17.1.2008 | 09:51
Það styttist í vorið...
Mér finnst ég finna fyrir því að daginn er farið að lengja aftur - það var alveg þokkalega bjart enn um fjögurleytið í gær... , mér finnst það afar notaleg tilfinning.
Núna sit ég og fylgist með nemendum mínum vinna með tölfræði - skemmtilegt að sjá hvað svona myndræn stærðfræði hentar sumum nemendum vel - það leikur bros um varir sem sveigðust niður í algebruvertíðinni fyrir jól...
Það var langur bæjarráðsfundur í gær - en ég var ánægð með niðurstöður fundarins - stærsta málið sem við fjölluðum um var nýbygging og endurbætur á Egilsstaðaskóla. Nú liggur ákvörðun fyrir - það verður farið í að byggja glæsilegan skóla - nýtt byggt og gamalt aðlagað að heildarmyndinni. Á næstunni verður gengið til samninga við Eignahaldsfélagið Fasteign hf um bygginguna og við leigjum síðan skólann af þeim. Ný aðferðafræði - það hefur tekið okkur tíma að reikna okkur inn á þessa leið - en ákvörðun er tekin, allir meðlimir bæjarráðs tóku meðvitaða, ábyrga ákvörðun - því miður náðum við ekki að vera alveg samhljóma en 80% meirihluti var fyrir ákvörðuninni - ákvörðun liggur fyrir og verkin koma til með að tala næstu mánuði.
Kannski finnst mér bjartara úti því þessi ákvörðun er í höfn....
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er jákvæð þróun í vaxandi bæjarfélagi þegar þarf að byggja nýjan skóla En hvernig er það, er það rétt að framlag til Hallormsstaðaskóla hafi verið skorið stórlega niður?
Rannveig Árna (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 16:49
Spennandi...............alltaf gaman að taka þátt í svona uppbyggingu ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 17.1.2008 kl. 19:42
Já það er frábært að fá að vera með í uppbyggingastarfi á ýmsum vettvangi.
En það að vera í pólitík felur það líka í sér að þurfa að skera niður - stundum þarf að skera niður kennslukvóta - ef sýnt þykir að hægt er að koma málum þokkalega fyrir þó eitthvað sé skorið af...
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 18.1.2008 kl. 09:25
Hér í sveit er verið að byggja upp ótrúlega flott íþróttamannvirki svo við getum tekið vel á móti ykkur á landsmótinu næsta sumar...og svo við bæjarbúar verðum hressir og heilsugóðir um alla framtíð.
En það var sem sagt farin þessi nyja leið og einmitt skipt við Fasteign ehf. Bóndi minn (sem situr í íþrótta- og æskulýðsnefnd) var lengi að sannfæra mig um ágæti ráðahagsins... ég er svo skrambi gamaldags þegar kemur að fjárfestingum. Þætti best að eiga fyrir öllu.....
Sigþrúður Harðardóttir, 18.1.2008 kl. 22:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.