29.7.2007 | 20:06
Ungar listakonur af Héraði
Fór á fína tónleika í kirkjunni hér á Egilsstöðum í dag. Tvær ungar konur sem búið hafa á Héraði um árabil spiluðu á píanó og þverflautu og frumfluttu verk eftir þá þriðju. Allar eru þessar konur að læra tónlist og frábært að fá þær heim til að leyfa okkur að fylgjast með þeim. Takk Þórunn Gréta, Sóley og Bára. Eftir tónleikana fóru síðan flestir tónleikagestir á Café Nielsen og fengu sér kaffi og köku á pallinum og nutu veðurblíðunnar.
Í morgun fór ég út að hjóla eins og svo oft á sunnudagsmorgnum, sé alltaf eitthvað nýtt og hugsa eitthvað nýtt. Í morgun velti ég tvennu mest fyrir mér: hversu nauðsynlegt það er að gera Lagarbrautina í Fellabæ að íbúabyggð og síðan ástandinu á opnu svæðunum meðfram göngu- og hjólastígunum og víðar í bænum. Það er afar góð leið til að skoða bæinn að hjóla um hann.
Þegar ég kom heim síðdegis heyrði ég hversu mikið hefði gengið á í Reykjavík og síðan Þingvöllum, tveir menn fallnir í valinn, vegna persónulegra deilna. Harmleikur - ég get ekki annað en hugsað til konunnar sem tengdist þessum mönnum, hún á samúð mína alla. Mikið vildi ég að fólk fengi meiri aðstoð og ráðgjöf þegar það slítur erfiðum samvistum, það er afar flókið ferli og þarfnast mikils sveigjanleika og tíma þar sem miklar tilfinningar eru oftast í spilinu. Ég held að með aðstoð mætti koma í veg fyrir harmleiki sem oft leika börn og unglinga sérstaklega illa.
Bloggvinir
-
annapala
-
annaragna
-
annriki
-
agustolafur
-
arnith2
-
baldurkr
-
gattin
-
bryndisfridgeirs
-
brandarar
-
dofri
-
drifakristjans
-
gleraugun
-
saxi
-
huld
-
fjolan
-
logbjorg
-
gutti
-
gudnydrifa
-
gurrihar
-
gudrunjj
-
gudrunkatrin
-
gunnaraxel
-
hafsteinnkarlsson
-
hallibjarna
-
heidathord
-
hildajana
-
ingabaldurs
-
ingolfurasgeirjohannesson
-
jogamagg
-
jonaa
-
joningic
-
kallimatt
-
kolbrunb
-
kopasker
-
daudansalvara
-
lara
-
olinathorv
-
ragnhildur
-
rosa
-
amman
-
sisshildur
-
svalaj
-
svavaralfred
-
svenni
-
tjorvi
-
vefritid
-
thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heil og sæl Jónína Rós! Takk fyrir að eyða með okkur þessu skemmtilega broti úr þessum undurfallega degi. Megi þetta endurtaka sig sem oftast í framtíðinni.
Kær kveðja,
Þórunn Gréta
Þórunn Gréta (IP-tala skráð) 31.7.2007 kl. 11:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.