29.9.2007 | 10:26
Laugardagur heima
Mér finnst heil eilífð síðan ég hef ekki þurft að drífa mig á laugardagsmorgni, það er nú ljúft að sitja og dreypa á kaffi, kíkja á blogg og blogga í mestu rólegheitum...
Búin að lesa tvö blogg í morgun, Ólína Þorvarðardóttir talar um útlendinga í þjónustustörfum sem varla tala íslensku og vandræðin sem geta skapast þess vegna. Mér finnst margir þessir nýju Íslendingar frábærir þjónustuaðilar og ég held að það séu margir þeirra mjög tilbúnir til að læra íslensku, en við bjóðum ekki upp á nógu massíva íslenskukennslu, þar getum við lært af nágrannaþjóðunum.... Við verðum að reyna að halda í við veruleikann, útlendingar eru og verða hluti af okkar flóru og við verðum að begðast við, svo þeir myndi ekki menningarkima innan samfélagsins, það getur orðið afar vont mál í litlum samfélögum.
Svo var það bloggið hennar Kolbrúnar Björnsdóttur um ástarsorg, veruleiki sem allir hafa upplifað... Mér finnst svo mikilvægt að fólk gefi sér tíma til að jafna sig aðeins eftir sambandsslit, viðurkenni sársaukann sem ætlar að drepa mann, finni hann svo fjara út...Og standi svo uppi stolt og teinrétt því það gekk rétt frá málum, setji punktinn aftan við þennan kafla í lífinu eftir að hafa farið yfir hann aftur og aftur, hent því vonda og haldið því góða, og byrji svo smám saman að skrifa nýjan kafla án beiskju og píslarvættis, lífið er jú fyrst og fremst skemmtilegt, allavega ef manni leiðist ekki mjög í eigin félagsskap...
Í dag mun fjólubláa málningin vonandi komast á veggi heimasætunnar. Svo þegar kvölda tekurætla ég að þrífa af mér sletturnar, dressa mig upp og bruna í fimmtugsafmæli til hans Jóns Halldórs á Seyðisfirði. Jón er bráskemmtilegur Samfylkingarmaður og skólabróðir minn úr Kennó.
Bloggvinir
- annapala
- annaragna
- annriki
- agustolafur
- arnith2
- baldurkr
- gattin
- bryndisfridgeirs
- brandarar
- dofri
- drifakristjans
- gleraugun
- saxi
- huld
- fjolan
- logbjorg
- gutti
- gudnydrifa
- gurrihar
- gudrunjj
- gudrunkatrin
- gunnaraxel
- hafsteinnkarlsson
- hallibjarna
- heidathord
- hildajana
- ingabaldurs
- ingolfurasgeirjohannesson
- jogamagg
- jonaa
- joningic
- kallimatt
- kolbrunb
- kopasker
- daudansalvara
- lara
- olinathorv
- ragnhildur
- rosa
- amman
- sisshildur
- svalaj
- svavaralfred
- svenni
- tjorvi
- vefritid
- thorhildurhelga
Tenglar
Vinir
- Rannveig vinkona
- Dandy orkubolti, spinningkennari og náttfatavinkona
- Tóta litla
- Konni kynlegi
- Þórveig hreyfisystir
Pólitík
Nota bene
Ritað og talað mál
Hér er ýmislegt sem ég hef sagt og ritað upp á síðkastið.
Myndaalbúm
Eldri færslur
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við megum heldur ekki líta fram hjá þeirri staðreynd að Íslendingar hafa svo gaman af að tala sína misgóðu ensku við allt sem útlenskt er og gera þannig þeim útlendingum sem hafa áhuga á að læra íslensku erfitt um vik. Ég veit um mann sem flutti hingað frá Suður Ameríku og kunni ekker nema spænsku, hann lærði ensku áður en hann lærði íslensku af því að við höldum að allir sem komi til landsins eigi betur með að skilja ensku en okkar ástkæra ylhýra .
Lítum aðeins í eigin barm áður en við verður pirruð yfir þjónustu á bjagaðri íslensku eða táknmáli
Rannveig (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 12:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.