Leita í fréttum mbl.is

Það er sól á Héraði

Yndisleg þessi birta - og geislarnir hita allavega yfirborðið... Dreif mig í spinning í morgun eftir nokkuð langt hlé - það var æðislegt að hita stelpurnar aftur - sveittar og hressar, verst að það eru bara tveir morguntímar á viku.

Í dag eru 36 ár síðan ég var fermd í Garðakirkju, 41 ár síðan Helga systir var fermd, 30 ár síðan Hanna Petra, litla systir var fermd, 10 ár síðan hún Guðbjörg Anna mín var fermd og eftir nákvæmlega eitt ár verður hún Berglind Rós mín fermd, að óbreyttu..., stórmerkilegur dagur. Tilefni til að hafa samband við allar þessar systur og dætur - frumburðurinn minn er að fara í próf á eftir...., sendi henni hlýjar kveðjur.

Í dag er forvarnardagurinn, það verður dagskrá hér í skólanum og síðan er Ungmennaþing í Sláturhúsinu - ungmennin ætla að ræða saman um afþreyingarmöguleika og vonandi koma með góðar tillögur um það miklilvæga mál í skólasveitarfélaginu Fljótsdalshérði.  Ungmenni þurfa að eiga möguleika á því að hittast og skemmta sér - og sveitarfélag á að koma að því máli - en bara þegar um vímulausa atburði er að ræða - við eigum frábært Ungmennahús - í Sláturhúsinu - sem er dæmigerður vettvangur sveitarfélags til að skapa ungmennum aðstöðu til afþreyingar. Hlakka mikið til að heyra niðurstöður umræðnanna og hvernig Ungmennaráðið leggur til að þessum málum verði háttað hjá okkur...

Svo er 100. fundur bæjarráðs Fljótsdalshéraðs í dag - við gerum okkur aðeins dagamun að því tilefni.  Þessi dagur lítur út fyrir að verða viðburðarríkur hjá mér - vona að þið eigið góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú varst æði í spinning.. svo er að mæta í skokk á föstudagsmorgun

Dandý (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 12:39

2 identicon

Já þetta er sannarlega mikill merkisdagur. Að það séu 30 ár síðan ég fermdist finnst mér engan veginn geta staðist, en svona er þetta víst. En mér finnst allavega voða gott að vera enn "litla systir" - það er þá allaf einhver eldri en ég. En bestur kveðjur til þín, og dætra þinna (stóru systur líka ef þú heyrir/sérð hana), í tilefni dagsins, njótum hans!

Litla systir í Noregi (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 18:16

3 identicon

Verð að láta í mér heyra líka í tilefni dagsins - svona sem stóra systirin! Til hamingju með daginn allar, bæði systur og frænka. Gaman að eiga sameiginlegan merkisdag - það gefur ánægjulegt tilefni til að takast í hendur - jafnvel þó það verði bara í huganum vegna fjarlægða - og þakka fyrir að eiga góða að. Til hamingju aftur með daginn okkar, stelpur

Stóra systir og frænka

Helga (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband