Leita í fréttum mbl.is

Júlí langt kominn, ég orðin fimmtug, en hátíðahöldum frestað...

Nú er langt síðan ég hef bloggað..., ég fór með börnunum mínum á landsmót hestamanna á Hellu sem stóð yfir 30. júní - 6. júlí.  Berglind Rós var að keppa í barnaflokki á henni Myrkvu og gekk svona ljómandi vel.  Fyrst komst hún í hóp 30 bestu á þriðjudegi, þá í hóp 15 bestu á fimmtudeginum og á laugardagsmorguninn var ljóst að hún endaði í 10. sæti af 96 keppendum.  Fjölskyldan er afar stolt af prinsessunni sem kom okkkur öllum, og ekki síst sér, þægilega á óvart með þessu góða gengi.  Það er alltaf rosalega gaman að fara á hestamannamót, maður hittir margt skemmtilegt fólk, sér frábæra hesta og fjölskyldan er saman frá morgni til kvölds.

Landsmótssunnudaginn varð svo Jónína fimmtug, um miðnætti var sungið hressilega fyrir mig og eitt augnablik þurfti ég aðeins að átta mig - ég var í alvöru orðin fimmtug - en það að ég dreif alla með mér á Hjálmaball í tjaldinu sannaði fyrir mér að andinn er enn hress þrátt fyrir háan aldur..., Steini Hjálmakarl gerði svo daginn enn hátíðlegri með fallegri afmæliskveðju af sviðinu. Steini er alinn upp á Hallormsstað var þar nemandi minn og nágranni.

En í lífinu skiptast á skin og skúrir, ljóst er að verulega er nú dregið af Jóni Bergssyni, afanum og tengdapabbanum, á þessum bæ svo við ákváðum að drífa okkur heim um miðjan dag á mánudegi til að geta átt tíma með honum og fjölskyldunni. Guðbjörg Anna kom svo með flugi á þriðjudaginn og á þriðjudagskvöld var ákveðið að fresta afmælisveislunni sem vera átti á föstudagskvöldið í tilefni af fimmtugsafmæli mömmunnar á heimilinu.  Það er verra að vera með hátíðahöld í skugga kveðjustundar, svo ákveðið var að njóta kveðjustunda þessa vikuna og halda afmælið í ágúst þegar betur stendur á.  Vona ég að þið sem þetta lesið látið fréttina um frestunina berast fyrir okkur... 

Og svo held ég að sumarið sé að koma á Héraðinu...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Sæl.

Ég óska þér til hamingju með afmælið.  Og um leið sendi ég fyrir hönd okkar hjóna þér og þínu fólki hlýjar kveðjur.

Við gleðjumst svo síðar saman eins og oft áður. Allt hefur sinn tíma.

Jón Halldór Guðmundsson, 10.7.2008 kl. 11:57

2 identicon

hæ sæta

til lukku með áfangann.. hvenær er morgunmatur

Dandý sæta (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 12:24

3 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

Til hamingju með árin fimmtíu!

Guðrún Helgadóttir, 11.7.2008 kl. 14:10

4 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Til hamingju með árin 50.  Ég mundi eftir þessu á sjálfan afmælisdaginn, enda stutt frá afmæli litlu systur, en var sjálf stödd norður í landi utan við netheima! Litlan mín varð svo þriggja ára á mánudaginn, svo ég tengi þetta allt saman....allar þessar frábæru krabbastelpur

Sigþrúður Harðardóttir, 11.7.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband