Megið þið eiga góðan dag og góða helgi.
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við getum farið ýmsar leiðir til að vinna okkur út úr vandanum. Við þurfum að vanda okkur og ég held að við eigum að reyna að gera meira úr því sem við höfum. Meiri gæði og fjölbreytni, en kannski ekki bara magn.
Nú þrýsta Norð-austlendingar á ríkisvaldið að að allt verði gert til að flýta undirbúningi álvers á Bakka, en mér finnst að ekki megi víkja til hliðar sjónarmiðum umhverfisverndar og lögformlegum framgangi sem að því lúta, þó við viljum gera allt til að örva atvinnulífið, ekki síst á þessu svæði.
Ég tek sérstaklega undir með Jónínu að við hugum að fjölbreyttari orkufrekum atvinnurekstri en álverum, því eitt er jafn víst og að álver hefja rekstur; þau loka líka innan fárra áratuga.
Jón Halldór Guðmundsson, 20.10.2008 kl. 13:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.