Leita í fréttum mbl.is

Gleðin eykst með degi hverjum

Jafnaðarmenn um allt land eru að vakna og sameinast.  Það er alltaf gaman að vera til, ekki síst á degi sem þessum.

Búin að fara á Seyðisfjörð í morgun með Einari Má. Við heimsóttum frystihúsið og félagsmiðstöð eldri borgara. Kosningabarátta er frábært tækifæri til að fræðast um atvinnu, staðhætti og líf fólks sem býr við annars konar aðstæður en maður sjálfur. Seyðisfjörður er frábær staður og fólkið þar sérstaklega duglegt og skemmtilegt, engin svartsýni þar - en Seyðfirðingar vilja framþróun sem þeir telja fyrst og fremst fólgna í jarðgöngum til Héraðs og áfram til Fjarðarbyggðar. Innilega sammála þeim.

Nú sit ég yfir í prófi, sit yfir 7 ungmennum sem eru með dyslexíu eða athyglisbrest svo þau þurfa dönskuprófið lesið upp fyrir sig, þá þjónustu veitum við með glöðu geði til að allir fái notið sín.

Hef þá sterku trú að engum sé betur treystandi fyrir menntamálum þjóðarinnar en jafnaðarmönnum sem hafa þá lífssýn að allir eigi af fá jöfn tækifæri til að spreyta sig.  Til þess þurfum við að komast í ríkisstjórn með sterka stöðu, berjumst til síðustu mínútu fyrir draumi okkar um samfélag þar sem allir eiga sömu möguleika.

 


mbl.is Fylgi Samfylkingar og Framsóknarflokks eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

4 dagar í kjördag

Held  að  Framsókn bæti í á endaspretti

leeds (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 14:29

2 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Þessi kosningabarátta er mjög skemmtileg og gaman að hitta fólk og ræða um bætt mannlíf á Íslandi. Brýnast er að auka menntun í landinu við getum ekki verið svo neðarlega á listum OECD bæði hvað varðar framhaldsskólamenntun og háskólamenntun. Það er ekki landinu til sóma að standa sig ekki á þessu sviði.

Lára Stefánsdóttir, 8.5.2007 kl. 14:40

3 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Þetta er allt að koma!

Ég er meira að segja með tillögu að nýjum menntamálaráðherra á blogginu mínu. Björgvin G er frábær náungi sem hefur haldgóða þekkingu og góða heildarsýn á það hvernig þeim málaflokki yrði sem best sinnt.

Baráttukveðjur úr Þorlákshöfn

Sigþrúður Harðardóttir, 8.5.2007 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband