Leita í fréttum mbl.is

Dagskipan

Merkilegt hversu árstíðabundin dagskipan manns er. Á veturna finnst mér fínt að vakna klukkan 6 og hreyfa mig áður en vinnudagurinn hefst en á sumrin finnst mér þetta óþarfi þar sem vinnudagurinn hefst ekki á ákveðnum tíma og ég hef allan heimsins tíma en það verður gjarnan til þess að ég hreyfi mig alls ekki...

Ég þarf að vanda mig í haust og vetur, þegar ég verð ekki að kenna heldur að læra, að setja dagana í fast skipulag því það er afar auðvelt að missa dagana framhjá ef ekkert er skipulagið...

Unglingurinn minn, 13 ára, elskar að snúa sólarhringnum við, alltaf þegar tækifæri gefst.  Hún er ekki í neinni vinnu í sumar og það verður til þess að hún sefur út og fer seint að sofa, en hún hafði orð á því í gærkvöld að nú væri víst best að reyna að fara að vakna á morgnana og gera eitthvað...

En nú styttist í skóla og önnur haustverkefni - fannst fínt að fara upp á bæjarskrifstofu í gær og setja mig aðeins inn í hvaða verkefni bíða núna eftir sumarleyfi, ætla að vinna þar eftir hádegi í dag, m.a. við að undirbúa bæjarráðsfund.  Rammi fjárhagsáætlunar liggur fyrir og þarf ég að fara betur yfir hann með fjármálastjóranum, það er ljóst að gæta þarf mikils aðhalds í rekstri og fjárfestingum svo við getum haldið því þjónustustigi sem við viljum hafa og haldið áfram að byggja hér upp það samfélag sem við viljum sjá á Fljótsdalshéraði. 

En núna ætla ég að drífa mig í ræktina - hef ekki litið þar við í margar vikur...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég og minn unglingur (14) ræddum þetta einmitt í gær að það þyrfti að fara æfa, að vakna á morgnana.  Hann var reyndar á því að þetta væri miklu heldur spurning um að æfa sig í að fara snemma að sofa!

Já haustið er gott, ný byrjun og eins gott að vera skipulagður.

kveðja 

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:00

2 Smámynd: Guðbjörg Anna

Það er best að vera með lífið í fastri rútínu, eða mér finnst það, rútínan; vakna kl 7 klæða sig, klæða barnið, fara út, keyra í leikskóla, fara í skólann, sækja á leikskólann, fara í ræktina, fara heim, borða og svæfa, læra svo fram á  kvöld, er fín ;) ætla að halda henin áfram í vetur...

Unglingurinn þinn er náttúrulega svakeg með það að koma sér ekki í rúmið....

Guðbjörg Anna , 12.8.2008 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband