Leita í fréttum mbl.is

Fallegur haustdagur á Héraði

Dróst fram úr rúminu 5:40 og rétt náði hjóli til að geta spinningpúlað með stelpunum hjá Dandý. Dandý er greinilega að herða á okkur - ástandið á dömunum sem "skriðu" út út íþróttahúsinu upp úr 7 var skrautlegt...

Átti fína helgi í Reykjavík - í faðmi Samfylkingarfólks og fjölskyldunnar - Karen Rós verður 3ja ára á morgun svo haldið var upp á afmælið um helgina til að amma hin pólitíska gæti nýtt ferðina...

Veðrið í Reykjavík minnti mig á unglingsárin - þar sem haglél, rigning og sólargeislar ýmist börðu eða kysstu rúðurnar í Flensborg á laugardaginn - mundi ég eftir hugmyndinni um loðfóðraða regnkápu, með lausum loðfeldi og viðsnúanleg svo alltaf væri hægt að halda "lookinu" en farast samt ekki úr kulda og vosbúð...

Gæti skrifað langt mál um efnahagsmálin eftir skemmtilega og uppbyggilega umræðu um þann málaflokk á flokkstjórnarfundinum en læt nægja að vera sammála varaformanninum sem talaði um það í fréttum í gærkvöldi að við þurfum að fara að stíga skref - til að fá að vita hvort hægt sé að breyta um gjaldmiðil - og það er ekki eftir neinu að bíða...´

Maður finnur á börnunum sínum og barnabörnunum hvað tíminn líður hratt - að það skuli vera þrjú ár síðan ég var með krökkunum mínum úr ME í lífsleikniferð á Akureyri og fylgdist með fæðingu dótturdótturinnar úr fjarlægð og hentist síðan beint úr rútunni niður á Neskaupstað til að dást að kraftaverkinu sem minnti ótrúlega á annað kraftaverk tæpu 21 ári fyrr...

Ömmuhlutverkið er skemmtilega öðruvísi en mömmuhlutverkið - ábyrgðarmikið en samt getur maður leyft sér að vera svolítið kærulaus með....

En nú er alvaran að taka við í náminu - verkefni í báðum kúrsum í þessari viku...

Í dag er svo fundur í starfshópi um uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar og í kvöld ætla ég svo að vera fermingarstelpumamma, það er fundur um forvarnarmál í Fellabæ...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já það þýðir ekkert annað en herða á ykkur- þið eruð í massa formi- þá er best að auka - lögin og lengja tímann- stytta hvíldina.

Áfram súlan.

Dandý (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband