Leita í fréttum mbl.is

Afskriftir, niðurfelling og arðgreiðslur

Nú hefur ágætur meðframbjóðandi minn í kjördæminu tekið undir með framsókn og vill 20% niðurfellingu skulda heimila og fyrirtækja - hljómar vel og gengur sennilega í einhverja kjósendur.  En jafnaðarstefnan tekur ekki undir svona flata aðgerð - það er alveg ljóst að það þurfa ekki allir á því að halda að láta afskrifa 20% af skuldum sínum og jafnljóst er það að þegar skuldir eru miklar getur niðurfellingin orðið óeðlilega mikil. Þarna þurfa jöfnunaraðgerðir að vera með í farteskinu, þeir sem illa eru staddir og þurfa virkilega á því að halda eiga að fá þessa fyrirgreiðslu, aðrir ekki, það eru sjálfsagt margir í þeim hópi í Íslandi dagsins í dag - og vonandi getum við hjálpað þeim á eðlilegan hátt.

Arðgreiðslur Granda til hluthafa fara illa í launþega sama fyrirtækis sem hafa tekið á sig launaskerðingar á síðustu vikum - auðvitað, auðvitað, auðvitað... hvernig er hægt að sýna launþegum annað eins virðingarleysi og aðra eins lítilsvirðingu??? Gleymdist að hugsa, eða gleymdist kannski að það er fólkið á gólfinu sem vinnur á lúsalaunum sem skapar verðmætin, ekki stjórnarformenn og forstjórar á ofurlaunum???

Er búin að eiga góðan dag, hóf hann snemma með fínum spinningtíma, búin að vera mikið í símanum og á fundum vegna ýmissa mála.  Kosningabaráttan er að hefjast og margt spennandi í gangi...

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála þér með 20% niðurfellinguna...algert rugl að mínu mati.  Eflaust þarf að afskrifa skuldir hjá einhverjum hópi, en alls ekki á alla línuna.

Miðað við það sem ég hef lesið, er ekki verið að tala um allar húsnæðisskuldir heimilanna, því lán frá Íbúðalánasjóði, Sparisjóðunum eða Lífeyrissjóðunum eru ekki inni í þessu dæmi....hverjum er þá verið að hjálpa?  

Sigrún Jónsdóttir, 16.3.2009 kl. 22:33

2 identicon

Hvaða meðframbjóðandi var þetta? Ég hélt að öllum, nema Framsókn, væri ljóst að það þurfi að skoða skuldastöðu hvers og eins og enginn fái meir í afskriftum en aðrir. Það er nefnilega þannig að reikningurinn lendir á skattgreiðendum. Annars er ég hlynntur þrepaskatti að norrænni fyrirmynd. Ég setti dæmi um slíkt á Facebook. Hefur sá sem hefur meir en miljón á mánuði í tekjur/laun ekki það umleikis að hann geti tekið þátt í kreppulausnum?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 09:05

3 identicon

Fann þetta...svona er að vera á fundum öll kvöld. Bloggaði smá um TÞH..gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 11:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband