Leita í fréttum mbl.is

Prófadagur

Í dag setjast nemendur mínir í stærðfræði  við prófborðið og reyna að koma því til skila sem þau hafa lært þessa önnina.  Mér finnst ég líka vera að fara í próf, með aðeins öðrum áherslum þar sem það er metið hvernig hefur mér gengið að miðla námsefninu til nemenda minna. 

Ég er líka með frábæra utanskólanemendur þar á meðal konu á áttræðisaldri á Vopnafirði, ég dáist að kraftinum í henni, henni finnst stærðfræðin erfið en hún gefst ekki upp, ég vona að henni og öllum hinum nemendum mínum gangi vel á eftir.

Ég er svolítið hugsi yfir því hvað stærðfræðin reynist mörgum erfið, ég veit að það hefur ekkert með greind hinna frábæru ungmenna dagsins í dag að gera.  Mér sýnist vandinn helst liggja í því að þau eiga erfitt með að einbeita sér að verkefninu og sökkva sér ofan í það.  Hluti af málinu er líka kennsluaðferðirnar, þær eru ekki í takt við lífsmynstur ungs fólks sem flakkar á milli sjónvarpsrása, hendist um í hröðum tölvuleikjum, er á msn um leið og það horfir á sjónvarpið og svarar sms-unum.  Við þurfum að aðlaga kennsluna að nýrri kynslóð um leið og við kennum krökkunum líka að sökkva sér ofan í verkefni sem reyna á hugann, til að þau geti upplifað ánægjuna yfir réttri lausn eða vel unnu verkefni.  Þannig þarf að nýta það besta úr því gamla og bæta spennandi nýjum aðferðum við.

En ég held að það þurfi að byrja á kennaramenntuninni og það þarf að gera stórátak í endurmenntun kennara líka til að koma nýjum hugmyndum að.  Það ætti frekar að verja fé til þess en í skýrsluskrifin miklu sem viðhafast í ráðuneyti Þorgerðar Katrínar þar sem hver skýrslan á fætur annarri er skrifuð jafnvel um sama efnið. Ég er t.d. búin að nota margar vinnustundir í að svara spurningarlistum og skrifa greinargerðir sem birst hafa í skýrslum ÞK en mér finnst hún ætti nú að fara að láta verkin tala, en aumingja konan hefur auðvitað svo mikið að gera núna við að þeytast spariklædd um landið til að skrifa undir kosningavíxla að það er ekki hægt að ætlast til þess að hún sér að vinna ungmennum landsins gagn!!! Í þessu mikilvæga ráðuneyti þarf nauðsynlega að skipta um kerlingu í brúnni, við þurfum einhverja sem hefur styrk til að lesa skýrslurnar, gera aðgerðaráætlanir og byrja svo...., þar þarf að sjálfsögðu jafnaðarhugsun og jafnaðarverk þarna inn eins og alls staðar annars staðar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband