Leita í fréttum mbl.is

Félagshyggjan nýtur trausts

Trúin á að einstaklingurinn eigi ávallt að njóta sín, hæfileika sinna og aðstæðna, nánast hvað sem það kostar, eins og frjálshyggjan boðar hefur dofnað hjá almenningi.

Fólk trúir því að það sé félagsauðurinn sem nú eigi að vera við völd með áherslu á jöfn tækifæri og stjórnsýslu sem vinnur að því að búa til samfélag þar sem hið opinbera grípur inn í þegar ójafnvægi og ójöfnuður myndast.  Félagshyggja, jafnaðarstefna og lýðræðisleg vinnubrögð er það sem fólk kallar eftir núna þegar - þar getur fólk auðveldlega samsamað sig stórri lýðræðislegri Samfylkingu.

Ég er alltaf að hitta fleiri og fleiri gamla íhaldsmenn sem hafa kastað trúnni og vilja nú lýðræðislegri og alþjóðlegri sjónarhorn en Sjálfstæðisflokkurinn gefur kost á.

Ég hlakka svooooo til þessarar kosningabaráttu því ég held að hún verði okkur afar hliðholl en um leið lærdómsrík...

En nú þarf ég að athuga hvernig framvindan er í prufugreiðslunni hjá örverpinu mínu og svo ætla ég að hitta austfirska frambjóðendur Samfylkingarinnar og fleiri lykilaðila á Reyðarfirði í kvöld.


mbl.is Samfylking áfram stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Gunnarsson

Samf. er ekki trúverguð, mikil óeining innan þeirra

Haukur Gunnarsson, 2.4.2009 kl. 20:23

2 identicon

Það sem er fréttnæmt við þessa frétt er það að fjórðungur þjóðarinnar er búinn að gleyma því hver ber ábyrgð á efnahagshruninu. Hvergi í heiminum gæti það gerst að 25% einnrar þjóðar myndi kjósa flokkinn sem bæri ábyrgð á viðlíka skandal og Sjálfstæðisflokkurinn. Það er kannski ekki það sem er verst við þetta allt saman, það er að fólkið sem kýs þennan blessaða flokk myndar sér aldrei sjálfstæða skoðun. Meira að segja formaðurinn lætur flokkinn ráða skoðunum sínum. Á fimmtudegi segir hann að Sjálfstæðisflokkurinn verði að gefa forystu flokksins skýrt umboð til að fara í aðildarviðræður við ESB. Á sunnudegi á landsfundi segist hann mjög sáttur við þá niðurstöðu FLOKKSINS að Íslandi sé best borgið utan ESB. Ég vorkenni fólki sem getur ekki myndað sér sjálfstæðar skoðanir og þarf að láta flokk segja sér hvað það á að hugsa. Bjarni lét flokkinn segja sér hvaða skoðun hann ætti að hafa og skósveinar flokksins láta svo forystu þessa flokks segja sér hvaða skoðun þaeir eigi að haf.

Valsól (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 20:47

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Ég held að það sé ekki mikil óeining innan Samfylkingarinnar um stefnumál og okkar meginhugsjónir.  Og ég held líka að þær hugsjónir eigi mikinn hljómgrunn meðal landsmanna, og eftir síðustu áföll okkar minnkar varla tiltrú fólks á því að jafnaðarstefna sé farsælli en óheft frjálshyggja.

Hins vegar er ljóst að til dæmis voru skiptar skoðanir innan okkar raða um hve lengi átti að reyna samstarf með sjálfstæðisflokknum til þrautar.  Ef einhverjum finnst það ótrúverðugt að mismunandi gildismat á slíkum atriðum sé ótrúverðug, þá verður bara að hafa það.

Jón Halldór Guðmundsson, 2.4.2009 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband