Leita í fréttum mbl.is

Hvassviðri

Það er leiðindahvassviðri hérna - ekki ólíklegt að einhver myndarleg tré hafi lagst á hliðina hérna á Héraðinu líka.

Í gærmorgun þegar ég skaust yfir Fagradalinn með englabossann stóð LOGN á skilti Vegagerðarinnar - held að ég hafi aldrei séð þessa áletrun þarna áður - lognið á undan storminum greinilega...

Nágrannar mínir voru í því í morgun að hirða upp þvottinn okkar...

Ég varð að láta undan í þrjóskukeppninni við englabossann.  Handboltabúningarnir sem ég notaði til að kenna honum á þvottavélina með, erum búnir að hanga til þerris í einhverjar vikur á svölunum - ég hef eitthvað tuðað og nöldrað en staðföst ekki tekið þá inn - en Kári stormur eyðilagði allt fyrir mér - búningarnir liggja nú í rúmi englabossans....

 


mbl.is Nokkur óveðursútköll í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Nína.
Maður á að vera góður við Englabossa
Kveðja úr Skóginum, Jón Gunnar

Jón Gunnar (IP-tala skráð) 17.9.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Trén í garðinum mínum fengu að finna fyrir því blessuð !!  Greinar um allt.

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 17.9.2008 kl. 18:43

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Ég er ekki að ná í þetta með "englabossann" Jónína mín.

Í fyrsta lagi hélt ég að þú værir alltaf með "englabossann" með þér,  en úr því að þú tekur það fram að þú hafir tekið hann með þér,  þá hlýtur þú að vera að tala um yfirmann þinn,  sem þú talar svo hlýlega um,  eða hvað? 

Jón Halldór Guðmundsson, 18.9.2008 kl. 01:31

4 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Hélt að allir vissu að ég á bara einn "englabossa", son minn yndislegan....

Tengdamóðir mín fyrrverandi á líka bara einn "englabossa" svo titillinn gengur í erfðir í beinan karllegg...

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 18.9.2008 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband