Leita í fréttum mbl.is

Sterk sjálfsmynd er nauðsyn hverri konu....

Stundum hugsa ég djúpt, spjalla við Rannveigu vinkonu og fleiri og kemst að niðurstöðu sem mér finnst afar skynsamleg...., fyrirsögnin að þessari færslu minni er ein svona niðurstaða...., sennilega er ég ekki ein um hana og ekki fyrst en samt....

Gæti skrifað um málið fram á kvöld en þar sem ég á að vera mætt á fund eftir hálftíma verður pælingin stutt að þessu sinni...

Ef maður er sáttur við sjálfan sig, líður manni vel og finnst sjálfsagt og eðlilegt að vera maður sjálfur án allrar tilgerðar og sýndarmennsku.  Við þannig aðstæður er hugsunin frjó, húmorinn lifandi og útgeislunin smitandi - árangurinn er því sjálfsagður og krefjandi verkefni verða skemmtileg glíma við sjálfan sig og aðra.  Held að þetta sé sérstaklega mikilvægt fyrir konur því þær vantreysta sér frekar en karlar og lifa lífinu frekar í gegnum aðra en karlar, ég held að engum sé greiði gerður með því... Hín ágæta gullna regla kristninnar sem segir mönnum að elska náungann eins og sjálfan sig brýnir mann á því að sjálfstraust er grundvöllur góðra verka....

Uppeldishlutverk manns sem foreldris og kennara þarf að mótast af þessari hugsun líka, það að kenna ungu fólki að meta sjálft sig og þora að vera það sjálft er mikilvægasta verkefni okkar fullorðna fólksins...

Meira um þetta síðar því nú er stefnumótun Fljótsdalshéraðs fyrsta spennandi glíma dagsins, megið þið eiga góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stundum verðum við líka að muna eftir að elska sjálf okkur eins og náungann  við eigum það nefnilega stundum til að vera sjálf okkar verstu óvinir.

Eigðu góðan dag gæskan.

Rannveig (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 11:49

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Fyrst eftir að ég las þetta blogg, fannst mér þetta svo vel sagt að ég bara tók þetta með mér í daginn, en ákvað að sleppa því að kommenta á þetta. Ég hefði eng við þetta að bæta.

E n ég held að í öllum mannlegum samskiptum sé svo mikilvægt að vera sáttur við sjálfan sig. Sá sem er sífellt að nöldra og gagnrýna aðra er nefnilega trúlega óánægður með sjálfan sig.  Þess vegna er hann alltaf að benda á það sem að hjá öðrum. Til að sýna að aðrir séu ekkert betri.

Ég held líka að heimili (og þjóðfélag) sem byggir á sanngirni og jákvæðni og jafnrétti, ali af sér betri einstaklinga.

Kannski snertir þetta eitthvað vímuefnavandann í þessu þjóðfélagi. Ofbeldisverkum og eymd. 

Jón Halldór Guðmundsson, 13.10.2007 kl. 10:45

3 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Takk fyrir þetta Jón - held að þetta sé alveg rétt hjá þér með nöldrið!!! Hver nennir að vera að nöldra ef hann er þokkalega sáttur?? Það þýðir ekki að maður segi alltaf já og amen það sem þarf að gagnrýna verður auðvitað að fá sína umfjöllun...

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 14.10.2007 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband