21.3.2008 | 15:39
21.mars
Dagur sorgar og gleði í minni fjölskyldu. Þennan dag fyrir 45 árum lést móðurafi minn, Hans Peter Christensen, aðeins sextugur að aldri og þennan sama dag 21 ári síðar dó pabbi minn aðeins 53 ára gamall. Og enn, þennan sama dag, fyrir 17 árum síðan fæddist frumburður yngstu systur minnar, hún Jóhanna Herdís Sverrisdóttir, merkileg tilviljun sem sýnir hringrás lífsins og endurnýjun.
Það hefur óneitanlega áhrif á mann að missa annað foreldri sitt í blóma lífsins - ég var langt frá því að vera tilbúin að lifa lífinu án frábærs pabba þó ég væri orðin 25 ára þegar hann dó - ég á enn erfitt með að sætta mig við að hann skildi ekki fá að verða afi - að börnin mín fengju ekki að hlæja og fíflast með honum eins og ég og trúa honum fyir sínum hjartans málum eins og var svo gott - en ég hef gert það sem ég hef getað til að halda minningu hans á lofti ekki síst með því að nota hann sem fyrirmynd í foreldrahlutverkinu.
Dagur góðra minninga - dagur söknuðar og dagur gleði yfir henni Jóhönnu Herdísi - til hamingju með daginn, elsku frænka.
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svona er nú gangur lífsins Nína mín. Ástvinir koma og fara. Mestu skiptir að eiga góðar minningar :)
Vona að dagurinn verði ljúfur og góður hjá þér og þínum.
Rannveig Árna (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 17:39
Það er svo skrýtið með þessa daga. Pabbi minn, sem dó langt um aldur fram líkt og ykkar, dó 20. mars. Þetta fannst okkur Hönnu Petru alltaf merkileg tilviljun-einn dagur á milli. Mörgum, mörgum árum seinna eignast mamma annan mann og hann er fæddur þennan sama dag. Veit ekki hvort þetta geta talist tilviljanir!
Tek undir með hamingjuóskir til Jóhönnu Herdísar og vona að þið öll hafið átt yndislega páskahátíð.
Sigþrúður Harðardóttir, 24.3.2008 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.