Leita í fréttum mbl.is

Sumarið framundan

Það er að koma sumar..., þú hvít korn fjúki fyrir gluggann er það sjálfsagt bara fyrirboði indæls sumars. 

Var á fyrirlestri í gær hjá Freyju Haraldsdóttur, fatlaðri 21 árs gamalli stúlku. Hún var að tala við krakkana hér í ME og ég laumaði mér með. Maður fann að þessi fyrirlestur hafði áhrif á krakkana þau voru hugsi þegar þau komu út. Ég var líka hugsi yfir mikilli jákvæðni og æðruleysi Freyju og ekki síður hversu eðlilegu lífi hún lifir þrátt fyrir mikla fötlun, það er greinilega allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Hún ætlar að spjalla við okkur kennarana í dag og leiðbeina okkur í umgengni og kennslu fatlaðra framhaldsskólanemenda, hugsa að hún tali við okkur á tærri íslensku og skammi okkur aðeins....

Á morgun ætlum við svo að opna kosningaskrifstofur á Seyðisfirði kl 11 og á Egilsstöðum kl 15. Formaður, þingmenn og frambjóðendur mæta og vonandi fullt af jafnaðarmönnum og tilvonandi jafnaðarmönnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörg Anna

Hey... ! sjáðu þetta...  samfylkingin að auka við sig fylgi

Aukið fylgi hlýtur alltaf að vera gott... en það þarf auðvitað að auka það meira og fara yfir íhaldspungana =)

Gangi þér vel við opnun kosningarskrifstofunnar í dag.. vonandi nærðu að sannfæra e-a um að þetta er langbesti flokkurinn til að kjósa.. lang besta stefnuskráin og þar fram eftir götunum.. ég reyni eins og ég get að sannfæra samnemendur mína að þetta sé flokkurinn sem á að kjósa í vor .. reyni að sjálfsögðu að leggja mitt að mörkum

Guðbjörg Anna , 19.4.2007 kl. 11:05

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Gleðilegt sumar stúlka.

Jón Ingi Cæsarsson, 19.4.2007 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband