Leita í fréttum mbl.is

Ekkert athugavert...

Davíð ætlar ekki að standa upp úr stól sínum án láta - enda hefur hann ekkert gert rangt!!!!! - í gær talaði ég um heimsku - í dag um siðleysi og fullkomna siðblindu - skyldi hann í alvöru halda að það sé best fyrir þjóðina að hann sitji þarns fastur á sínum f.... rassi - eða kannski verst.... og finnist það gott... Áfram Jóhanna - ekki láta hann buga þig - kallaðu færustu lögfræðinga og stjórnsýslufræðinga til þín til að losa megi karlinn úr stólnum sem allra fyrst.

Var á frábæru þorrablóti í gærkvöldi - Vallahreppur hinn forni hélt sitt blót á Iðavöllum - maturinn var frábær, súrmaturinn almennilega súr, hákarlinn vel kæstur og makkarónusalatið á sínum stað.  Svo var dagskráin stórfín, mikið sungið, góður annáll og fín leikatriði - Gleðikvennafélag Vallahrepps, sem við Rannveig vinkona erum stofnfélagar í, fékk flott skot í tengslum við reiðhallarumræðuna og ég veltist um af hlátri þegar Jörundur Ragnarsson birtist með krullur og rósir og lék mig með tilþrifum.  

Síðan var dansað til fjögur við fínan undirleik hljómsveitarinnar Nefndarinnar og það voru sárfættar, þreyttar en afar glaðar vinkonur sem yfirgáfu Iðavelli upp úr fjögur.  Við Edda vorum fyrirfram ákveðnar í því að við færum síðastar úr húsi og stóðum galvaskar við það.  Þessi þorrablót eru einstakar skemmtanir - ég slepp við að vera í nefnd næst - en veit þá að árið 2011 verður mitt ár og þá get ég tekið Berglindi Rós með mér í slaginn.

En englabossinn var að missa af flugvél - svo ég ætla að fara og spjalla við hrossin og gefa þeim tuggu - enda fékk ég óvænt frí frá morgungjöfinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir í gær Nína mín. Ég er að spá í hvort við verðum ekki að bjóða Jörundi og Jóni Gunnari í 20 ára afmælisfagnað Gleðikvennafélags Vallahrepps út á tilþrifin sem þeir sýndu í að leika okkur

Rannveig Árnadóttir (IP-tala skráð) 8.2.2009 kl. 19:12

2 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Takk sömuleiðis, Rannveig mín - já ekki spurning þeir sjá um skemmtidagskrána .

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 8.2.2009 kl. 19:38

3 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Vúú 2011,- og 2000 nýliðið.......allsvakalegt takk fyrir....

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 8.2.2009 kl. 23:34

4 identicon

Sæl Jónína mín... já, þetta var alveg feiknalegt fjör og við skemmtum okkur konunglega :)  Já, Jörundur kom skemmtilega á óvart .... fer að hlæja bara við tilhugsunina .. he he he.. og Jón Gunnar í háhæluðum skóm og Þór í gerfi Einars Ben..... jeezuzzz.... verður pottþétt rætt vel og vandlega í næstu fjölskyldu samkomu...

Takk fyrir skemmtunina mín kæra vinkona.. gerum þetta aftur, og aftur, og aftur, og aftur......................

Edda (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband