Leita í fréttum mbl.is

Frambjóðendur á ferð

Fjórir efstu frambjóðendur á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu fóru um Egilsstaði í gær, fóru í heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir, heilsuðu upp á fólk og hlustuðu.  Það var skemmtilegt að finna kraftinn og hugmyndaauðgina í fólkinu hér - ekkert svartsýnisraus er í gangi, enda gerir það harla lítið annað en að brjóta niður og auka enn á vandann, sem margir eru óneitanlega í, hér, ekki síður er annars staðar á landinu.

Við fengum okkur svo að borða saman í gærkvöldi, 9 frambjóðendur og kosningastjórinn, og tókum svo góða rispu í að kynnast, segja sögur og hlæja svolítið.  Í dag kl. 11 er svo opinn fundur í fínu kosningaskrifstofunni okkar og eftir það ætlum við aðeins að leggja línur. 

Við fengum hana Lóu til að leigja okkur sýningu á verkum sínum á veggina svo kosningaskrifstofan er hlýleg og glæsileg svo okkur er ekkert að vanbúnaði að hefja kosningabaráttuna.

21. mars er sérstakur dagur í minni fjölskyldu. Þann dag árið 1963 lést móðurafi minn, Hans Peter Christensen aðeins 63 ára gamall, þann dag árið 1984 lést faðir minn, Guðmundur Guðmundsson aðeins 53 ára að aldri - en 1991 fæddist svo lítið stúlkubarn, systurdóttir mín, Jóhanna Herdís Sverrisdóttir þennan dag, svona til að minna mann á að í lífinu verður stöðug endurnýjun og skin og skúrir skiptast á í eðlilegum rytma.

En dagurinn í dag er fallegur hér á Héraðinu eins og svo margir aðrir - megi hann verða okkur farsæll og skemmtilegur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Katrín Árnadóttir

Vonandi hafið þið átt góðan fund í morgun, ég treysti mér ekki þar sem ég er búin að vera með flensu, er samt mun hressari en í gær.   Gaman að heyra að allt er komið á fulla ferð hjá ykkur.  Baráttukveðjur.

Guðrún Katrín Árnadóttir, 21.3.2009 kl. 11:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband