Leita í fréttum mbl.is

Ríkisvæðing

Ég verð að viðurkenna að ég átti ekki von á því að aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálunum yrði eins afgerandi og raunin varð.  Nánast er hægt að tala um ríkisvæðingu bankakerfisins. Meira að segja kommúnistinn sem í mér blundar varð hissa.  En ekki er hægt að segja annað en að nú gengu allir takt - pólitíkusar allra flokka, aðilar vinnumarkaðarins og fagmenn. Er nokkuð hægt að gera annað en treysta þessu fólki (það fór nú lítið fyrir konum í þessari umræðu!) og halda ró sinni án þess að stinga hausnum í sandinn. 

Í skólanum í dag talaði Kristján Kristjánsson heimspekingur um það að Íslendingar segðu gjarnan "þetta reddast" á meðan Kínverjar segu "við verðum að halda andlitinu" - mér finnst fínt að blanda þessu saman - trúa því að þetta reddist allt með andlitið í réttum skorðum. Þannig held ég allavega að við verðum að kynna stöðuna fyrir börnunum okkar til að hindra óþarfa kvíðahnúta og óróleika. Börn eiga ekki að vera með peningaáhyggjur - það er allt í lagi að setja börn inn í aðstæður lífsins en ekki að leggja þeim óþarfa byrðar á herðar.

En við Guðbjörg Anna sitjum og drekkum gott kaffi og beilís með klaka, hlæjum svolítið og kryfjum lífsgátuna - gaman að eiga svona fullorðna dóttur sem hægt er að spjalla við um allt milli himins og jarðar og það sakar nú ekki að hún er hvorki illa gefin né leiðinleg...

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Jónína mín... já, þetta eru undarlegir tímar sem við erum að upplifa núna.... eitt er víst að öll verðum við reynslunni ríkari, hvort sem það eru háir herrar eða konur í æðstu stöðum eða venjuleg Jóna eða Jón...  Þá er ekki verra að eiga dóttur sem er hvorki illa gefin né leiðinleg til að deila góðum stundum með og hún heppin að eiga mömmu eins og þig........ þú ert heppin og þið báðar.  Njótið þess að vera til og vera saman :) svo ég minnist nú ekki á ömmubarnið :)

Edda Egils (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 22:57

2 identicon

Já þú ert heppin að eiga ekki leiðinlega dóttir- það væri örugglega erfitt að eiga barn sem maður gæti ekki hugsað sér að setjast niður með og spjalla.  En þú ert nú svo sæt, skemmtileg, jákvæð, fyndin og fáguð. Hvernig ætti hún að hafa mistekist.  ??  mar bara spyr sig.

sjáumst á morgun - eða hvað !!

Dandý (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 09:25

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Erum við kynslóðin sem fékk allt upp í höndurnar og klúðraði málum svo að sjálfstæði þjóðarinnar er í hættu?  Ég sé ekki betur.

Sjaldan launar kálfurinn ...og svo framvegis.

Jón Halldór Guðmundsson, 8.10.2008 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband