Leita í fréttum mbl.is

Gleðilegt sumar elskurnar

Ég held að vetur og sumar hafi ekki frosið saman hér á Héraðinu, en ég er samt bjartsýn, held að við fáum gott sumar á Héraði - enda er það nú raunin flest sumur - svo hér er um staðreyndir að ræða en ekki spádóma...

Ég á margar skemmtilegar æskuminningar tengdar sumardeginum fyrsta - skrúðgöngur, fánar, skátamessur, nýjar flíkur, litlar sumargjafir og pabbi er afar áberandi í þessum minningum, hlýr og hlæjandi..., mikið er nú gott að geta yljað sér við góðar minningar.

Ein minningin er ljúfsár - nýir skór (flottar mokkasínur með pening í raufinni ofan á ristinni!!) og skrúðganga í Garðabæ, flott blanda en ekkert sérstaklega góð fyrir hælana - mokkasínurnar voru allavega ekki notaðar í einhverja daga eftir skrúðgönguna...

Ég hef reynt að halda í ákveðnar hefðir varðandi sumardaginn fyrsta - sumargjafir og fjölskyldusamveru. Það breytist samt ýmislegt þegar börnin vaxa úr grasi, unglingarnir vilja vera með vinum sínum - en mér finnst þau samt alltaf vilja vera með gamla dótinu ef maður stingur upp á því - svo nú vona ég að ég nái þessum börnum mínum sem hjá mér búa á reiðtúr í dag.

Á hádegisfundi hjá fjölskyldunni í íbúð 203 í Kelduskógablokkinni í gær var tekin ákvörðun um sameignilega fjölskyldusumargjöf  - grill - það gamla er endanlega búið á því - allir glaðir og ánægðir með samþykkt fundarins - svo nú þarf bara að framkvæma - Guðmundur Þorsteinn var settur í verkið, mamma borgar...

En nú ætla ég að fara út að hjóla - leikfimihópurinn minn ætlar út að skokka - ég nenni ekki að skokka, ég verð svo gömul í hnjánum af því - svo ég hjóla bara með þeim - svo er það heiti potturinn, unglingarnir mínir sofa - og ég geri ráð fyrir að þau sofi vært þegar ég kem heim aftur.... En megið þið eiga góðan sumardag með ykkar fólki Grin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ohhhh, ég sem var að spá í að hringja í þig í morgun og athuga hvort þú kæmir út að hjóla. Jæja, ég kúri bara með Karitas fram að hádegi og bregð mér á hjólið eftir hádegi.

En gleðilegt sumar gæskan og takk fyrir veturinn.

Rannveig Árna (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 10:32

2 identicon

Gleðilegt sumar héða frá Akureyri...gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 13:00

3 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Gleðilegt sumar,- bongóblíða hér á Akureyri í dag, mín trú er að það lofi sannarlega góðu um sumarið ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 24.4.2008 kl. 22:58

4 Smámynd: Guðbjörg Anna

Mikið hafa þessir unglingar þínir það gott... bara ef "fullorðna" barnið þitt hefði getið sofið út í morgun  En í staðin var hún bara fullorðin, hugsaði um barn sitt og bú.. sakna þess að fá ekki sumargjöf frá þér, en ég vona bara að grillið komi mér e-n tíman að góðum notum

Guðbjörg Anna , 24.4.2008 kl. 23:01

5 identicon

Gleðilegt sumar.  Sjáumst á sunnudag í heitu kaffi og hálf klæddar.  :) 

Dandý (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 09:35

6 identicon

Halló, halló! Er bara búið að ákveða náttfatamorgunmat án þess að láta mig vita?

Rannveig Árna (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband