Leita í fréttum mbl.is

Moggi sumra landsmanna...

Nýr ritstjóri Morgunblaðins ákvað það á fyrsta degi sínum í starfi að loka ritstjórnarskrifstofunni á Austurlandi.  Sú hefur verið starfrækt í 5 ár - með starfsmanni í fullu starfi.  Hann og ritstjórnin hafa sjálfsagt sínar ástæður og sín sjónarmið - en byggðapólitíkin er léleg...

Ég á afar erfitt með að sætta mig við að lok stórframkvæmda á tilteknu svæði séu túlkuð sem endalok vaxtarskeiðs svæðisins - ábyrg samfélög notfæra sér vaxtartímann til að byggja upp og horfa til framtíðar -  þjónusta og þekking eflist og dafnar, bjartsýnin er við völd og á henni er framtíðarsýnin byggð.  Fyrirtæki sem ekki deila þessari sýn heimamanna lesa kolvitlaust í samfélagið og í stað þess að taka þátt í framtíðaruppbyggingunni - missa þau skottið milli lappanna og læðast í burtu, nánast í skjóli nætur, óttinn við krónumissi gerir þessi fyrirtæki að leiðinda bitbeini landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis...

Okkur Austlendingum er misboðið með þessari lokun, við viljum að það sé trúað á okkur og okkar landshluta, það hefði verið stórmannlegra fyrir nýjan ritstjóra að leggja upp með sérstaka áherslu á landsbyggðina og hlut hennar í samfélagsþróun á Íslandi í heild, í því skyni að minna á að hér býr ein þjóð í stóru landi...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Mogginn að fara, IcelandExpress að leggja rófuna milli fótanna, Síminn að loka, Já-svarþjónustan farin, Tomma-borgarar farnir, ÍsMynd lokuð, Fasteignamatið lokað og og farið.  Svona mætti lengi áfram telja. 

Hvað er í gangi hér??  Hvernig ætla menn að bregðast við??

Hvar er einnig ágætt blogg um íbúalýðræði og fund vegna reiðhallar á Iðavöllum, sem var hérna hjá þér? 

Allt virðist á hverfandi hveli.

Benedikt V. Warén, 3.6.2008 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband