Leita í fréttum mbl.is

Húsnæðiskostnaður

Ýmislegt hefur fengið mig til að velta vöngum yfir húsnæðiskerfinu á Íslandi.  Mér finnst það sjálfsögð mannréttindi að fólk hafi öruggt íbúðarhúsnæði til ráðstöfunar.  Að eiga, leigja, kaupleigja - formið er ekki aðalatriði - en öruggt húsnæði til íbúðar fyrir fjölskyldur af öllum stærðum og gerðum er aðalatriði.  Á Íslandi vill fólk eiga sitt húsnæði. Nýjar upplýsingar sýna að það er þriðjungi dýrara fyrir fólk að eignast húsnæði nú en fyrir þremur árum síðan - vextir eru nú komnir yfir 6% - og verðbæturnar eru alla að drepa.  Mér finnst sjálfsagt að bankar og lánastofnanir fái eitthvað fyrir sinn snúð en eitthvað er farið úr böndunum í þessum málaflokki - hver skyldi þora að ráðast á meinið??? Er fegin að mitt fólk er í ríkisstjórn og treysti því til að greina vandann og vinna síðan markvisst að úrbótum.

Ég veit aðeins hvernig húsnæðiskerfið er í Noregi - þar þykir það sjálfsagt að lána fólki til íbúðarkaupa á afar sanngjörnum kjörum þar þykir öruggt íbúðarhúsnæði sjálfsögð mannréttindi.  Lærum af Norðmönnunum....

Nú er ég stödd í höfuðborginni - litla dótturdóttir mín situr með móðursystur sinni, litla barninu mínu og þær horfa á morgunsjónvarpið.  Mikið sem það er gaman að koma til Reykjavíkur - næstum eins gott og að fara þaðan aftur...., í dag ætlum við mæðgur að skoða hvaða varning má höndla svona þegar jólin nálgast óðfluga..., á morgun ætla ég svo að sitja flokkstjórnarfund Samfylkingarinnar og síðan aðalfund sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar.  Á mánudag og þriðjudag er svo Fjármálaráðstefna sveitarfélaganna svo pólitíkin verður allsráðandi næstu daga.

En í dag ætla ég bara að vera mamma og amma, þetta ömmuhlutverk er nú alveg frábært - Karen Rós er á frábærum aldri, málið þróast dag frá degi, greinilega svolítið flókið að amma er allt í einu amma en ekki ömmu eftir að vera alltaf að tala við ömmu í símann.... flókin þessi fallbeyging..

En nú ætla ég að fara að knúsa þessar stelpur mínar og njóta þeirra og höfuðborgarinnar.  Megið þið eiga góða helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar S Magnússon

Mikið er ég sammála þér í sambandi við þessi húsnæðismál.  Það er orðið alltof erfitt fyrir ungt fólk, já og eiginlega hvern sem er að eignast eigið húsnæði og leigumarkaðurinn hér er mjög óþroskaður.  Þekki þetta vandamál töluvert í gegnum starfið mitt.  Fjármagnið er svo dýrt, að fólk er að binda sig á klafa til allt að 40 ára.  Það var mikið slys þegar gamla húsnæðiskerfið var lagt niður, þe félagslega eignaíbúða kerfið,   auðvitað þurfti að laga það til, en að leggja það niður var að mínu mati stórslys.

Vona að þú eigir ljúfa daga í höfuðborginni

Ragnar S Magnússon, 4.11.2007 kl. 13:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband