Leita í fréttum mbl.is

Tjá þú þig bara um uppeldi og mataruppskriftir, KONA!!!

Jahérna - á dauða mínum átti ég von - en ekki því að árið 2008 - væri mér sagt að tjá mig bara um þau málefni sem konur hefðu vit á - börn og mat.  Miðaldra karlmaður - vel menntaður - tjáði sig á þessum nótum á 50 manna fundi áðan. Ég var svo grandalaus að ég áttaði mig ekki strax - svo óvanar eru konur orðnar því að karlar leggi í að tjá sig svona upphátt - grunur um slíkar hugsanir þeirra kviknar oft - en þessi ágæti karl staðfesti gruninn í kvöld.  Tjáningarfrelsið er að hans mati bundið við að maður hafi faglega þekkingu á málum til að hafa leyfi til að tjá sig. Og hann benti mér á að mín faglega þekking næði ekki út fyrir heimilið, hugmyndin um eldavélatjóðrið býr enn í karlmannshugum ekki bara á Suðurlandi...

Litla dóttir mín sem er að lesa yfir öxlina á mér hlær - henni finnst ég betri í pólitíkinni en í eldamennskunni.  Ég er hreykin af því að vera henni fyrirmynd að því að konur hafa getu og þor til að tjá sig um fleira en mat og börn - líka það sem maður hefur ekki háskólagráðu í.... Gott að vita til þess að dætur karla, sem gera lítið úr konum, eiga líka slíkar fyrirmyndir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í hverju skyldi fagleg þekking þessa ágæta manns liggja? Um hvað má hann tjá sig?

Svona menn ætti náttúrulega að stoppa upp og setja á minjasafnið til varðveislu sem dæmi um karlrembu á háu stigi.

En þú ert góður kokkur, þannig að þú hlýtur þá að vera frábær pólitíkus

Rannveig Árna (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 10:48

2 identicon

Er ekki rétt hjá mér að sá sem lét þessi orð falla sé ekki bara bóndi sem á í deilum við sveitarfélagið heldur sitji líka í bæjarstjórn ?

Og er ekki líka rétt hjá mér að fundarstjóri hafi verið maður sem skrifaði nýlega grein sem var svo uppfull af kvenfyrirlitningu að manni varð óglatt ?

Það er eins gott að konur hafa völd í þessu sveitarfélagi !!

Áfram Nína ! 

Þórunn Hálfdanardóttir (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 15:32

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Svona fordómar eiga bara að stappa í þig og annað nútímafólk stálinu.  Á meðanb svona viðhorf eru til, þá mega þeir sem vilja frjálsræði og jafnrétti ekki láta deigans íga.

Annars trúi ég að þetta hafi verið vanhugsaður brandari hjá aumingja manninum, er hann ekki búinn að biðjast afsökunar og draga orð sín til baka á einhvern hátt?

Jón Halldór Guðmundsson, 28.3.2008 kl. 15:46

4 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

2008 sagðir þú það ekki örugglega ?

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 28.3.2008 kl. 16:44

5 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Takk fyrir hólið Rannveig mín - og takk fyrir hvatninguna Jón, Þórunn og Þórhildur Helga - það er 2008 - það eru konur við völd og engin bilbugur á mér - við berjumst til síðasta blóðdropa - fyrir okkur og komandi kynslóðir .

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 29.3.2008 kl. 00:34

6 identicon

Svona, svona! Ég skil ykkur vel, en hvað eruð þið að láta þetta fara í taugarnar á ykkur. takið þessu bara eins og hverju öðru bulli.  Annars hef ég nú heyrt konur segja körlum að þeir ættu ekki að tjá sig mikið um kvenlæga hluti svo sem barnauppeldi og annað slíkt sem hafa þótt vera frekar fyrir konur hingað til. Annars er ég eiginlega hættur að skilja þetta karp sem er sífellt á milli kynjanna um hin og þessi málefni sem snúa að jafnrétti. Umræðan snýst of mikið um að einhver þurfi að gjalda fyrir það kynjamisrétti sem hefur viðgengist í gegnum tíðina. Annars styð ég jafnrétti kynjanna sé ekki af hverju annað kynið ætti að vera skör ofar eða neðar en hitt. Ég get flest sem konur geta, nema að ganga með börn og gefa þeim brjóst!!! Og ég hef ekki orðið var við að konur geti ekki gengt störfum þem hingað til hafa verið talin karlastörf!!!

Bara svona smá upplýsingar fyrir þig Nína, þá sagði Guðni Ágústsson aldrei þessi orð um að konan væri best geymd á bakvið eldavélina eða eitthvað svoleiðis!! Þessu var bara klínt á hann og verið óspart notað á hann honum til háðungar.

p.s. mér finnst að þú ættir a blogga um það hvað telst vera fjölskylduvænt samfélag/sveitarfélag nú á síðustu og verstu.

Bjarki Sigurðsson (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband