Leita í fréttum mbl.is

Reykjavík er nú ágćt

Kom heim úr höfuđborginni í gćr.  Brá mér í allra kvikinda líki ţessa daga eins og konur gera gjarnan. Á fimmtudag og föstudag var ég í skólanum frá morgni til kvölds, á laugardaginn var ég dóttir og síđan mamma og amma á laugardagskvöldiđ og á sunnudaginn.  Brá mér líka í vinkonu- og skólasysturhlutverkiđ á laugardagskvöldiđ, ţegar ég fékk gamla vinkonu og skólasystur í heimsókn til dótturinnar sem brá sér út á lífiđ og amman passađi. Mér leiđ eins og unglingi sem fékk vinkonu međ sér ađ passa og ţađ var alveg jafn gaman og á unglingsárunum ađ hringa sig í sófanum og skrafa af hjartans list. Ţessi ágćta vinkona er í svipađri stöđu og ég, fyrrverandi grunnskólakennari og núverandi framhaldsskólakennari, ţriggja barna móđir sem býr ein međ krökkunum sínum svo viđ höfđum um margt ađ spjalla og eins og svo oft ţegar konur sitja og spjalla var ég ríkari ţegar spjallinu lauk en áđur en ţađ hófst.  Á sama hátt fór ég međ góđa orkuskammta af fundi dótturdóttur minnar sem skemmtir mér alltaf konunglega, oft finnst mér ég vera í einhverri endursýningu svo áţekk er sú stutta móđur sinni bćđi til orđs og ćđis en - ţađ er svo skemmtilega öđruvísi ađ vera amma en mamma ađ engin hćtta er á neinum ruglingi ţar...

Í undirmeđvitundinni á bak viđ allt ţetta er svo hugsunin um ástandiđ í ţjóđfélaginu, ţađ gladdi mig mikiđ ađ heyra ţađ ađ félagsmálaráđherrann okkar er búin ađ búa til sérfrćđingahóp til ađ skođa hvernig lágmarka megi skađa íbúđalánagreiđenda í óđaverđbólgunni sem virđist ekki vera á neinu undanhaldi.  Vonandi komast ţeir ađ árangursríkri niđurstöđu sem allra fyrst.  Annađ innra gleđióp slapp út ţegar niđurstöđur skođanakönnunar um fylgi stjórnmálaflokkanna voru birtar á dögunum, jafnađarstefnan og afstađan í ESB málunum, sem Samfylkingin stendur fyrir, eiga greinilega upp á pallborđiđ hjá almenningi núna.

En núna ćtla ég ađ kveikja á kertum og taka svolítiđ til hjá mér, sýnist vera ađ bresta á skemmtilegur gestagangur hér nćstu daga. Látiđ ykkur líđa vel Heart.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband